• Jens Heiðar Ragnarsson er nýr slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef Akraneskaupstaðar í dag. Alls bárust 11 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Umsjón með ráðningunni höfðu sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað. Hagvangur veitti ráðgjöf...

  • Það stendur mikið til á næstunni hjá Fasteignasölu Vesturlands á Akranesi. Fyrirtækið hefur verið með skrifstofu á Kirkjubraut 40 s.l. 25 ár. Framundan eru flutningar hjá FastVest en fyrirtækið ætlar ekki að fara langt því nýja skrifstofan verður í rýminu þar sem að tryggingafélagið VÍS var áður með starfsstöð. „Við verðum áfram á Kirkjubraut 40...

  • Karlalið ÍA gerði 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í Akraneshöllinni í fyrsta leiknum á fotbolti.net mótinu í knattspyrnu. Brynjar Snær Pálsson skoraði fyrsta mark leiksins á 25. mínútu en Guðjón Baldvinsson jafnaði fyrir Stjörnuna á 31. mínútu. Steinar Þorsteinsson kom ÍA yfir á 66. mínútu en Hilmar Árni Halldórsson jafnaði fyrir Stjörnuna 80. mínútu.

  • Kvennalið ÍA sigraði Gróttu örugglega í Faxaflóamótinu í knattspyrnu kvenna 6-0 í Akraneshöllinni. María Björk Ómarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins strax á 3. mínútu. Sigrún Eva Sigurðardóttir bætti við öðru marki á 22. mínútu, Bryndís Rún Þórólfsdóttir bætti við þriðja markinu á 47. mínútu. Eva María Jónsdóttir skoraði fjórða markið á 53. mínútu. Erna Björt...

  • Miðasalan fyrir Þorrablót Skagamanna hófst í dag í útibúi Íslandsbanka. Að venju var biðröð við opnun miðasölunnar. Samkvæmt upplýsingum úr innsta kjarna Club 71 sem heldur utan um skipulagið á Þorrablóti Skagamanna fór miðasalan vel af stað. Um 500 miðar hafa nú þegar verið seldir en eftirspurnin eftir miðunum sem eru óseldir er að venju...

  • Útgef­end­ur fjög­urra bæj­armiðla lýsa yfir von­brigðum með þróun fjöl­miðlafrum­varps Lilju Al­freðsdótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, í sam­eig­in­legri um­sögn sem þeir hafa sent frá sér. Skila­frest­ur á um­sögn­um vegna frum­varps til laga um fjöl­miðla renn­ur út í dag. „Við, út­gef­end­ur fjög­urra bæj­armiðla; Hafn­f­irðings, Kópa­vogs­blaðsins, Mos­fell­ings og Skaga­f­rétta, lýs­um yfir von­brigðum okk­ar með þróun fjöl­miðlafrum­varps Lilju Al­freðsdótt­ur, mennta-...

  • Áhöfnin á Bjarna Ólafssyni AK 70 mun á næstunni fara í leiðangur í leit að loðnu í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun. Tvö uppsjávarskip, Bjarni Ólafsson AK 70 og Hákon EA, fara í næstu viku til loðnuleitar ásamt rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni. Ætl­un­in er að ná mæl­ingu á loðnu­stofn­in­um í janú­ar og aft­ur í fyrri hluta fe­brú­ar. Niður­stöðurn­ar...

  • Sundfélag Akraness skorar á bæjaryfirvöld að flýta byggingu 50 metra innilaugar á Akranesi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að aðstaða félagsins sé langt frá því að vera viðunandi og óskiljanlegt að ný sundlaug færist aftur og aftur neðar á forgangslista bæjaryfirvalda á Akranesi. Tilkynningin í heild sinni er hér fyrir neðan. Árið 2019 hefur...

  • Skagamaðurinn Eyleifur Ísak Jóhannesson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð á heimsvísu sem sundþjálfari. „Leifi“ hefur á undanförnum 13 árum þjálfað sundfólk í fremstu röð á heimsvísu hjá danska stórklúbbnum Aalborg Svømmeklub. Í byrjun ársins 2020 gaf Leifi það út að hann hefði sagt starfi sínu lausu og ætlar hann að flytja...

  • „ Til að fyrirbyggja allan miskilning. Þá hefur hækkandi aldur okkar í Club 71 eða dvínandi þrek ekkert með það að gera að við séum að hætta að skipuleggja Þorrablót Akurnesinga,“ segir Bryndís Böðvarsdóttir í léttum tón við Skagafréttir. Eins og margir vita hefur árgangur 1971 á Akranesi eða Club 71 staðið á bak við...

Loading...