Ísak Bergmann Jóhannesson hefur vakið mikla athygli á undanförnum mánuðum sem leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping. Knattspyrnumaðurinn ungi frá Akranesi er aðeins 17 ára gamall en hann hefur nú þegar stimplað sig inn í byrjunarlið Norrköping í sterkri deild. Og þar að auki hefur hann verið...
Á landinu öllu greindust 59 ný Covid-19 smit í gær og voru tæplega 70% þeirra í sóttkví. Tvö ný Covid-19 smit voru greind á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. . Alls eru 20 í einangrun í landshlutanum vegna Covid-19 og 72 eru í...
Skiptar skoðanir eru í bæjarráði Akraness um hvernig staðið verði að uppbyggingu á framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut. Eins og áður hefur komið fram skemmdist húsið mikið þegar eldur kom upp í mannvirkinu í maí 2019. Starfshópur sem skipaður var um framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar kynnti tillögur sínar...
Heilsueflandi samfélag Akranes býður upp á tvö rafræn fræðslukvöld um svefn barna og ungmenna, 29. október og 2. nóvember og hefst fræðslan bæði kvöldin kl. 20:00. Skráning fer fram hér. Á fyrra fræðslukvöldinu 29. október verður áhersla á svefn barna frá fæðingu til 6 ára aldurs. Elísa Guðnadóttir...
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson stýrir kvennalandsliði Íslands í dag í afar mikilvægum leik gegn Svíum í undankeppni EM. Leikurinn fer fram í borginni Gautaborg í Svíþjóð og hefst leikurinn kl. 17:30. Bein útsending verður á RÚV frá leiknum. Jón Þór segir í samtali við RÚV...
Alls greindust 50 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær og þar af voru 22 í sóttkví en 28 utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á covid.is. Á Vesturlandi er staðan óbreytt en 18 einstaklingar eru í einangrun vegna Covid-19 en einstaklingum í sóttkví fer fækkandi....
Minningarsjóður Lovísu Hrundar afhenti nýverið myndarlegan styrk til Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna að upphæð 2.000.000 kr. vegna endurnýjunar á Veltibílnum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Minningarsjóður Lovísu Hrundar var stofnaður í minningu Lovísu Hrundar Svavarsdóttur sem fæddist á Akranesi þann 5. október árið 1995. Lovísa...
Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Lilleström í gær í norsku 1. deildinni. Markið var stórglæsilegt eins og sjá má í þessu myndbandi hér fyrir neðan. Lilleström sigraði Sandnes Ulf 4-2 á heimavelli og heldur enn í vonina um að komast upp...
Alls greindust 76 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær og voru 60 þeirra í sóttkví. Á Vesturlandi greindust 5 ný Covid-19 smit samkvæmt tölfræði á covid.is. Alls eru 23 í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19 en á föstudag voru 16 í einangrun. Alls eru...
Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum Skagamönnum. Tippklúbbur KFÍA hefur brugðist við breyttum aðstæðum vegna Covid-19 lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og nýverið var sett af stað getraunaáskorun sem mun verða vikulegur viðburður á keppnistímabilinu. Um liðna...