• Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Í næstu viku á mánudags- eða þriðjudagskvöldi, 26. júlí eða 27. júlí, er stefnt á að malbika 800m kafla á Hringvegi milli Kjalarness og Hvalfjarðarganga.  Veginum og Hvalfjarðargöngum verður lokað í báðar áttir og verður hjáleið um Hvalfjörð. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.8. Þegar nær dregur verður tilkynnt nákvæmari dagsetning á framkvæmdunum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 22:00 til kl....

  • Alls greindust 78 Covid-19 smit á Íslandi í gær og eru alls 287 einstaklingar í einangrun þessa stundina með Covid-19 smit. Rúmlega 720 einstaklingar eru í sóttkví. Rétt um 2.300 sýni voru tekin í gær og töluverður fjöldi mætti í sýnatöku á Akranesi. Á Vesturlandi eru 2 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og rúmlega...

  • Mikil aukning hefur verið í Covid-19 smitum á Íslandi undanfarna daga – en þetta kemur fram á vefnum covid.is. Í gær greindust 56 Covid-19 smit innanlands – þar af voru 38 utan sóttkvíar. Í fyrradag greindust 38 smit. Töluverður fjöldi af skimunum fóru fram í gær eða rétt um 1600, um 500 við landamærin og...

  • Runólfur Hallfreðsson ehf., sem er dótturfélag Síldarvinnslunnar, hefur gengið frá sölu á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 til erlendra aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni. Salan er þó háð ákveðnum fyrirvörum af hálfu kaupenda sem munu skýrast innan mánaðar. Ef af verður mun skipið verða afhent nýjum eigendum á haustmánuðum. Eins og kunnugt...

  • Knattspyrnufélag ÍA óskaði nýverið eftir rekstrarleyfi á Aggapalli fyrir veitingastað í flokki II – E kaffihús. Umsóknin fékk grænt ljós á síðasta fundi bæjarráðs Akraness og þar áður hafði skóla – og frístundaráð samþykkt umsóknina. Í afgreiðslu bæjarráðs kemur m.a. fram að bæjarráð leggi áherslu á að KFÍA gæti vel að því að tryggja ásættanlega...

  • Stefnt er að því að reisa nýtt hús á opnu svæði í Jörundaholti sem mun nýtaast sem húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Þessi nýbygging á að vera á einni hæð og á að falla vel að núverandi byggð. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs sem starfar í umboði bæjarstjórnar. Á þessum fundi var samþykkt að leggja...

  • Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar Akraness, samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa til kynningar skipulagslýsingu vegna mögulegrar breytingar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og deiliskipulags Garðavelli 1 (golfvöllur deiliskipulag) vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar á byggingarreit deiliskipulagsins. Í breytingunni er gert ráð fyrir hótelbyggingu sem mun rísa norðan við Garðavelli, frístundamiðstöðina, sem er við golfvöllinn. Húsið er á...

  • Skipulags – og umhverfisráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við bæjarráð að farið verði í ýmsar aðgerðir til að bæta umferðaröruggi í nokkrum hverfum Akraness. Jón Ólafsson verkefnastjóri lagði fram tillögur um umferðaröryggi í Skógahverfi, Esjubraut og Garðargrund. Tillögur felast m.a. í eftirfarandi: Koma fyrir 30km hellulögðum hliðum í Asparskógum.Merkja 30...

  • Nýverið var tilkynnt hvaða leikmenn skipa 16 ára landslið drengja sem leikur á Norðurlandamótinu 2021. Einn leikmaður úr röðum ÍA er í landsliðinu. Frá þessu er greint á vefsíðu KKÍ. Mótið fer fram dagana 1.-5. ágúst í Kisakallio í Finnlandi. Fimm landslið taka þátt á NM, Finnland, Danmörk, Svíþjóð, Eistland og Noregur. Aðalþjálfari liðsins er...

  • Kvennalið ÍA gerði markalaust jafntefli gegn Haukum í Lengjudeildinni á Íslandsmótinu í knattspyrnu þann 9. júlí s.l. Leikurinn var í 9. umferð Íslandsmótsins en bæði lið eru um miðja deild. Í ítarlegri frásögn frá leiknum á fésbókarsíðu Knattspyrnufélags ÍA kemur fram að leikur ÍA hafi verið sá besti fram til þessa á tímabilinu. Þrátt fyrir...

Loading...