Á Þorrablóti Skagamanna í gær, 21. janúar var Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður útnefnd Skagamaður ársins 2016. Það var Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs sem kynnti Skagamann ársins með eftirfarandi stökum sem Heiðrún Jónsdóttir á bæjarskrifstofunni orti af þessu tilefni: Skagamaður ársins er afar flottur karakter. Hæfileika í...
Arnór Sigurðsson, ungur knattspyrnumaður úr ÍA, mun á næstu dögum fara í æfingaferð með sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping. Arnór er fæddur árið 1999 og er því á 18. ári en hann leikur sem miðjumaður. Arnór hefur leikið 15 leiki með U17 ára landsliði Íslands og í...
Gámurinn með nýju stólunum og borðunum fyrir Þorrablót Skagamanna skilaði sér á réttum tíma. Fleiri miðar gætu bæst í söluna í kvöld. „Það er búið að vera frekar mikið að gera hjá okkur að undanförnu -eiginlega alveg „kreisí“ mikið en þetta er allt að smella...
Sjónvarpsstöðin ÍA TV fékk góða gjöf frá samstarfsaðila stöðvarinnar sem mun nýtast gríðarlega vel í framtíðinni. Næsta útsending hjá ÍA TV er í kvöld. Sýnt verður beint frá leik ÍA og Breiðabliks í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19.15 í íþróttahúsinu við...
Framkvæmdum við nýtt tengivirki Veitna og Landsnets á Akranesi lauk vorið 2016 og var það tekið formlega í notkun við athöfn, 18. janúar. Við þetta tilefni ávarpaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, gesti og Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, Guðmundur Ingi Ásmundsson,...
Stefán Bjarnason, fyrrum yfirlögregluþjónn á Akranesi, fagnar 100 ára afmæli sínu í dag 18. janúar. Stefán er fæddur á Sauðárkróki 18. janúar 1917. Í dag verður haldið upp á afmæli Stefáns á Dvalarheimilinu Höfða. Við hér á skagafrettir.is óskum Stefáni og fjölskyldu hans hjartanlega til...
Kórfélagarnir í kór Akraneskirkju fengu góða heimsókn í gærkvöld í Vinaminni. Þar leiðbeindi Englendingurinn Paul Phoenix kórfélögum og Sveini Arnari Sæmundssyni kórstjóra. Þar gaf Phoenix góð ráð varðandi fagurfræði og „dínamík“ í kórsöng. Sveinn Arnar skrifar á fésbókarsíðu sína að komu Phoenix mætti líkja við...
„Ég og fjölskyldan mín erum mun rólegri yfir því sem á eftir að gerast en fjölskylda Sigga og hans nánustu,“ segir Skarphéðinn Magnússon sjúkraflutingamaður á HVE en hann er byrjaður að safna hári eftir að hafa fengið 1000 læk á áskorun sem sett var fram...
„Ég er ekki í vafa um að þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið. Að taka þátt í The Voice Ísland var mjög krefjandi en á sama tíma var þetta skemmtilegt og gaf mér mikið“ segir Jóna Alla Axelsdóttir sem féll úr keppni í...
„Við erum búnir að undirbúa þetta í tæplega eitt ár og núna loksins er komið að því að við getum boðið gestum Galito upp á sushi á matseðlinum eftir kl. 17 á daginn,“ segir Hilmar Ólafsson matreiðslumaður og einn af eigendum veitastaðarins Galito. Frá og...