Framkvæmdir við Kalmanstorg og Esjubraut hófust í dag 27. maí. Töluverð röskun verður á svæðinu en skipt verður um jarðveg og yfirborð götunnar verður endurnýjað. Framkvæmdinni verður skipt upp í tvo hluta. Áætluð verklok eru í september 2019 á fyrri hlutanum og í nóvember 2019...
Arnór Sigurðsson átti frábæran leik í gær í lokaumferð rússnesku deildarinnar með CSKA Moskvu . Skagamaðurinn skoraði eitt marka liðsins og lagði upp annað fyrir félaga sinn úr íslenska landsliðinu, Hörð Björgvin Gunnarsson. Þetta var fyrsta tímabil Arnórs með CSKA Moskva. Hann skoraði alls 5...
Það er mikill meðbyr með ÍA í fótboltanum þessa dagana. Gengi liða ÍA er gott og stuðningsmenn láta sig ekki vanta á leikina. Eins og sjá má á þessari loftmynd sem Hjalti Sig tók á meðan leikur ÍA og Stjörnunnar fór fram í gær. Þar...
Á dögunum fóru fulltrúar tryggingafélagsins Sjóvá og Slysavarnadeildarinnar Líf á Akranesi í heimsókn í 10.bekk Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla. Tilefnið var að fræða nemendur um brunavarnir. Þar má nefna að skilja ekki síma eða tölvur eftir uppí rúmi og passa að taka hleðslutækin úr sambandi...
Lára Hólm Heimisdóttir er svo sannarlega að gera það gott í meistaranámi sínu í barnatannlækningum í Norður-Karólínu háskólann í Bandaríkjunum. Lára, sem er fædd og uppalinn hér á Akranesi, fékk verðlaun fyrir rannsóknarverkefni hennar á barnatannlæknaþingi sem fram fór í Chicago um liðna helgi. Þar...
Hreyfing er þemað í þessari viku þegar Hreyfivika UMFÍ hefst með formlegum hætti. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Akranesi og margt í boði fyrir alla aldurshópa. Markmið verkefnisins er að að fá hundrað miljónir fleiri evrópubúa til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020....
Það var gríðarleg stemning á leik ÍA og Stjörnunnar í PepsiMax-deild karla sem fram fór í dag á Norðurálsvelli. Sigurganga Skagamanna heldur áfram og er liðið efst mð 16 stig eftir 5 umferðir. Einar Logi Einarsson og Steinar Þorsteinsson skoruðu mörk ÍA í dag og...
Sævar Freyr Þráinsson er glerharður stuðningsmaður ÍA. Bæjarstjórinn hefur á undanförnum árum setið í stjórn Knattspyrnufélags ÍA og tekið þátt í því uppbyggingarstarfi sem er að blómstra þessa dagana. „Knattspyrnan er sálin í bæjarfélaginu og það lyftist allt þegar vel gengur. Ég finn það svo...
Einar Logi Einarsson skoraði fyrra mark ÍA í 2-0 sigri liðsins gegn Stjörnunni í PepsiMax-deild karla í kvöld á Norðurálsvellinum. Varnarmaðurinn hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð en hann skoraði síðast fyrir sjö árum í efstu deild á Íslandi. Einar var að vonum...
Aníta Sól Ágústsdóttir og Veronica Líf Þórðardóttir skrifuðu nýverið undir nýjan samning við Knattspyrnufélag ÍA. Aníta og Veronica hafa báðar leikið með meistaraflokki ÍA frá árinu 2013 – þrátt fyrir ungan aldur. Þær eru því burðarásar í ungu liði ÍA og fagnaðarefni að þær taki...