Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist innanlands í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á upplýsingavefnum covid.is. Á vef RÚV segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna að enn sé hætta á hópsýkingu – en fjöldi fólks verður skimað á næstu dögum. Eins og áður hefur komið fram greindust tveir einstaklingar utan sóttkvíar með Covis-19 í fyrradag...
Sólveig Kr. Bergmann yfirmaður samskipta hjá Norðuráli skrifar: Rétt fyrir síðustu áramót gerðum við hjá Norðuráli samning við austurríska framleiðslufyrirtækið Hammerer Aluminium Industries um sölu á 150 þúsund tonnum af Natur-Al áli, sem er vistferilsvottað ál með eitt lægsta kolefnisfótspor í heiminum. Innan við fjórðung af heimsmeðaltalinu. Þessi sala er afrakstur vinnu sem staðið hefur...
Alls eru þrír einstaklingar í sóttkví á Vesturlandi en enginn er í einangrun vegna Covid-19 – samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Aðeins einn einstaklingur var í sóttkví í gær, mánudaginn 8. mars, í landshlutanum. Í gær greindust tveir einstaklingar með Covid-19 og voru þeir báðir utan sóttkvíar. Alls eru 16 einstaklingar á landinu í...
Kalman, lista- og menningarfélag á Akranesi, hefur á undanförnum árum staðið fyrir fjölbreyttu menningarlífi á Akranesi. Viðburðir félagsins eru af ýmsu tagi og fyrstu tónleikar ársins 2021 verða miðvikudaginn 10. mars kl. 20 í Vinaminni. Vegna samkomutakmarkana eru aðeins 50 miðar í boði. Á ferðinni verður Jazzkvartett Halla Guðmunds og flytja hann og félagar hans...
Uppsjávarskipin Venus NS og Víkingur AK hafa landað samtals rúmlega 3.800 tonnum af loðnu á Akranesi í marsmánuði – samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu. Rúmlega 650 tonn af hrognum hafa skilað sér í vinnsluna hér á Akranesi samkvæmt vef Fiskistofu. Venus NS landaði 1. og 3. mars. Í fyrri lönduninni var skipið með 440 tonn...
Sigríður Kristinsdóttir vinnur þessa dagana að spennandi verkefni í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi. Sigríður, sem er menntuð í sjávarútvegsfræðum segir í viðtali sem birtist í Bændablaðinu að markmið verkefnisins sé að þróa framleiðshæfar matvælapakkningar úr brúnþörungartegundum. Þróunarverkefni hennar, „matvælaplast úr þörungum“, fékk atvinnu- og nýsköpunarstyrk úr Uppbyggingarsjóði sóknaráætlunar Vesturlands. Matvælaplast sem unnið er með slíkum...
Eins og fram hefur komið hér á Skagafréttir komu upp vandamál við framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum landsins í morgun – og þar á meðal á Akranesi. Um var að ræða próf í íslensku hjá 9. bekk. Um 70 skólar af um 150 á landsvísu lentu í vandræðum með að komast inn í prófgáttina hjá...
Það er um fátt annað rætt í íslensku samfélagi en jarðhræringarnar sem eiga sér stað á Reykjanesi. Jarðskjálftahrinan sem staðið hefur yfir undanfarna daga og vikur hefur ekki farið framhjá íbúum Akraness – og margir öflugir jarðskjálftar hafa fundist hér á Akranesi. Á vef Veðurstofu Íslands er hægt að fylgjast með jarðskjálftamælingum og þjónustan hefur...
Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna og heilsueflingu eldri borgara var nýverið sett af stað. Verkefnið fær 125 milljónir kr. úr ríkissjóði og verður það unnið í samvinnu við sveitarfélög landsins, Landssamband eldri borgara og Íþrótta – og Ólympíusamband Íslands. Aðgerðirnar eru mótaðar af starfshópi um lífskjör og aðbúnað aldraðra, og eru hluti af viðspyrnuáætlun...
Nýverið kom til landsins fyrsti sérsmíðaði vagninn með hjólastólalyftu sem ekur fyrir Strætó á landsbyggðinni. Vagninn er kominn í notkun á leið 57 (Reykjavík-Akureyri) hjá Hópbílum en á þessari leið er ekið í gegnum Akranes. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Vegagerðin gerði kröfu um aðgengi fólks í hjólastólum í útboði landssamgangna sumarið 2020. Krafan...