„Eins og alltaf þegar Bíóhöllin á Akranesi er annars vegar þá er von á mikilli veislu. Við lofum því að þetta verði einstök upplifun,“ segir Ingi Fannar Eiríksson talsmaður Team 79 árgangsins sem stendur fyrir bíósýningu fimmtudaginn 18. janúar. Það sem vakir fyrir 79 árganginum er að safna peningum í minningarsjóð Arnars Dórs Hlynssonar sem...
Það styttist í einn stærsta viðburð ársins á Akranesi, en Þorrablót Skagamanna, fer fram laugardaginn 20. janúar í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Líkt og undanfarin ár þá þá er áhugi Skagamann á blótinu mikill. Það eru samt sem áður örfáir miðar enn til sölu og er hægt að hafa samband í gegnum netfangið [email protected] eða í gegnum fésbókarsíðu...
Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, bætti met sem Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson, setti fyrir tæplega 67 árum. Albert skoraði þrennu í 4-1 sigri Íslands gegn Indónesíu og er hann þar með yngsti leikmaðurinn sem skorar þrennu í A-landsleik fyrir Ísland. Albert er fæddur í júní árið 1997 og er því 20 ára og 7 mánaða en...
Dularfulla búðin við Skólabraut á Akranesi hefur vakið athygli frá því að Ingimar Oddsson opnaði búðina vorið 2017. Á erlenda ferðavefnum atlasobscura.com er fín grein um Dularfullu búðina sem er í raun fjöllistahús, ölstofa, kaffihús, safn, og verslun. Í samtali við skessuhorn.is segir Ingimar að frá og með 1. febrúar verði veitingasala í hádeginu alla virka...
Íbúafjöldinn á Akranesi hefur á undanförnum árum farið vaxandi og forsvarsmenn Akraneskaupstaðar undirbúa komu enn fleiri íbúa með nýjum svæðum fyrir húsbyggingar. Í dag voru nýjar lóðir kynntar til sögunnar í Skógarhverfi en u Um að ræða 12 fjölbýlishúsalóðir við Asparskóga sem tilheyra Skógahverfi 1. áfanga og 29 einnar hæðar par- eða raðhúsalóðir við Álfalund og Akralund...
Ég hef alltaf haft á tilfinningunni að Númenór í Fjarskalandi eigi sér tvífara. Hann er fundinn og hann er pabbi minn (ungur) skrifar Skagmaðurinn Hallgrímur Ólafsson eða Halli Melló á fésbókarsíðu sína. Leikarinn góðkunni hefur slegið í gegn í hlutverki Númenórs í leikritinu Fjarskalandi. Feðgarnir Ólafur Hallgrímsson og Hallgrímur Ólafsson eru fjarskalega líkir þegar...
„Fyrirmynd, nágranni, mótherji og nú loks samherji,“ skrifar Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson á Instagram eftir 4-1 sigur Íslands gegn Indónesíu í gær. Þar skoraði annar Skagamaður, Arnór Smárason, annað mark leiksins og en Tryggvi skoraði eitt marka Íslands í fyrri leiknum sem endaði 6-0 fyrir Ísland. Tryggvi er ekki í vafa um að Arnór hafi...
Sigrún Eva Sigurðardóttir og Paula Gaciarska voru valdar á úrtaksæfingar fyrir U16 ára landslið kvenna. Æfingarnar fóru fram dagana 12.-14. janúar en Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins. Sigrún Eva hefur leikið með U-17 ára landsliði Íslands en Paula er að stíga sín fyrstu skref með landsliðum Íslands. Sigrún Eva og Paula í landsliðsbúningum Íslands.
Fimm leikmenn hafa á undanförnum vikum samið við Knattspyrnufélag ÍA. Þórður Þorsteinn Þórðarson framlengdi samningi sínum til þriggja ára. Þórður Þorsteinn er fæddur árið 1995 og er uppalinn í ÍA. Hann hefur spilað 127 leiki með félaginu og skorað í þeim 19 mörk. Þrír ungir leikmenn, þeir Alexander Már Þorláksson, Birgir Steinn Ellingsen og Marinó...
Þrýstihópur um tafarlausar vegbætur á Vesturlandsvegi um Kjalarnes var nýverið settur á laggirnar. Bjarnheiður Hallsdóttir frá Akranesi er frumkvöðull í þesssu máli og nú þegar hafa rúmlega 3000 skráð sig í hópinn á fésbókinni. Á fésbókarsíðunni, Til öryggis á Kjalarnesi, hafa skapast miklar umræður og er ljóst að þolinmæði Skagamanna er á þrotum. Boðað hefur...