Hlynur Sigurdórsson, rafvirkjameistari á Akranesi, var á dögunum ráðinn sem umsjónarmaður fasteigna hjá Hvalfjarðarsveit. Frá þessu er greint á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Á undanförnum tveimur áratugum hefur Hlynur rekið fyrirtækið sitt Rafþjónustu Sigurdórs. Hann seldi fyrirtækið fyrir nokkru síðan. Hlynur hefur þegar hafið störf hjá Hvalfjarðarsveit. Hvalfjarðarsveit varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa...
Nemendur í lífsleikni við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu góða heimsókn á dögunum. Tveir fyrrverandi nemendur FVA sem stunda nú nám í læknisfræði komu í skólann á vegum félagsins Bjargráðs. Læknanemar við Háskóla Íslands stofnuðu félagið á sínum tíma. Markmið félagsins er að efla skyndihjálparkunnáttu nemenda í grunn – og framhaldsskólum landsins. Bergþóra Hallgrímsdóttir og...
Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, hafði heppnina með sér í morgun þegar dregið var í áskriftarleik Morgunblaðsins. Ágústa Elín fær að velja úr þremur gerðum af Toyota Corolla bifreiðum af nýjustu árgerð. Frá þessu er greint á mbl.is. Það er töluverð Skagatenging í þessu öllu saman. Því framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota...
Breytingar verða á þjálfarateymi Kára á næstu leiktíð. Félagið auglýsir eftir aðalþjálfara en þetta kemur fram á fésbókarsíðu Kára. Knattspyrnufélagið Kári leikur í 2. deild Íslandsmótsins í karlaflokki en liðið endaði í 10. sæti deildarinnar. Ingimar Elí Hlynsson tók við þjálfun liðsins um mitt tímabil en Lúðvík Gunnarsson og Sigurður Jónsson hafa einnig komið að...
Tæknimessa fór fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í byrjun október. Þangað lögðu um 700 grunnskólanemar frá öllu Vesturlandi leið sína. Á Tæknimessunni fór fram kynning hjá FVA á iðnámsbrautum skólans. Þar að auki kynntu öflug iðn – og hátæknifyrirtæki á Vesturlandi starfssemi sína. Heiðar Mar Björnsson, kvikmyndagerðarmaður á Akranesi, var með kynningu á sínu...
„Þessir tónleikar eru sérstök upplifun fyrir okkur og áheyrendur. Í raun erum við að taka gestina með okkur aftur í tímann. Við erum bara með einn gamlan hljóðnema eins og tíðkaðist hér á árum áður. Að mínu mati eru tónleikarnir kjörið tækifæri fyrir Skagamenn að slökkva á símanum, vera á staðnum og njóta þess að...
Eins og fram hefur komið stendur mikið til þann 1. nóvember á Akranesi þegar tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI fer fram í fyrsta sinn. Bæjarráð Akraness fjallaði um tónlistarhátíðina á síðasta fundi sínum. Þar var erindi frá menningar – og safnanefnd um tónlistarhátíðina HEIMA-SKAGI tekið fyrir. Á fundinum var samþykkt að styrkja tónlistarhátiðina samtals að fjárhæð kr 450.000....
Arnór Sigurðsson, fyrrum leikmaður ÍA, skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í kvöld á Laugardalsvelli. Skagamaðurinn kom liði Íslands yfir gegn Andorra í undankeppni Evrópumóts landsliða á 38. mínútu. Eins og áður segir er þetta fyrsta A-landsliðsmark Arnórs en hann er tvítugur og er að leika sinn sjötta landsleik. Arnór Sigurðsson er búinn að koma Íslandi 1-0...
Menningar- og safnanefnd Akraness leggur til að samið verði við Vini hallarinnar ehf. um rekstur og umsjón Bíóhallarinnar. Bæjarráð Akraness fjallaði um tillöguna á síðasta fundi sínum. Þar var samþykkt að ganga til samninga við Vini hallarinnar ehf. Rekstur Bíóhallarinnar hefur verið í höndum Vina hallarinnar á undanförnum árum undir dyggri stjórn Ísólfs Haraldssonar. Þess...
Guðlaugin nýtur mikilla vinsælda og á góðviðrisdögum eru gríðarlega margir leggja leið sína á Langasand til þess að upplifa þá kosti sem þetta svæði hefur upp á að bjóða. Um s.l. helgi fór einn gestur alla leið í því að upplifa náttúruna samkvæmt heimildum Skagafrétta. Gesturinn stakk sér til sunds við Langasand. Hann laumaði sér...