• Prófinu var aflýst í Grundaskóla á Akranesi vegna tæknilegra vandamála hjá Menntamálastofnun Nemendur í 4. og 9. bekk grunnskóla landsins taka samræmd próf þessa dagana víðsvegar um landið. Í dag var samræmt próf í íslensku lagt fyrir í 9. bekk. Prófinu var aflýst í Grundaskóla á Akranesi vegna tæknilegra vandamála hjá Menntamálastofnun. „Enn einu sinni...

  • Nýverið tók lögreglan á Vesturlandi í notkun nýja bifreið sem hefur yfir að ráða stafrænni hraðamyndavél til eftirlits með ökuhraða. Bifreiðin verður við hraðamælingar vítt og breitt um umdæmið en sérstök áhersla verður á hraðamælingar á götum við grunn- og leikskóla. Þeir ökumenn sem aka yfir leyfilegum hámarkshraða mega búast við sektum. Lögreglan mældi hraða...

  • Íþróttabandalag Akraness hefur á undanförnum vikum og mánuðum verið með fjölbreytt framboð á fróðlegum fyrirlestrum og námskeiðum fyrir félagsmenn ÍA og aðra gesti. Þetta kraftmikla starf heldur áfram mánudaginn 12. mars þegar Hrafnhildur Lúthersdóttir kemur í heimsókn og fjallar um reynslu sína. Sundkonan hætti nýlega að keppa í sundi en hún hefur á undanförnum árum...

  • Það er líf og fjör í Akraneshöfn og í vinnsluhúsum á svæðinu þessa dagana. Loðnuvertíðin stendur sem hæst og eru fjölmargir við störf í hrognavinnslu á Akranesi þessa stundina. Í gær kom Venus inn til hafnar með loðnufarm eins og sjá má þessum myndum. Gert er ráð fyrir að tvær vikur séu eftir af loðnuvertíðinni....

  • Vel á annan tug keppenda frá Klifurfélagi Akraness mætti til leiks í lokaumferðina á Íslandsmótinu í klifri sem fram fór um s.l. helgi. Keppt var í öllum aldursflokkum. Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í 16-19 ára flokki og landaði þar með öðrum Íslandsmeistaratitli sínum fyrir ÍA. Sylvía Þórðardóttir komst einnig á verðlaunapall í flokki...

  • Keppendur frá ÍA úr Fimleikafélagi Akraness náðu frábærum árangri á bikarmóti barna og unglinga í hópfimleikum sem fram fór á Selfossi um s.l. helgi. Þar var nýr kafli skrifaður í sögu FIMA þar sem lið 1 fagnaði bikarmeistaratitli í 5. flokki í A-deild. Þetta er í fyrsta sinn sem FIMA eignast bikarmeistara í A-deild. Alls...

  • Skagamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson heldur áfram sigurgöngu sinni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Jakob og Skýr frá Skálaholti sigruðu í fimmgangi í síðustu keppni. Þetta er þriðji sigur Jakobs í röð og er hann með góða stöðu í einstaklingskeppninni í Meistaradeildinni. Næsta mót verður haldið 15.mars en þá verður keppt í gæðingafimi. 1. Jakob Svavar Sigurðsson...

  • Á síðasta fundi Bæjarstjórnar Akraness var einhugur hjá öllum bæjarfulltrúum í því að mótmæla harðlega uppsögnum starfsfólks hjá starfsstöð sýslumannsins á Akranesi. Uppsagnirnar fela m.a. í sér að ekki verður lengur til staðar löglærður fulltrúi með fasta viðveru í langfjölmennasta byggðarkjarna Vesturlands. Samþykkt var eftirfarandi bókun bæjarstjórnar: Í aðdraganda þeirra breytinga sem gerðar voru í...

  • Skagamaðurinn Teitur Arason náði góðum árangri á Arnold Classsic mótinu í Bandaríkjunum. Teitur keppti í nýjum flokki, Classic Physique, sem er sterkur flokkur og þrátt fyrir allt náði Teitur ekki að komast í topp 5 manna hópinn af alls 35 keppendum. „Þótt það fari ekki vel í keppnisskapið eftir 15 mánaða æfingar fyrir þetta þá er...

  • Alls bárust 17 umsóknir um starf forstöðumanns íþróttamannvirkja hjá Akranekaupstað. Umsóknarfrestur rann út þann 25. febrúar s.l. og stendur ráðningarferli yfir. Eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan eru margir þekktir einstaklingar úr bæjarlífinu á Akranesi á meðal umsækjenda. Hörður Kári Jóhannesson hefur gegnt þessu starfi á undanförnum árum. Eftirfarandi aðilar sóttu um...

Loading...