• Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, á Akranesi hefur fest kaup á Apóteki Ólafsvíkur. Ólafur er frá Ólafsvík og segir hann í færslu á fésbókinni að hann muni taka við rekstrinum á nýársdag 2021. „Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni og leggja mitt af mörkum inn í samfélagið í Snæfellsbæ,“ skrifar Ólafur. Apótek Ólafsvíkur hefur...

  • Alls greindust 52 innanlands með COVID-19 í gær. Tæplega 80% þeirra sem greindust með veiruna voru í sóttkví. Alls eru 26 einstaklingar á sjúkrahúsi vegna veikinda af völdum Covid-19 og þar af eru fjórir á gjörgæslu. Alls voru 1.856 sýni tekin í gær. Á Akranesi eru 13 í einangrun og 15 í sóttkví. Á Vesturlandi...

  • Brynhildur Björg Jónsdóttir, skólastjóri Vallarsels skrifar: Undanfarnir mánuðir hafa verið ótrúlegir og ein stór áskorun í íslensku skólastarfi, þegar allt starf breyttist á einni nóttu. S.l. vetur og vor var talað um fordómalausa tíma en nú er þetta ástand komið til að vera þar til kemur bólefni á markað. Í Vallarseli sem og í öðrum...

  • Akraneskaupstaður fékk á dögunum þriggja mánaða styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til verkefnisins: Ríkidæmi náttúrulegra stranda og tækifæri til aukinnar lýðheilsu „The riches of natural beaches and an opportunity to increase public health“. Góð útivistarsvæði og snerting við náttúruna, er talin lykilatriði þegar kemur að heilsu og vellíðan.  Hugmyndin um að viðvera við sjávarsíðuna sé heilsubætandi, er ekki...

  • Fasteignamarkaðurinn á Akranesi hefur verið líflegur á undanförnum misserum. Fasteignaverð hefur hækkað jafnt og þétt, og hlutfallslega einna mest á Akranesi. Í dag var glæsilegt einbýlishús við Baugalund 12 á Akranesi auglýst til sölu hjá Fasteignasölunni Valfell. Eftir bestu heimildum Skagafrétta er þetta í fyrsta sinn sem  einbýlishús á Akranesi er boðið til sölu á yfir...

  • Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu, veitti í gær verðlaun fyrir stofnanir ársins 2020. Verðlaunin eru veitt út frá niðurstöðum úr stærstu vinnumarkaðskönnun á Íslandi. Skrifstofa Akraneskaupstaðar fékk verðlaun sem „Stofnun ársins 2020“ í flokki stofnana með 50 starfsmenn eða færri. Í febrúar á ári hverju er lögð fyrir félagsmenn Sameykis tvískipt könnun sem snýr að vali...

  • Nýr leikskóli mun rísa í Skógarhverfi á næstu misserum. Gert er ráð fyrir 6 deildum í skólanum með möguleika á að stækka í 8 deildir ef þess gerist þörf. Gera má ráð fyrir að um 150 börn verði á Skógarsel þegar allar 6 deildirnar verða teknar í notkun og verður nýr skóli einn sá fjölmennasti...

  • Verkalýðsfélag Akraness og Norðurál gengu í gær frá nýjum kjarasamningi sem er afturvirkur til 1. janúar 2020. Samningurinn gildir til ársloka 2024. Samningaviðræður hófust fyrir 10 mánuðum. Helsta krafa Verkalýðsfélags Akraness var að tryggja að starfsmenn Norðuráls myndu fá sambærilegar launabreytingar og um var samið í svokölluðum Lífskjarasamningi og það tókst að lokum – segir...

  • Skagamenn komu töluvert við sögu í 2-0 sigri U-21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu karla í dag gegn Lúxemborg. Með sigrinum er Ísland áfram í baráttu um að komast í úrslitakeppni EM. Efsta lið riðilsins fer beint í úrslit EM ásamt einu liði sem nær besta árangri liða sem eru í öðru sæti. Önnur lið...

  • Alls greindust 83 Covid-19 smit á Íslandi í gær og þar af voru 49 í sóttkví. Á Vesturlandi eru 18 í einangrun og þar af 10 á Akranesi. Á Vesturlandi öllu eru 33 í sóttkví og þa af 29 á Akranesi. Nú eru 3.582 staðfest smit hér á landi, 4.296 eru í sóttkví, 22 eru...

Loading...