Knattspyrnulið Kára frá Akranesi heldur áfram að gera góða hluti í 3. deild karla í knattspyrnu. Í gær fór fram toppslagur gegn Vængjum Júpiters í Egilshöll. Þar hafði Kári betur, 2-0, í miklum baráttuleik. Einar Logi Einarsson skoraði fyrsta markið á 16. mínútu og Óliver...
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leik í dag á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið fer fram á Trump National Golf Club, Bedminster, N.J. og stendur það yfir í fjóra daga. Valdís er fyrsti íslenski kylfingurinn sem fær keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu og hún er...
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er næst markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Björn, sem leikur með Molde, hefur skorað alls 10 mörk á tímabilinu. Hann er í liði ársins það sem af er tímabilinu hjá sparkspekingum TV2 sjónvarpsstöðvarinnar. Þeir sérfræðingar eru á þeirri skoðun að...
Meistaramóti GL lauk laugardaginn 8. júlí á Garðavelli. Keppendur voru 115 í öllum flokkum bæði yngri og eldri kylfingar. Vallaraðstæður voru allar hinar bestu og veðrið sýndi allar hliðar sínar meðan á mótinu stóð. Stefán Orri Ólafsson og Hulda Birna Baldursdóttir eru klúbbmeistarar Leynis 2017....
Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi hefur fengið það staðfest að hún fái keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið er eitt af fimm risamótum hvers árs og verður Valdís Þóra á meðal keppenda. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék um s.l....
Bæjarbúar hafa án efa tekið eftir því að erlendir fánar eru víða dregnir að húni á Akranesi þessa dagana. Ástæðan er sú að hér eru tæplega 70 manns frá Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Um er að ræða fulltrúa frá vinabæjum Akraness og hefur Norræna...
Írskir dagar tókust lygilega vel en bæjarhátíðin fór fram í 18. sinn um s.l. helgi. Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar – og safnamála á Akranesi, segir við skagafrettir.is að hátíðarhöldin hafi gengið vonum framar í ár. „Það var mikið af fólki sem kom í heimsókn...
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, skrifar áhugaverðan pistil á fésbókina í dag. Þar fer hann yfir þá reynslu sem hann fékk af veru sinni á Akranesi sem foreldri á Norðurálsmótinu og einnig á Orkumótinu í Vestmannaeyjum. Skipuleggjendur mótanna fá hæstu einkunn frá Forsetanum eins og...
Leikmenn ÍA úr 3. flokki karla í knattspyrnu voru sigursælir á alþjóðlegu móti, Barcelon Cup, sem fram fór í Salou rétt utan við stórborgina Barcelona. Alls var ÍA með tvö lið í þessari keppni en á þriðja tug leikmanna skipuðu liðin. ÍA 01 liðið stóð...
Ein af perlum Akraness, Langisandur, skartar bláum fána sem er tákn um góða umhverfisstjórnun. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og er þetta í fimmta sinn sem fáninn er dreginn að húni við Langasand. Baðströndin Langisandur þarf að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og...