• Sylvía Þórðardóttir hefur á undanförnum misserum skipað sér í fremstu röð á Íslandi í klifuríþróttinni. Sylvía jafnaði sinn besta árangur nýverið þegar hún náði að klifra leiðina sem kölluð er „Fred Flintstone“ í Miðskjóli á Hnappavöllum. Skagakonan er þar með þriðja konan sem nær að klifra þessa leið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi...

  • Kór Akraneskirkju hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð með metnaðarfullri og skemmtilegri dagskrá. Kórstjóri er Hilmar Örn Agnarsson. Það er margt áhugavert á döfinni í vetur hjá Kór Akraneskirkju. Kóræfingar eru í Vinaminni á þriðjudagskvöldum frá 19:30-21:30 þar sem að hressleiki og skemmtun er í aðalhlutverki í félagsskapnum. Í tilkynningu kemur fram...

  • Þrír ungir og efnilegir kylfingar úr röðum Leynis á Akranesi náðu frábærum árangri á Íslandsmótinu í holukeppni unglinga 2022. Alls tóku 7 keppendur úr Leyni þátt en aðeins 16 stigahæstu kylfingar tímabilsins í hverjum aldursflokki fá keppnisrétt á þessu móti. Björn Viktor Viktorsson fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í flokki 19-21 árs og er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill hans...

  • Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi að breyta opnunartíma upplýsingamiðstöðvar ferðamanna / Akranesvita. Breytingin felst í því að upplýsingamiðstöð ferðamanna við Akranesvita verður opin virka daga í sex klukkustundir á dag í stað tveggja. Opnunartími gildir frá 1. september til og með 30. apríl ár hvert.

  • Jaðarsbakkalaug hefur verið lokuð undanfarna daga vegna árlegs viðhalds og viðgerða. Í fyrstu var áætlað að opna á ný s.l. sunnudag en verkefnið hefur tafist. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að opnað verður í sundlaugina á ný á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst, á hefðbundnum tíma. Pottar, vaðlaug og rennibrautarlaug verða lokaðar eitthvað áfram og...

  • Þeir eru ekki margir sem skora sitt fyrsta mark í efstu deild áður en þeir fá bílprófið en Skagamaðurinn Haukur Andri Haraldsson komst í þann hóp í gær. Hann náði þó ekki að slá fjölskyldumetið. Haukur Andri Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA í efstu deild í gær og er hann nú í fámennum...

  • Haukur Andri Haraldsson var hetja Skagamanna í dag þegar hann tryggði liðinu 2-1 sigur gegn ÍBV í Bestu deild karla í knattspyrnu. Haukur Andri, sem er fæddur árið 2005, skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. Áður hafði Kristian Lindberg komið ÍA yfir á 32. mínútu og Andri Bjarnason jafnaði metin fyrir ÍBV strax á fyrstu mínútu...

  • Íslandsmót golfklúbba 2022 í kvennaflokki 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru 18.-20. ágúst. Leyniskonur gerðu sér lítið fyrir og náðu þriðja sætinu eftir sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs – og Garðabæjar. Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði Golfklúbbinn Keili í úrslitaleiknum. Árangur Leyniskvenna er áhugaverður í ljósi þess að liðið sigraði í 2. deild fyrir...

  • Ívar Orri Kristjánsson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð knattspyrnudómara á Íslandi. Ívar Orri dæmir undir merkjum ÍA og í kvöld fær hann stórt verkefni í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA. Ívar Orri er deildarstjóri æskulýðs- og forvarnarmála í Þorpinu hér á Akranesi. Leikurinn sem Ívar Orri dæmir fer fram í Makedóníu þar sem...

  • Kvennalið ÍA vann stórsigur í kvöld, 11-0, gegn liði Hamars úr Hveragerði á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Með sigrinum bætti ÍA stöðu sína í þriðju efstu deild, 2. deild, töluvert. ÍA er í 5. sæti eftir 10 umferðir og á góða möguleika á að komast í efri hluta lokaumferðar mótsins þar sem að sex efstu liðin...

Loading...