Ný grunnsýning á Byggðasafninu í Görðum var formlega opnuð fimmtudaginn 13. maí 2021. Sýningin ber nafnið „Lífið til sjós, í landi, í vinnu og í leik“ og um næstu helgi verður frítt inn fyrir þá sem vilja kynna sér þessa sýningu nánar. Margar hendur hafa komið að uppsetningu sýningarinnar – en vinnan hefur staðið yfir...
„Í dag uppskerum við og fögnum árangri, Fab Lab smiðja Vesturlands á Akranesi tekur til starfa, staður þar sem sköpunin yfirtekur allt,“ sagði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi í ræðu sinni þegar hann ásamt 23 öðrum skrifuðu undir samstarfssamning um rekstur Fab Lab smiðju Vesturlands á Akranesi, sem verður nokkurs konar móðurstöð fyrir aðrar Fab...
Íslandsmót unglinga í badminton fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu um s.l. helgi en mótið var samstarfsverkefni Badmintonsambands Íslands og Badmintonfélags Akraness. Keppendur voru alls 168 og komu þeir frá 9 félögum víðsvegar af landinu. Tindastóll frá Sauðárkróki var í fyrsta sinn með keppendur á Íslandsmóti unglinga. ÍA var með alls 16 keppendur og var...
Karlalið ÍA mætir liði Stjörnunnar í kvöld, mánudaginn 17. maí, á Norðurálsvellinum í PepsiMax deild karla. Um er að ræða fjórða leik tímabilsins hjá ÍA en liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Víkingum úr Reykjavík á heimavelli 2. umferð á heimavelli. Framherjinn Morten Beck mun einnig vera í leikmannahóp ÍA í fyrsta sinn í kvöld en...
Um 90 keppendur tóku þátt á öðru opna móti tímabilsins hjá Golfklúbbnum Leyni, Opna Bónusmótinu, sem fram fór á Garðavelli laugardaginn 16. maí. Keppt var í punktakeppni með forgjöf og einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skorið. Íslandsmeistarinn í golfi 2020, Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, lék á besta skorinu eða 69 höggum eða þremur höggum undir...
Það var frábær stemmning í Tónbergi miðvikudaginn 12. maí þegar fram fóru vortónleikar Skólakórs Grundaskóla og söngkonunnar Sölku Sólar. Tónleikarnir hafa verið á dagskrá frá því vorið 2020 en ítrekað þurft að fresta þeim vegna Covid ástandsins. Það var því langþráð stund hjá kórfélögum að fá loksins að stíga á svið og syngja fyrir fjölskyldur...
Nú fer að líða að lokum getraunakeppni Tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA sem Einar Brandsson og félagar stýrt með prýði í vetur og vor. Úrslitakeppnin stendur nú sem hæst og eru tvær vikur eftir af tímabilinu. Í úrslitakeppninni eigast við þeir sem náðu bestum árangri á tímabilinu. Örn Gunnarsson og Benedikt Valtýsson voru neðstir og jafnir síðustu...
Fasteignin sem stendur við Suðurgötu 108 á Akranesi verður rifinn og lóðinni verður úthlutað með þeim skilyrðum sem fram koma í skipulagi um Sementsreit. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Akraness. Mannvirkið við Suðurgötu 108 hefur verið mikið til umfjöllunar á undanförnum misserum hjá nefndum og ráðum kaupstaðarins. Húsið hefur verið í söluferli með þeim...
Kvennalið ÍA landaði frábærum 2-1 sigri í kvöld í 2. umferð Lengjudeildarinnar í knattspyrnu gegn liði Augnabliks á Norðurálsvellinum á Akranesi. Sigurinn var afar sætur þar sem að sigurmarkið kom á allra síðustu andartökum leiksins gegn sterku liði Augnabliks sem er systurlið Breiðabliks. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom liði Augnabliks yfir með góðu langskoti strax á...
Leikmenn ÍA í liði 10. flokks karla í körfuknattleik eru komnir alla leið í undanúrslit á Íslandsmótinu í körfuknattleik. Hið efnilega lið Skagamanna lagði Grindavík að velli í 16-liða úrslitum og í 8-liða úrslitum var ÍR úr Reykjavík mótherji ÍA. 10. flokkur er skipaður leikmönnum sem eru að lokaárinu í grunnskóla. Skagamenn sýndu styrk sinn...