Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báðir við sögu í 4-1 sigri Íslands í gær gegn Liechtenstein í undankeppni HM 2022. Leikurinn fór fram í Liechtenstein og var þetta þriðji leikur Íslands í riðlinum og fyrsti sigur Íslands í keppninni. Þetta var í annað sinn sem hinn 18 ára gamli Ísak Bergmann fær...
Bólusetning gegn Covid-19 á Vesturlandi gengur samkvæmt áætlun hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Þetta kemur fram í svari HVE vegna fyrirspurnar frá Skagafréttum. Í dag, 31. mars, fengu einstaklingar 70 ára og eldri á Snæfellsnesi, Hvammstanga og Hólmavík bólusetningu með bóluefninu Astra Zeneca. Um var að ræða 550 skammta og með þessum skömmtum hefur HVE lokið við...
Alls greindust átta Covid-19 smit á Íslandi og voru fimm þeirra ekki í sóttkví. Þetta kemur fram á RÚV og vefnum covid.is. Alls eru 118 einstaklingar á landinu í einangrun vegna Covid-19. Í sóttkví eru alls 405 einstaklingar og fækkar þeim um meira en helming eða úr 972 í 405. Sóttvarnalæknir segir í viðtali á...
Björgunarfélög landsins hafa á undanförnum dögum staðið vaktina á gosstöðvunum við Grindavík – og hafa félagsmenn haft í nógu að snúast. Björgunarfélag Akraness hefur tekið þátt í þessu óvænta verkefni við Geldingadali þar sem að eldgos hefur staðið yfir í rúmlega vikur. Hér má sjá nokkrar myndir sem birtar voru á fésbókarsíðu Björgunarfélags Akraness –...
„Ég er glaður að vera kominn heim í ÍA og hlakka til baráttunnar í sumar með strákunum. Það er spennandi sumar framundan í boltanum og markmiðið ávallt að ÍA verði í fremstu röð,“ segir Skagamaðurinn Þórður Þ. Þórðarson í viðtali á heimasíðu Knattspyrnufélags Akraness. Þórður hefur samið við ÍA á ný eftir að hafa leikið...
Alls greindust 10 einstaklingar með Covid-19 smit í gær og var einn þeirra ekki í sóttkví. Alls eru 109 einstaklingar með Covid-19 smit í einangrun og þar af einn sem er á sjúkrahúsi. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Tæplega 800 einstaklingar eru í sóttkví. Alls eru 32 börn með Covid-19 smit í einangrun og...
Skagamaðurinn Ísólfur Haraldsson er nýr umboðsmaður tónlistarmannsins Bubba Morthens. Þetta kemur fram á Instagram síðu Bubba. Ísólfur segir í samtali við mbl.is að það sé ótrúleg orka í kringum Bubba Morthens, „Ef það er eitthvert eldfjall sem hættir ekki að gjósa er það örugglega Bubbi Morthens,“ segir Ísólfur sem tók við starfinu í desember á...
Akraneskaupstaður mun stóla enn frekar á ráðningakerfið Alfreð þegar kemur að umsóknum um störf hjá atvinnuleitendum. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs á síðasta fundi ráðsins var samþykkt 1,4 milljóna kr. viðbótarframlag vegna afnota-og þjónustugjalda af auglýsinga- og ráðningarkerfinu „ Alfreð“. Alfreð var stofnaður og settur í loftið í febrúar 2013. Síðan 2013 hefur Alfreð...
Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að veita 5 milljónum kr. vegna forhönnunar á C-álmu Grundaskóla. Í bókun ráðsins kemur fram að þessi þáttur sé nauðsynlegur til að unnt sé að áætla með sem bestum hætti heildarkostnað vegna þeirra endurbóta sem þörf verður að ráðast í vegna stöðu loftgæða í Grundaskóla. Eins og áður...
Jafnlaunakerfi hefur verið innleitt í alla starfsemi Akraneskaupstaðar. Í byrjun mars á þessu ári fékk Akraneskaupstaður staðfestingu þess efnis frá Versa vottun ehf. Jafnlaunakerfi hefur verið innleitt í alla starfsemi Akraneskaupstaðar en það er stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunum. Þetta...