• Það er óhætt að segja að sýningin sem leikfélag Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Tónlistarskólinn á Akranesi bjóða upp á í Bíóhöllinni á Akranesi hafi svo sannarlega slegið í gegn. Troðfullt hefur verið á fyrstu sýningarnar á leikritið sem heitir Með allt á hreinu og byggir á sögunni sem Stuðmenn sögðu í samnefndri kvikmynd...

  • Íslandsmót unglinga í badminton fór fram um helgina á Akranesi. ÍA var gestgjafi mótsins ásamt Badmintonsambandi Íslands. Keppendur voru 150 talsins frá 8 félögum, Aftureldingu, BH, Hamri, ÍA, KR, TBR, TBS og Samherjum. Flestir komu frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar eða 48 alls og TBR var með 47 keppendur. ÍA var þriðja fjölmennasta liðið með 18 keppendur...

  • Skagamaðurinn Heimir Bergmann hefur opnað nýja fasteignasölu í gamla heimabænum. Þar með eru fasteignasölurnar á Akranesi orðnar fjórar. Lögheimili eignamiðlun er með skrifstofu að Skólabraut 26 í húsnæði sem oft hefur verið kennt við gamalgróna verslun sem var þar til húsa og hét Akrasport. Heimir Bergmann hefur starfað við fasteignasölu á höfuðborgarsvæðinu fá árinu 2006...

  • Framkvæmdir við nýja Frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi standa yfir og hefur mikið gerst þar á bæ á undanförnum dögum. Veðurfarið í febrúar hafði töluverð áhrif á framkvæmdahraðann en vel hefur gengið að undanförnu. Framkvæmdanefnd lauk undirskrift samninga í febrúar við verktaka og eru nú allir samningar frágengnir um stærstu verkþætti verkefnisins. Magnús Sólmundsson sendi...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi er í toppbaráttunni fyrir lokahringinn á LET móti sem fram fer í Suður-Afríku. Íslandsmeistarinn 2017 lék frábært golf á öðrum hringnum eða -3 og er hún samtals á -1 eftir 36 holur (74-69). Mótið heitir Investec SA Women’s Open og fer fram á Westlake Golf Club. Leiknar verða 54 holur og...

  • Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2018 tillögur skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar um styrkveitingar til íþrótta- og menningarmála að andvirði 7,7 m.kr.  Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar. Um er að ræða úthlutun styrkja úr sjóði atvinnu-, íþrótta- og menningarmála en auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember...

  • Það var líf og fjör á Akranesi í dag í veðurblíðunni eins og sjá má í þessari myndasyrpu. Við kíktum meðal annars við í Sementsreitnum þar sem niðurrif verksmiðjunnar stendur yfir. Þar hefur mikið gengið á og margar byggingar eru horfnar. Akraneshöfn skartaði sínu fegursta líkt og Langisandur og Krókalónið. Mikið fuglalíf var á Krókalóninu...

  • Getur það það staðist að gosdrykkir, þá sérstaklega 0,5 lítra Coca Cola í plastumbúðum, hafi ekki góð áhrif á plastþakrennur? Það er vitað að gosdrykkir skemma tennur – ef drukkið er mikið magn af slíkum vökva. Ef marka má þessar myndir sem teknar voru á neðri Skaganum í dag þá er allar líkur því að...

  • Leikfélag Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Tónlistarskólinn á Akranesi hafa á undanförnum vikum og mánuðum æft af krafti fyrir umfangsmestu uppsetningu skólans til þessa. Leikritið heitir Með allt á hreinu og byggir á sögunni sem Stuðmenn sögðu í samnefndri kvikmynd sem frumsýnd var árið 1982. „Með allt á hreinu“ fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og...

  • „Smiðjuloftið verður afþreyingarsetur fyrir Skagamenn og gesti þeirra segir Skagamaðurinn Þórður Sævarsson sem hefur sett á laggirnar fyrirtækið Smiðjuloftið ásamt Valgerði Jónsdóttur eiginkonu sinni. Þórður er frumkvöðull í klifuríþróttinni á Akranesi og mun Klifurfélagið nýta aðstöðuna í Smiðjuloftinu til æfinga og keppni. Eins og nafnið gefur til kynna er Smiðjuloftið að finna við götuna Smiðjuvelli...

Loading...