Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar Akraness, samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa til kynningar skipulagslýsingu vegna mögulegrar breytingar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og deiliskipulags Garðavelli 1 (golfvöllur deiliskipulag) vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar á byggingarreit deiliskipulagsins. Í breytingunni er gert ráð fyrir hótelbyggingu sem mun rísa norðan við Garðavelli, frístundamiðstöðina, sem er við golfvöllinn. Húsið er á...
Skipulags – og umhverfisráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við bæjarráð að farið verði í ýmsar aðgerðir til að bæta umferðaröruggi í nokkrum hverfum Akraness. Jón Ólafsson verkefnastjóri lagði fram tillögur um umferðaröryggi í Skógahverfi, Esjubraut og Garðargrund. Tillögur felast m.a. í eftirfarandi: Koma fyrir 30km hellulögðum hliðum í Asparskógum.Merkja 30...
Nýverið var tilkynnt hvaða leikmenn skipa 16 ára landslið drengja sem leikur á Norðurlandamótinu 2021. Einn leikmaður úr röðum ÍA er í landsliðinu. Frá þessu er greint á vefsíðu KKÍ. Mótið fer fram dagana 1.-5. ágúst í Kisakallio í Finnlandi. Fimm landslið taka þátt á NM, Finnland, Danmörk, Svíþjóð, Eistland og Noregur. Aðalþjálfari liðsins er...
Kvennalið ÍA gerði markalaust jafntefli gegn Haukum í Lengjudeildinni á Íslandsmótinu í knattspyrnu þann 9. júlí s.l. Leikurinn var í 9. umferð Íslandsmótsins en bæði lið eru um miðja deild. Í ítarlegri frásögn frá leiknum á fésbókarsíðu Knattspyrnufélags ÍA kemur fram að leikur ÍA hafi verið sá besti fram til þessa á tímabilinu. Þrátt fyrir...
Hugo Salgado og Nikola Nedoroscikova taka við þjálfun hjá Körfuknattleiksfélagi ÍA á næstu vikum. Salgado, sem er frá Portúga, tekur við af Bandaríkjamanninum Chaz Franklin, sem hefur gert góða hluti sem þjálfari hjá ÍA á síðustu þremur árum. Nedoroscikova er frá Slóvakíu og mun hún einnig koma að þjálfun hjá félaginu – og þá sérstaklega...
Meistaramót Golfklúbbsins Leynis fór fram dagana 7.-10. júlí á Garðavelli. Þar tóku um 140 keppendur þátt en þetta er í 57. sinn sem Akranesmeistaramótið fer fram. Keppt var í mörgum flokkum en úrslit mótsins má sjá hér fyrir neðan. Hér er myndasyrpa frá mótinu. Elsa og Stefán Akranesmeistarar í golfi 2021 http://localhost:8888/skagafrettir/2021/07/11/elsa-og-stefan-akranesmeistarar-i-golfi-2021/
Meistaramóti Golfklúbbsins Leynis lauk í gær en Akranesmeistaramótið hófst s.l. miðvikudag á Garðavelli. Um 140 keppendur tóku og tókst mótið í alla staði vel á frábærum Garðavelli. Elsa Maren Steinarsdóttir og Stefán Orri Ólafsson fögnuðu sigri í Meistaraflokki og eru því Akranesmeistarar í golfi 2021. Keppt var í mörgum flokkum og eru úrslitin hér fyrir...
Það er mikið um að vera hjá félagsmönnum á öllum aldri í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi þessa dagana. Meistaramót Leynis, eða Akranesmeistaramót 2021, fer fram í þessari viku og í gær lauk keppni hjá yngri kylfingum klúbbsins. Keppni hjá þeim sem eldri eru hófst í gær og lýkur á laugardaginn. Á meistaramóti yngri kylfinga voru...
Rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2021 er hin 13 ára gamla Vigdís Birna en greint var frá valinu á bæjarhátíð Akraness, Írskum dögum, sem fram fóru um liðna helgi. Þetta er í 22. sinn sem þessi keppni fer fram en alls voru 12 sem tóku þátt. Vigdís Birna er 13 ára og býr á Akranesi og á...
Knattspyrnufélagið Kári og Byggingafélagið Upprisa undirrituðu nú á dögunum 3 ára samstarfssamning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kára og Upprisu. Með samningnum verður Byggingafélagið Upprisa aðalstyrktaraðili Kára og mun prýða nýja og glæsilega búninga félagsins. Upprisa vill með þessu styðja það góða og uppbyggilega starf sem Kári hefur unnið að síðustu 10 ár og...