Klifuríþróttin hefur vaxið gríðarlega á Akranesi á undanförnum misserum undir öflugri stjórn Þórðar Sævarssonar og Valgerðar Jónsdóttur á Smiðjuloftinu. Á laugardaginn var Smiðjuloftið troðfullt af keppendum, foreldrum og þjálfurum þegar Íslandsmótið í línuklifri fór fram í aðstöðu Smiðjuloftsins við Smiðjuvelli á Akranesi. Sjö kepepndur frá ÍA tóku þátt og gerðu þau öll sitt besta í...
Lokahóf Káramanna fór fram í kvöld eftir lokaumferðina í 2. deild karla í knattspyrnu. Kári endaði í 10. sæti en liðið tapaði 2-0 gegn liði Selfoss í lokaumferðinni í Akraneshöllinni í dag. Alls komu 41 leikmenn við sögu hjá Kára á leiktíðinni- en liðið náði að tryggja tilverurétt sinn í 2. deild karla með góðum...
Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson hefur endurnýjað samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA. Samningurinn gildir út árið 2021 og er því til tveggja ára. Árni Snær Ólafsson og Magnús Guðmundsson formaður KFÍA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KFÍA. Árni Snær er fæddur árið 1991 og hefur spilað 150 deildar- og bikarleiki með ÍA. Hann á jafnframt...
Farsímar verða bannaðir hjá nemendum í Grundaskóla á Akranesi frá og með mánudeginum 23. september. Þetta kemur fram í bréfi sem Flosi Einarsson aðstoðarskólastjóri sendi í dag á foreldra og forráðamenn barna í Grundaskóla. Í bréfinu kemur fram að nemendur hafi ekki virt þær reglur sem settar voru um notkun farsíma Grundaskóla – og meirihluti...
Flottasti línuveggur landsins er á Smiðjuloftinu á Akranesi og þar af leiðandi verður Íslandsmeistaramótið í línuklifri haldið samhliða Smiðjumeistaranum sem fram fer á laugardaginn. Smiðjuloftið og Klifurfélag ÍA hefja klifurveturinn með þessu stórmóti. Klifrað verður í fjórum flokkum karla og kvenna;Flokkur C: 2006-2007 kl. 13.00-15.00* Flokkur B: 2005-2004 kl. 15.30-17.00* Opinn flokkur (flokkur A og...
„Lagið varð til á námskeiði hjá Söngsteypunni sem ég var á síðasta vetur,“ segir tónlistarkonan Jóna Alla Axelsdóttir í samtali við Skagafréttir. Jóna Alla gaf út nýtt lag í gær og er hún afar ánægð með viðtökurnar. „Ég er ofsalega glöð að hafa loksins komið þessu í verk, þetta er mikið og langt ferli að...
Jón Þór Hauksson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna fyrir tvö næstu verkefni liðsins. Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður Vals, er að sjálfsögðu í hópnum en Skagakonan er í stóru hlutverki í landsliðinu sem Jón Þór þjálfar. Ísland mætir Frakklandi í vináttuleik þann 4. október í Nimes. Leikurinn er undirbúningur fyrir leik gegn Lettlandi þann...
Frístundamiðstöðin við golfvöllinn á Akranesi fær á næstunni formlegt nafn. Mannvirkið var tekið í notkun í maí á þessu ári, aðeins rúmlega ári eftir að framkvæmdir hófust við bygginguna. Frá því að verkefnið fór af stað hefur nafnið „Frístundamiðstöð“ verið notað um bygginguna. Það mun breytast á næstunni og mun mannvirkið fá formlegt nafn. Bæjarráð...
Skagamaðurinn Ársæll Þór Bjarnason og eiginkona hans Kamilla Sveinsdóttir hafa vakið mikla athygli fyrir gott gengi heildsölunnar Core ehf. sem er í þeirra eigu. Fyrirtækið hefur á undanförnum 20 árum vaxið jafnt og þétt, en árið 2018 var ævintýralegur vöxtur hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins. Core ehf hagnaðist um tæplega 200 milljónir...
Leikmenn ÍA/Kára og Skallagríms fögnuðu nýverið Íslandsmeistaratitlinum í keppni í 2. flokki karla í knattspyrnu í keppni A og B liða. A-liðið varði Íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra. Þetta sigursæla lið, ÍA/Kára og Skallagríms tók stórt skref í áttina að bikarmeistaratitlinum í kvöld þegar liðið lagði KA á Akureyri í undanúrslitum bikarkeppni 2. flokks. Lokatölur í...