Ásýnd Sementsverksmiðjunnar breytist mikið með hverjum deginum sem líður. Niðurrif á byggingum og búnaði Sementsverksmiðjunnar gengur samkvæmt áætlun hjá verktakafyrirtækinu Work North ehf. Verkið er á áætlun og á undanförnum dögum var ofnhúsið og kvarnarhúsið rifið. Ofninn stendur einn eftir eins og sjá má á þessum myndum og í myndbandinu hér fyrir neðan. Mikið brotajárn...
Björn Bergmann Sigurðarson leikmaður Rostov í Rússlandi – er einn af 29 leikmönnum sem leika tvo vináttulandsleiki í Bandaríkjunum. Mótherjar Íslands verða Mexíkó og Perú. Fyrri leikurinn er þann 23. mars á Levi’s vellinum í San Francisco og sá síðari gegn Mexíkó þann 27. mars á Red Bull Arena í New Jersey. Eins og áðurs...
Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu frá Akranesi og leikmaður Vals, verður ein af álitsgjöfunum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í sumar. Hallbera Guðný verður þar með fyrsta konan sem fær þetta hlutverk sem sérfræðingur í umfjöllun um efstu deild karla í knattspyrnu. Skagamenn verða áberandi í Pepsi-mörkunum þrátt fyrir að bæði karla –...
Skagamenn eiga fulltrúa á úrslitakvöldi Músíktilrauna sem fram fara í Hörpunni. Hljómsveitin Madre Mia frá Akranesi keppir á fyrsta úrslitakvöldinu af alls fjórum. Madre Mia fer á sviðið í Hörpu sunudaginn 18. mars ásamt sex öðrum hljómsveitum. Hljómsveitina skipa þær Katrín Lea Daðadóttir, Hekla María Arnardóttir og Sigríður Sól Þórarinsdóttir. Katrín er 14 ára, hún syngur, spilar á...
Elsa Lára Arnardóttir skrifstofustjóri leiðir lista Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórnarkosningunum í vor á Akranesi. Ragnar Baldvin Sæmundsson verslunarmaður er í 2. sæti og Liv Åse Skarstad húsmóðir í 3. sæti. Næstu þrjú sæti þar á eftir skipa þau Karitas Jónsdóttir verkefnastjóri, Ole Jakob Volden húsasmiður og Helga Kristín Björgólfsdóttir grunnskólakennari. Frá vinstri: Ole Jakob Volden,...
Á undanförnum dögum hafa kraftmikil tæki verið notuð við að hreinsa fíngert ryk í Hvalfjarðargöngunum. Á vef Spalar kemur fram að nýr götusópari frá Hreinsitækni ehf. var notaður í fyrsta sinn við hreingerningar í göngunum. Alls voru 18 tonn af ryki fjarlægð á einni viku í Hvalfjarðargöngunum og verkinu er ekki lokið. Fram kemur í frétt...
Í gær var skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða við Asparskóga á Akranesi. Með viljayfirlýsingunni veitir Akraneskaupstaður vilyrði um úthlutun á lóðum að Asparskógum 12, 14 og 16 til íbúðafélagsins Bjargs þar sem reisa á leiguíbúðir og einnig mun Akraneskaupstaður veita stofnframlag til uppbyggingarinnar í samræmi við ákvæði laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Sævar...
Hótel Akranes sem var að finna við Bárugötu 15 hefur staðið autt í nokkur ár og engin starfsemi hefur verið í húsinu um langan tíma. Margir Skagamenn eiga góðar minningar frá árunum þegar Hótel Akraness var miðpunktur skemmtanalífsins í bænum. Það er miklar líkur á því að húsinu verði breytt í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurn þess efnis...
Það ríkir mikil eftirvænting hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í knattspyrnu karla. Á fimmtudaginn, 15. mars, verður nýr keppnisbúningur landsliðsins kynntur til sögunnar. Búningurinn verður notaður á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland leikur í lokakeppni HM. Leikmenn ÍA hafa frá upphafi leikið stórt hlutverk í leikjum íslenska karlalandsliðsins...
Karlalið ÍA sýndi frábær tilþrif í gær í lokaleik liðsins í Lengjubikarnum gegn Víkingum úr Reykjavík í Akraneshöllinni. Leikurinn endaði 3-0 en staðan var 1-0 í hálfleik. Ragnar Leósson skoraði fyrsta mark ÍA á 7. mínútu með frábæru skoti af löngu færi. Á síðustu 15 mínútum leiksins bættu Skagamenn tveimur mörkum við, Stefán Teitur Þórðarson...