Bæjarstjórn Akraness fagnar nýrri skýrslu um lagningu Sundabrautar þar sem skýrðir eru helstu valkostir varðandi legu hennar og þverun Kleppsvíkur. Skýrslan er vel unnin og greinargóð og ljóst að hún er góður grunnur fyrir ákvörðunartöku um að hefja undirbúning að lagningu Sundabrautar nú þegar. Þetta kemur fram í bókun sem Bæjarstjórn Akraness sendi frá sér...
Keppendur frá ÍA stóðu sig vel á Unglingameistaramóti TBR sem fram fór um s.l. helgi. Mótið var hluti af alþjóðlega íþróttamótinu, Reykjavík International 2021 – RIG. Alls tóku 12 keppendur þátt frá Badmintonfélagi Akraness – ÍA. Í tilkynningu frá félaginu segir að keppendurnir hafi staðið sig vel, margir leikir unnust, og margar viðureignir voru mjög...
Nemendur við Grundaskóla á Akranesi fengu á dögunum afhenta viðurkenningu vegna áskorunar sem skólinn tók þátt í í Hreyfiviku UMFÍ og Kristals. Um var að ræða brenniboltaáskorun sem Grundaskóli tók þátt í vorið 2020. Margra mánaða töf varð á verðlaunaafhendingunni – af ýmsum ástæðum, svo sem Covid-19 og þeim takmörkunum sem fylgdu í kjölfarið. Auður...
Alls tóku ellefu keppendur frá Sundfélagi Akraness – ÍA, á alþjóðlegu móti, Reykjavík International Games – RIG 2021, en mótið fór fram um s.l. helgi í Laugardalslaug. Eins og áður segir voru alls ellefu keppendur frá ÍA og sýndi keppnishópurinn að þau eru búin að leggja mikið á sig á heimaæfingum á meðan æfingabann stóð...
Nýverið sömdu tveir leikmenn við ÍA á ný og framlengdu samninga sína við félagið. Kvennalið ÍA leikur í næst efstu deild á árinu 2021 – Lengjudeildinni, og er spennandi tímabil framundan. Sandra Ósk Alfreðsdóttir samdi út leiktíðina 2021 og Róberta Lilja Ísólfsdóttir gerði samning til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2022. Róberta Lilja er...
Eiríkur Jónsson skipstjóri á Akurey AK og áhöfn hans fengu mikinn afla af þorski á dögunum – en frá þessu er greint á vef Brims. Ísfisktogarinn er kom til hafnar um miðja síðustu viku með um 180 tonna afla. Eiríkur segir í viðtali á heimasíðu Brims að góð veiði hafi verið víða en Akurey fékk...
Skagamennirnir Þórður Þórðarson og Lúðvík Gunnarsson hafa fengið ný verkefni sem landsliðsþjálfarar hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Töluverðar breytingar hafa orðið á þjálfaramálum hjá KSÍ á undanförnum vikum. Ráðnir hafa verið nýir landsliðsþjálfarar fyrir A karla og kvenna, U21 karla, U19 karla og U15 kvenna. Þórður Þórðarson verður aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs karla ásamt Jörundi Áka Sveinssyni....
Eitt Covid-19 smit hefur greinst á Íslandi síðustu tvo daga. Og þau örfáu smit sem hafa greinst undanfarnar vikur hafa verið einstaklingar í sóttkví – með einni undantekningu. Ísland er nú eina landið í Evrópu sem er „grænt“ í litakóða sóttvarnarstofnunar Evrópu. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, skilaði í dag minnisblaði til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, um næstu...
Karlalið ÍA í knattspyrnu leikur í kvöld til úrslita gegn liði Breiðabliks í Fótbolti.net mótinu. Þessi lið mættust einnig í fyrra í úrslitaleik þessa sama móts – þar sem að ÍA sigraði í eftirminnilegum leik -5:2. Breiðablik hefur verið sigursælt á þessu móti en liðið sigraði síðast árið 2019 en það var jafnframt í fjórða...
Það er nóg um að vera hjá sterkum hópi sjálfboðaliða sem standa að beinum útsendingum á ÍATV. Í dag er boðið upp á tvær beinar útsendingar frá tveimur íþróttagreinum. Sú fyrri verður kl. 17:30 þegar sýnt verður frá leik í 9. flokki karla í körfuknattleik – en þar mætir ÍA liði Njarðvíkur. Þetta verður í...