Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson í samvinnu við Bíóhöllina á Akranesi er þessa stundina að leita aðstoðar landsmanna við úrvinnslu á myndbandi við eitt vinsælasta lagið á Íslandi – „Það bera sig allir vel“. Í tilkynningu frá Helga Björns og Skagamanninum Ísólfi Haralds segir. Nú erum við að fara gera myndband við lagið – Það bera sig...
Tónlistarfólk af Akranesi sýna meistara Bob Dylan heiður úr keilusalnum í kjallara íþróttahússins á Vesturgötu og flytja nýjasta lag kappans nokkrum sinnum. Viðburðurinn verður í beinni útsendingu á ÍATV og hefst hann kl. 15:00. Listamennirnir eru: Gítar: Eddi LárBassi: Sigurþór ÞorgilssonHljómborð: Birgir ÞórissonÁsláttur: Heiðrún Hámundardóttir og Hallgrímur GuðsteinssonFiðla: Lena GunnlaugsdóttirSöngur: Jónína Björg Magnúsdóttir, Gunnar Sturla...
Hugrún geðfræðslufélag hefur sett í loftið vefsíðuna gedfraedsla.is. Félagið sendi eftirfarandi fréttatilkynningu frá sér nýverið. Félagið er rekið í sjálfboðaliðastarfi af háskólanemum og snýr öll starfsemi félagsins að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum um geðheilsu. Á síðunni má nálgast upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði. Nú sem aldrei...
Alls hafa 39 einstaklingar verið greindir með Covid-19 smit á Vesturlandi. Eitt nýtt smit var greint í gær og var það í Borgarnesi. Frá því á mánudag hafa aðeins tvö ný smit verið greint á Vesturlandi. Á Akranesi eru 11 greindir með Covid-19 smit og alls eru 50 í sóttkví á Akranesi. Á Vesturlandi öllu...
Amlóði vill umfram allt að fólk fari í góðu skapi inn í páskana. Hvað sem á gengur 🙂 Skrifar Skagamaðurinn Gunnar Sturla Hervarsson á fésbókarsíðu sína með þessu frumsamda lagi sem hann lagði fram fyrir alþjóð í gær. Hér má sjá og hlusta á lagið hans Gunnars Sturlu sem notar listamannanafnið Amlóði.
Eftirfarandi pistill er frá einstaklingi á Akranesi sem vill bjóða fram krafta sína á Akranesi í ljósi ástandsins sem ríkir hér á landi sem annarsstaðar. Í ljósi ástandsins langar mig að bjóða fram krafta mína í mínu bæjarfélagi. Ég hef reynslu af heimilisofbeldi, bæði hef ég verið þolandi og svo hef ég aðstoðað þolendur við...
Það er ekkert samkomubann á vef Skagafrétta vegna Covid-19 veirunnar. Heimsóknafjöldinn hefur aldrei verið meiri en á undanförnum dögum. Tugir lesenda eru samtímis inni á vefnum að lesa fréttir eins og sjá má á skjáskotunum hér fyrir neðan sem tekin eru úr tölfræði Google Analytics. Heimsóknafjöldinn í gær, miðvikudaginn 8. apríl, var rétt um 4.000...
Alls hafa 38 einstaklingar verið greindir með Covid-19 smit á Vesturlandi. Ekkert nýtt smit var greint í gær á Vesturlandi. Frá því á mánudag hefur aðeins eitt nýtt smit verið greint á Vesturlandi. Á Akranesi eru 11 greindir með Covid-19 smit og alls eru 50 í sóttkví á Akranesi. Á Vesturlandi öllu eru 125 í...
Söngkonan Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir, Gísli J. Guðmundsson rakari og Jón Þór Þórðarson körfuboltakappi slógu upp laufléttum tónleikum í dag á Laugarbrautinni. Tilefnið var einfalt, að gera íbúum í sambýlinu við Laugarbraut glaðan dag í góða veðrinu. Helga Ingibjörg sló svo sannarlega í gegn með þátttöku sinni í Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrir skemmstu – og kunnu íbúarnir...
Skóla- og frístundaráð fjallaði um ljósabekkina sem hafa verið til staðar í búningsklefum Jaðarsbakkalaugar í mörg ár. Sundfélag Akraness sá um rekstur þeirra og var þessi starfsemi stór póstur í tekjuöflun félagsins. Tekjutap félagsins verður samkvæmt heimildum Skagafrétta vel yfir 2 milljónir kr. þegar slökkt verður á ljósabekkjunum fyrir fullt og allt. Skóla – og...