Gamla Kaupfélagið heldur áfram að aðlaga reksturinn að breyttum tímum vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Félagarnir sem reka staðinn hafa tekið þá ákvörðun að einbeita sér alfarið að „Take away þjónustu og heimsendingum“ – allavega fram yfir páskahátíðina. Veitingasalnum hefur því verið lokað tímabundið. Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá Gamla Kaupfélaginu og hér fyrir...
Samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Vesturlandi eru engar skipulagðar íþróttaæfingar í gangi í umdæminu. Borist hafa tilkynningar um að fjöldi barna og ungmenna sé að hittast til þess að spila t.d. fótbolta á sparkvöllum í umdæminu. Lögreglan hvetur foreldra til þess að útskýra fyrir börnum sínum mikilvægi þess að virða nálægðartakmarkanir og fylgja þeim fyrirmælum sem...
Það stefnir allt í það að eitt af þeim verkefnum sem Þróunarfélag Grundartanga hefur unnið að fái 50 milljónir kr. í fjáraukafrumvarpi hjá fjárlaganefnd Alþingis. Um er að ræða verkefnið rafeldsneyti sem notað verður í bifreiðum og í skipum. Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá. Sjá nánar hér á skessuhorn.is Í viðtali á Skessuhorni segir Haraldur Benediktsson,...
Það eru allar líkur á því að bæjaryfirvöld á Akranesi taki þá ákvörðun að flýta tilteknum fjárfestingum og viðhaldsverkefnum vegna COVID-19. Bæjarráð fjallaði um slíka tillögu á fundi sínum í dag – og verður fjárfestinga- og framkvæmdaáætlunar Akraneskaupstaðar 2020-2023 endurskoðuð ef af þessu verður. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir mismunandi...
Árgangur 1982 á Akranesi hefur sett af stað söfnun til þess að styðja við bakið á ungum Skagamanni sem missti móður sína í hörmulegu slysi þann 14. febrúar s.l. Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir, sem var fædd árið 1982, lést í slysinu. Vinir og jafnaldrar Esterar Óskar hafa stofnað söfnunarreikning í formi framtíðarreiknings. Styrkurinn er ætlaður...
„Það er brjálað að gera hjá okkur,“ segir Márus Líndal Hjartarson annar af eigendum Bresabúðar við Kalmansvelli á Akranesi. Finnur Þórðarson starfsmaður verslunarinnar og Márus standa vaktina í Bresabúð flesta daga og þeir hafa svo sannarlega haft í nógu að snúast á undanförnum vikum. „Febrúar var líka mjög góður mánuður hvað varðar sölu og aðsókn,...
Það er nóg um að vera á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni um þessar mundir þrátt fyrir óvenjulegt ástand í þjóðfélaginu. Töluverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á golfvellinum en ný vallarnefnd hefur tekið til starfa. Mesta áherslan í framkvæmdum verður í uppbyggingu og lagfæringu teiga og að fækka glompum Á meðal þeirra verkefna sem bera hæst eru...
Árið 1998 var karlalið ÍA í körfuknattleik í fremstu röð á landsvísu í efstu deild. Tímabilið 1997-1998 endaði ÍA í 8. sæti úrvalsdeildar og lék gegn deildarmeistaraliði Grindavíkur í 1. umferð úrslitakeppninnar. Skagamenn, undir stjórn Alexanders Ermolinskij gerði sér lítið fyrir og lagði Grindavík í 8-liða úrslitum. Það var í fyrsta sinn sem lið í...
Hér er stórskemmtilegt myndband sem unnið var í Brekkubæjarskóla. Þar syngja nemendur og kennarar saman lagið Draumar geta ræst án þess að hittast. Tæknin er nýtt til að koma þessu öllu saman og sá Snorri Kristleifsson um myndvinnsluna en móðir hans, Heiðrún Hámundardóttir kennari er hugmyndasmiðurinn á bak við verkefnið. Jón Jónsson samdi lagið Draumar...
Alls hafa 18 smit af Covid-19 veirunni verið greind á Vesturlandi en alls hafa 1.020 smit verið greind á landinu öllu. Þetta kom fram á fréttamannafundi almannavarna í dag. Lögreglan á Vesturlandi hefur breytt upplýsingagjöf varðandi staðsetningu smita – og er aðeins hægt að fá upplýsingar af vef almannavarna um fjölda smita í hverjum landshluta...