Akranesmeistaramótið í sundi fór fram í blíðskaparveðri í Jaðarsbakkalaug í gær, miðvikudaginn 10. október. Fjölmargir áhorfendur fylgdust með og var góð stemning á meðan mótið fór fram. Alls tóku 28 keppendur þátt og voru þeir allir 11 ára eða eldri. Mótið var vel heppnað og í mótslok komu keppendur saman í hátíðarsal ÍA þar sem...
Næring og hollar matarvenjur er eitthvað sem allir vilja tileinka sér. Það eru ekki allir sem ná tökum á því en forráðamenn CrossFit Ægir á Akranesi ætla að beina Skagamönnum í rétta átt með áhugaverðum fyrirlestri sem fram fer í kvöld, fimmtudaginn 10. okt. María Rún Þorsteinsdóttir, eigandi og þjálfari CrossFit Hengils, mætir á Akranes...
Bíóhöllin á Akranesi er að margra mati eitt besta tónleikahús landsins. Það sannaðist enn og aftur í sumar þegar ein þekktasta hljómsveit landsins, Hjálmar, héldu þar stórtónleika laugardaginn 29. júní. Hljómsveitin Hjálmar fór vítt og breitt um landið s.l. sumar á tónleikaferðalagi sveitarinnar sem bar nafnið Afturábak. Þar léku þeir á 15 stöðum víðsvegar um...
Umsókn Faxaflóahafna um framkvæmdaleyfi vegna aðalhafnargarðar Akraneshafnar var samþykkt á fundir bæjarstjórnar Akraness í gær. Framkvæmdirnar sem um ræðir er framlenging á hafnarbakka, dýpkun hafnar, framlengingu á brimvarnargarði og öldudeyfingu. Fyrir staðkunnuga þá er um að ræða endurbætur við endann á „stóru bryggjunni“ í Akraneshöfn. Á næstunni verður fyrsti hluti boðinn út, en það er...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson, sem leikur sem atvinnumaður hjá CSKA í Moskvu, er fjórði verðmætasti leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Þetta kemur fram í samantekt vefsíðunnar Transfermarkt. DV greindi fyrst frá. Nánar hér. Að mati Transfermarkt er verðmæti hins tvítuga Skagamanns rétt tæplega einn milljarður kr. eða 960 milljónir kr. (6,3 milljónir punda). Arnór er staddur...
Þingvangur ehf. hefur á undanförnum misserum unnið að því að byggja 10 hæða fjölbýlishús við Stillholt. Þakíbúðirnar vekja mikla athygli en tvær íbúðir eru á efstu hæð. Sú stærri er 190 fermetrar en hin íbúðin er 170 fermetrar. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um 170 fm. þakíbúðina. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um 190 fm....
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson heldur sigurgöngu sinn áfram sem þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Ísland sigraði Lettland 6-0 á útivelli í dag. Þrátt fyrir stórsigur hafði Jón Þór eitthvað við dómgæsluna að athuga – og fékk hann að líta rauða spjaldið í stöðunni 4-0.Leikurinn var hluti af undankeppni EM 2021. Ísland hefur unnið alla þrjá...
„Ég er í hópnum sem hefur staðið fyrir sambærilegri hátíð í Hafnarfirði. Frá því að við fjölskyldan fluttum á Akranesi fyrir tveimur árum hef ég velt því fyrir mér hvort hægt væri að gera eitthvað svipað hér á Akranesi. Ég ræddi þessa hugmynd við Hlédísi Sveinsdóttur. Eftir það spjall var ákveðið að kýla bara á...
ÍA á tvo fulltrúa í landsliðshópum Sundsambands Íslands fyrir haustið 2019. Þetta kemur fram á vef sambandsins. Brynhildur er í B-landsliðshópnum og Guðbjörg Bjartey er í unglingalandsliðshóp. Alls eru 39 í landsliðshópunum sem Sundsambandið hefur tilkynnt. Alls eru 7 í A-landsliðshópnum. Alls eru 19 í B-landsliðshópnum. Alls eru 13 í unglingalandsliðshópnum.
Hákon Arnar Haraldsson, fyrrum leikmaður ÍA, er í U-17 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í undankeppni EM 2020. Hákon Arnar er leikmaður FCK í Kaupmannahöfn en hann er fæddur árið 2003. Leikirnir hjá Íslandi fara fram dagana 22.-28. október í Skotlandi. Mótherjar Íslands eru Skotland, Króatía og Armenía. Hópurinn er þannig skipaður: Anton Logi...