Það er óhætt að segja að frumraun tónlistarhátíðarinnar HEIMA-SKAGI fari vel af stað. Verkefnið var kynnt til sögunnar þann 8. október s.l. og miðasalan fór strax vel af stað. „Það er uppselt á HEIMA-SKAGA og það gleður okkur sem stöndum að verkefninu,“ segir Ólafur Páll...
Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is mætti gríðarlegur fjöldi grunnskólanemenda af öllu Vesturlandi á Tæknimessu sem fram fór í Fjölbrautaskóla Vesturlands á dögunum. Fjallað var um Tæknimessuna í sjónvarpsþættinum „Að Vestan“ á sjónvarpsstöðinni N4 og má sjá innslagið hér fyrir neðan. Á Tæknimessunni fór...
Þór Llorens Þórðarson skrifar: „Skólinn sem ég er í heitir The College of Saint Rose og það eru um 2.500 nemendur í skólanum sem er staðsettur í borginni Albany í New York fylki. Borgin er höfuðstaður fylkisins og þetta er bara flott borg, The College...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, á eftir að keppa á tveimur mótum á þessu tímabili á LET Evrópumótaröðinni. Þetta kemur fram á golf.is Í lok nóvember, 28.-1. desember fer fram mót á Spáni, Andalucia Costa del Sol, á Aloha vellinum og lokamót...
Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson hafa á undanförnum árum vakið athygli fyrir áhugaverða sjónvarpsþætti sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni N4. Þættirnir heita „Að Vestan“ og fyrsti þátturinn í nýrri seríu var frumsýndur í kvöld. Í innslaginu hér fyrir neðan ræðir Hlédís Sveinsdóttir um þættina...
Þróunarfélag Grundartanga og kísilver Elkem vinna nú að nýtingu þeirrar umframorku sem myndast við framleiðslu verksmiðjunnar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Í framleiðsluferlinu myndast mikill varmi sem hingað til hefur ekki verið nýttur og er þar talað um glatvarma. „Hugmyndin að baki því að nýta...
Jón Gísli Eyland Gíslason, leikmaður ÍA og Ísak Bergmann Jóhannesson leikmaður Norrköping í Svíþjóð eru í U-19 ára landsliðshóp Íslands sem tekur þátt í undankeppni EM 2020. Oliver Stefánsson, leikmaður Norrköping, væri án efa í þessum hópi líka en hann getur ekki tekið þátt vegna...
Körfuboltastrákarnir úr 10. flokki ÍA halda áfram að gera góða hluti á Íslandsmótinu 2019-2020. Um síðustu helgi lék ÍA gegn Þór á Akureyri., lokatölur 73-65 fyrir ÍA. Skagamenn hafa nú sigrað í öllum fjórum leikjum sínum á Íslandsmótinu í 10. flokk en í liðinu eru...
„Hugbúnaðurinn sem við fengum verðlaun fyrir er gagnvirkur dómsalur í sýndarveruleika þar sem þolendur kynferðisofbeldis geta komið með sínum fagaðila og æft sig í öruggu umhverfi,“ segir Skagakonan Edit Ómarsdóttir sem fékk Gulleggið 2019 ásamt Helgu Margréti Ólafsdóttur og Hafdísi Sæland fyrir bestu stafrænu lausnina...
Enska knattspyrnan er ekki oft til umfjöllunar á skagafrettir.is en þessi saga er of góð til að sleppa henni. Hallgrímur Viðar Arnarson er í fámennum en kraftmiklum hópi stuðningsmanna enska liðsins Southampton. Hann fór í „pílagrímsferð“ með syni sínum til Southampton s.l. föstudag þar sem...