Stórar fréttir úr herbúðum Knattspyrnufélagsins Kára berast á hverjum degi þessa dagana. Í gær var greint frá því að Gunnar Einarsson tekur við liðinu sem þjálfari. Og í dag var greint frá því að hinn þaulreyndi framherji Garðar Bergmann Gunnlaugsson hafi gengið í raðir Kára....
Knattspyrnufélagið Kári hefur ráðið nýjan þJálfara fyrir liðið sem leikur í þriðju efstu deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Starfið var auglýst á dögunum og sóttu alls átta þjálfarar um starfið. Gunnar Einarsson tekur við liðinu en hann er þaulreyndur leikmaður og lék m.a. sem...
Það styttist í upphaf Íslandsmótsins í knattspyrnu hjá karla -og kvennaliði ÍA. Leikmenn fá tækifæri til þess að láta ljós sitt skína í glæsilegum keppnisbúningi frá Errea. Ný útgáfa af ÍA búningnum er á leiðinni til landsins. Eins og sjá má eru töluverðar breytingar á...
Draumahöggunum heldur áfram að rigna inn á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Helga Rún Guðmundsdóttir sló draumahöggið sitt í dag á þriðju braut vallarins. Helga Rún var keppendi á fjölmennu styrktarmóti fyrir barna – og unglingastarf Leynis. Keppendur voru rúmlega 130. Eins og áður segir hefur...
Merkurtúnið á Akanesi iðar af lífi þessa dagana eftir að ærslabelgur var settur upp á svæðinu. Ærslabelgurinn var settur upp í síðustu viku . Tveir ærslabelgir eru nú til staðar á Akranesi, sá nýrri við Merkurtún og sá eldri við Jaðarsbakka. Ærslabelgirnir eru ætlaður fólki...
„Ég hélt boltanum á lofti í 1 klukkutíma og 44 mínútur. Og snertingarnar voru í það minnsta 11.582,“ segir Knútur Haukstein Ólafsson við Skagafréttir. Knútur setti nýverið nýtt Íslandsmet í því að halda bolta á lofti í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. Slík met eru ekki skráð...
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að deila út 100 milljónum kr. til aðildarfélag sinna en stjórn KSÍ samþykkti þá ákvörðun á síðasta fundi sínum Skiptinging er framkvæmd á grundvelli reiknilíkans sem var hannað og notast við fyrir útgreiðslu sérstaks EM-framlags 2016 og HM-framlags árið 2018. Í...
Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir bestan námsárangur á stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2020. Alls voru 65 nemendur brautskráðir frá FVA, föstudaginn 29. maí. Frá þessu er greint á vef FVA. Nánar má lesa um brautskráninguna á vef FVA hér: Amalía Sif Jessen...
Það var heldur betur heitt í kolunum í dag á Norðurálsvellinum þar sem að lið ÍA og Víkings úr Ólafsvík mættust í æfingaleik. Rauð spjöld fóru á loft og það gekk heldur betur mikið á inni á vellinum. ÍA hafði betur 2-1 en helstu atvikin...
Kvennalið ÍA sem leikur i næst efstu deild Íslandsmótsins lék í kvöld æfingaleik á Norðurálsvelli á Akranesi gegn Grindavík. Leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður. Vindurinn var í aðalhlutverki og það rigndi af og til. Leikmenn beggja liða nýttu leikinn til þess að slípa...