• Það var líf og fjör í Akraneshöfn í gær þar sem yfir 20 tonnum var landað. Nýverið var fiskmarkaður opnaður á ný á Akranesi í samstarfi við Fiskmarkað Snæfellsbæjar. Fiskmarkaðurinn er starfræktur að Faxabraut 5. Heimildarmaður Skagafrétta segir að mikil umferð hafi verið í Akraneshöfn í gær í veðurblíðunni. Þar var skeggrætt um aflabrögð og mið eins...

  • Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina „Víkingur, sögubrot af aflaskipi og skipverjum,“ sem rituð er af Haraldi Bjarnasyni en hann á að baki um fjörutíu ára feril sem blaða,- frétta- og dagskrárgerðarmaður, lengst af hjá RUV en einnig hjá héraðsfréttablöðum og tímaritum, ekki síst þeim sem tengd eru sjávarútvegi. Höfundurinn er fæddur og uppalinn á...

  • Skagakonan Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Katla DMI, ætlar að sækjast eftir formannsembættinu í Samtökum ferðaþjónustunnar. En Grímur Sæmundsen sem verið hefur forsvari fyrir samtökin síðustu fjögur ár ætlar að láta staðar numið á aðalfundi þeirra sem fer fram 21. mars n.k. Þetta kemur fram á ferðavefnum turisti.is. Bjarnheiður segir ástæðuna fyrir framboðinu sínu vera fyrst...

  • Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélagsins á Akranesi sem haldin var þann 27. febrúar var lögð fram tillaga kjörnefndar að framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 26. maí 2018. Í síðustu bæjarstjórnarkosningum fékk flokkurinn fimm bæjarfulltrúa kjörna. Sigríður Indriðadóttir forseti bæjarstjórnar gefur ekki kost á sér í efstu sæti listans og Sandra Margrét Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri kemur inn...

  • Það er alltaf eitthvað gott að frétta hjá matvælafyrirtækinu Skag­inn 3X sem er eitt öflugasta fyrirtæki Akraness. Matvælafyrirtækið er í útrás og mun opna útibú í Bodø í Noregi í byrjun mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skaganum 3X. Magni Vet­urliðason, sem bú­sett­ur hef­ur verið í Nor­egi í fleiri en þrjá­tíu ár og er reynd­ur...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni tekur risastökk á heimslista atvinnukylfinga sem uppfærður er vikulega. Valdís Þóra er í sæti nr. 313 og fer hún upp um 70 sæti frá því í síðustu viku. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR fer upp um eitt sæti en hún er í sæti nr. 172. Frá þessu er greint á...

  • Um miðjan febrúar hóf fyrirtækið Ísfiskur starfsemi í fiskvinnsluhúsinu sem félagið keypti af HB Granda á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Verkalýðsfélags Akraness. Alls verða 24 fiskvinnslumenn – og konur í vinnu hjá Ísfiski. Vonir standa til að starfsmönnum fjölgi á næstu misserum þegar fyrirtækið verður komið á fullt skrið í vinnslu á...

  • Rakel Eyjólfsdóttir og María Einarsdóttir sigruðu í Söngkeppni NFFA sem fram fór í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þann 20. febrúar s.l.  Alls voru sex atriði sem lögð voru fram fyrir dómnefnd að þessu sinni. Rakel og María fluttu lagið „Emmylou“ eftir First Aid Kit en Steinar Bragi lék á gítar í þessu atriði. Trausti Már var...

  • Steinunn Dögg Steinsen hefur verið ráðin framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfissviðs Norðuráls. Hún hefur unnið hjá Norðuráli frá árinu 2011 og gegndi síðast stöðu deildarstjóra umhverfismála á umhverfis- og verkfræðisviði. Steinunn er með M.Sc. í efnaverkfræði frá Denmarks Tekniske Universitet, og lauk diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Ísland árið 2010. Steinunn Dögg Steinsen.

  • Leitin að upprunanum fékk í gær Edduverðlaunin sem mannlífsþáttur ársins 2017. Skagakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er hugmyndasmiður þáttarins sem slegið hafa í gegn. Í þáttunum fer Sigrún Ósk víðsvegar um heiminn með Íslendingum sem komu til landsins m.a. í gegnum ættleiðingar og verkefnið hefur verið að hitta fjölskyldur þeirra í þeim löndum þar sem þau...

Loading...