• Von er á tveimur skemmtiferðaskipum í júlímánuði til Akraness – en frá þessu er greint á vef Faxaflóahafna. N.G. Explorer mun koma fimm sinnum til hafnar í Akraneshöfn í júlí. Og N.G. Endurance mun koma einu sinni til hafnar. N.G. Explorer er rétt um 6.500 tonn og er það smíðað árið 1982. Alls er rými...

  • Knattspyrnufélag Akraness hefur samið við þaulreyndan varnarmann frá Hollandi en framundan er hörð barátta hjá liðinu að halda sæti sínu í deild þeirra bestu í PepsiMax deild karla. Í gær gerði ÍA 2-2 jafntefli gegn Keflavík á Norðurálsvellinum. ÍA situr á botni deildarinnar með 6 stig líkt og HK sem er eina liðið sem ÍA...

  • Sundfólk frá Sundfélagi Akraness stóð sig með prýði á Aldursflokkameistaramóti Íslands sem fram fór á Akureyri helgina 25.-27. júní s.l. Á þessu móti eru keppendur á aldrinum 10-17 ára en ÍA var með 16 keppendur. Mótið er bæði keppni á milli liða þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig...

  • Það eru skiptar skoðanir í bæjarráði hvað varðar stöðu Akraneskaupstaðar þegar kemur að þróun rekstrartekna og rekstrargjalda á fyrstu mánuðum ársins 2021. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem er minnihluta í bæjarstjórn lagði fram bókun þar sem flokkurinn ítrekaði enn og aftur áhygggjur sínar af stöðu mála. Í svari meirihluta bæjarstjórnar frá Samfylkingunni og Framsókn kemur m.a. fram...

  • Kjörstaður á Akranesi fyrir Alþingiskosningarnar 2021 þann 23. september 2021 verður í íþróttamannvirkjum á Jaðarsbökkum í stað Brekkubæjarskóla. Ennfremur verður einni kjördeild bætt við samkvæmt tillögu yfirkjörstjórnar. Kjördeildirnar verða því fjórar í stað þriggja eins og verið hefur. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar Akraness, samþykkti á síðasta fundi sínum að kjörstaður á Akranesi vegna Alþingiskosninga 2021...

  • Knattspyrnufélag ÍA hefur óskað eftir rekstrarleyfi á Aggapalli fyrir veitingastað í flokki II – E kaffihús. Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskaði nýveirð eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknarinnar. Bæjarráð samþykkti að vísa erindinu til umsagnar í skóla – og frístundaráði. Veitingastaðir sem eru í flokki II – E kaffihús eru skilgreindir sem umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin...

  • Karlalið ÍA mætir Keflavík í kvöld kl. 19:15 á Norðurálsvellinum á Akranesi. Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik í PepsiMax-deildinni fyrir bæðin liðin. ÍA er með 5 stig eftir 9 umferðir og er í fallsæti eins og HK sem er með 6 stig eftir 10 leiki. Keflavík, sem kom upp úr næst efstu deild...

  • Keppt verður í kassabílarallý á Akranesi í ágúst og verður þetta í fyrsta sinn sem slík keppni fer fram á Skaganum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum keppninnar. Akraneskaupstaður stendur einnig á bak við þetta verkefni og er markmiðið að gera viðburðinn að ógleymanlegri fjölskylduskemmtun. Ekki er búið að ákveða dagsetninguna í ágúst en...

  • Það var hart barist í leik Kára og KR í Akraneshöllinni í fyrrakvöld þegar liðin áttust við í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Leikmenn Kára gáfu sigursælasta liði allra tíma í bikarkeppni KSÍ verðugt verkefni – en Kári var með yfirhöndina í leiknum allt þar til að stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Á lokamínútum leiksins...

  • „Það var virkilega gaman að skoða fyrri uppskriftirnar í þessum flokki þegar ég fékk áskorunina um að taka þátt. Þær eru allar glæsilegar og áhugaverðar. Ég ákvað að breyta aðeins til og vera með tvær trefjaríkar uppskriftir í stað þess að vera með einn aðalrétt,“ segir Elísabet Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari á Höfða sem er „heilsukokkur“ júnímánaðar...

Loading...