Alls sóttu ellefu um starf slökkviliðsstjóra Akraness og Hvalfjarðarsveitar sem auglýst var til umsóknar nýverið. Einn umsækjenda dró umsóknina til baka. Á meðal umsækjenda er ein kona og athygli vekur að fréttamaðurinn Jóhann K. Jóhannsson á Stöð 2 er á meðal umsækjenda. Í hópnum eru að sjálfsögðu þaulreyndir sérfræðingar á þessu sviði. Eftirfarandi aðilar sóttu...
Sjö manna hópur frá Björgunarfélagi Akraness er þessa stundina að aðstoða við leit að unglingspilti sem féll í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði. Pilturinn féll í Núpá þegar hann fékk krapaflóð á sig þegar hann var að aðstoða bónda við að hreinsa krapa frá inntaki á heimarafstöð. Norskir fjölmiðlar hafa fylgst með málinu á undanförnum...
Heilbrigður lífsstíll vefst fyrir mörgum. Það getur verið erfitt að vita hvað á að gera og hvað ekki. Sumir rífa sig upp og fara á kúr en svo fer allt í sama farið aftur fljótlega. Í þessari áhugaverðu fræðslumynd segir Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir Heilsuborgar, frá því að í raun sé þetta ekki svo flókið...
Skipulags – og umhverfisráð hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðið í Kalmansvík. Skipulagið verður auglýst með formlegum hætti á næstunni. Áhugaverðar breytingar á svæðinu eru lagðar til í tillögunni. Og má þar nefna svæði þar sem gert er ráð fyrir nokkrum byggingarreitum fyrir smáhýsi. Einnig er gert ráð fyrir um 300 fermetra þjónustubyggingu....
Pistill þessi er skrifaður árið 2018, ég er búin að gefa mér ár í að hugsa hvort ég ætti að birta þetta. Ég hef látið af störfum sem sjúkraliði því ég læt ekki bjóða mér hvað sem er. Birgitta Þura Birgisdóttir, skrifar. Ég er að skrifa um elsku gamla og „unga“ fólkið okkar sem streðað...
Bæjarstjórn Akraness ætlar að fara að tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga þegar kemur að hækkun á þjónustugjaldskrá Akraneskaupstaðar. Væntanlegar gjaldskrárhækkanir hér á Akranesi taka mið af forsendum lífskjarasamningum aðila almenna vinnumarkaðarins sem undirritaður var 3. apríl síðastliðinn. Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að þjónustugjaldskrár Akraneskaupstaðar hækki um 2,5% þann 1. janúar 2020 nema...
Skortur er á heitu vatni á Akranesi og eru íbúar beðnir um að fara sparlega með heita vatnið. Sundlaugarnar á Akranesi verða lokaðar a.m.k. fram yfir helgi eða þar til Veitur gefa grænt ljós í opnun þeirra aftur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskauptað. Jaðarsbakkalaug, Bjarnalaug og Guðlaug verða því ekki opnaðar fyrr en...
Á fundi bæjarráðs þann 12. desember var samþykkt tillaga vegna umsókna stofnana Akraneskaupstaðar í veikindapott vegna tímabilsins júlí til og með desember. Alls er úthlutað rétt rúmlega 86 milljónum kr. til stofnana Akraneskaupstaðar á árinu 2019 vegna veikindaforfalla starfsmanna en úthlutað var 66,8 mkr. vegna þessa á árinu 2018. En þetta fjármagn er notað í...
Ýmsar viðurkenningar voru veittar á aðalfundi Golfklúbbsins Leynis sem fram fór s.l. þriðjudag. Það má segja að kylfingar á öllum aldri hafi verið heiðraðir, sá elsti er á áttræðisaldri og sá yngsti er enn að bíða eftir bílprófinu. Guðmundar – og Óðinsbikarinn fékk Guðni Örn Jónsson. Hann hefur stutt vel við bakið á barna –...
„Textinn er á alvarlegum nótum en þannig er jú lífið oft á tíðum,“ segir söngkonan Jónína Björg Magnúsdóttir við skagafrettir.is. Jónína Björg gaf nýverið út jólalagið „Stjörnur á himni“ sem hún hefur birt á ýmsum samfélagsmiðlum. Jónína Björg syngur lagið, og spilar hún einnig á gítar. Guðjón Jósef Baldursson er með slagverkið í laginu, Birgir...