Sala á miðum fyrir HEIMA-SKAGA tónlistarhátíðina gengur framar vonum – en aðeins eru um 100 miðar eftir í forsölunni. Smelltu hér til að kaupa miða: Það ríkir mikil eftirvænting hjá starfsmönnum Blikksmiðju Guðmundar vegna HEIMA-SKAGA tónlistarhátíðarinnar. Fyrirtækið er eini bakhjarl hátíðarinnar úr einkageiranum en Akraneskaupstaður styður einnig við bakið á hátíðinni. Frá vinstri: Hlédís Sveinsdóttir...
Það er aðeins bjartara yfir stöðunni á fiskvinnslunni Ísfiskur á Akranesi eftir að Byggðastofnun tók lánsumsókn fyrirtækisins fyrir. Fyrstu niðurstöður eru að umsóknin fékk jákvæða afgreiðslu. Frá þessu er greint á vef héraðsfréttablaðsins Skessuhorns. Albert Svavarsson framkvæmdastjóri Ísfisks segir í samtali við Skessuhorn að fyrirtækið þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði og næstu vikur verði notaðar...
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru í óðaönn að skipuleggja tónlistarhátíðina HEIMA-SKAGI sem fram fer 1. nóvember – samhliða Vökudögum á Akranesi Eins og áður hefur komið fram er tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI ný af nálinni hér á Akranesi, en fyrirmyndin er sótt í Hafnarfjörð og til Færeyja. Ólafur Páll og Hlédís útskýra HEIMA-SKAGA hátíðina með...
Sigurður Jónsson verður áfram í herbúðum ÍA sem þjálfari en hann tekur við nýju starfi hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Sigurður hefur á undanförnum vikum verið orðaður við fjölmörg lið en í dag var greint frá ráðningu hans sem afreksþjálfara KFÍA. Með starfi afreksþjálfara vill KFÍA leggja enn meiri áherslu á afreksþjálfun og enginn er betur til...
Keppnistímabilinu í Pepsi-Max deild karla 2019 er lokið. Karlalið ÍA verður áfram í deild þeirra bestu á næsta tímabili og nýtt undirbúningstímabil hefst áður en langt um líður. ÍA var áberandi á samfélagsmiðlum á timabilinu þar sem að hreyfimyndir af fögnum leikmanna vöktu talsverða athygli. Mikil vinna var lögð í verkefnið þar sem að Heiðar...
Í kvöld fer fram góðgerðar/fjáröflunarkvöld Zonta kvenna en það er Zontaklúbburinn Ugla á Akranesi og Zontaklúbbur Borgarfjarðar sem standa sameiginlega að þessum viðburði sem fram fer í nýrri Frístundamiðstöð við golfvöllinn á Akranesi. Zonta eru félagssamtök kvenna sem hafa ákveðið að leggja sitt af mörkum til að bæta stöðu kvenna um heim allan sem og...
Hlynur Sigurdórsson, rafvirkjameistari á Akranesi, var á dögunum ráðinn sem umsjónarmaður fasteigna hjá Hvalfjarðarsveit. Frá þessu er greint á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Á undanförnum tveimur áratugum hefur Hlynur rekið fyrirtækið sitt Rafþjónustu Sigurdórs. Hann seldi fyrirtækið fyrir nokkru síðan. Hlynur hefur þegar hafið störf hjá Hvalfjarðarsveit. Hvalfjarðarsveit varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa...
Nemendur í lífsleikni við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu góða heimsókn á dögunum. Tveir fyrrverandi nemendur FVA sem stunda nú nám í læknisfræði komu í skólann á vegum félagsins Bjargráðs. Læknanemar við Háskóla Íslands stofnuðu félagið á sínum tíma. Markmið félagsins er að efla skyndihjálparkunnáttu nemenda í grunn – og framhaldsskólum landsins. Bergþóra Hallgrímsdóttir og...
Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, hafði heppnina með sér í morgun þegar dregið var í áskriftarleik Morgunblaðsins. Ágústa Elín fær að velja úr þremur gerðum af Toyota Corolla bifreiðum af nýjustu árgerð. Frá þessu er greint á mbl.is. Það er töluverð Skagatenging í þessu öllu saman. Því framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota...
Breytingar verða á þjálfarateymi Kára á næstu leiktíð. Félagið auglýsir eftir aðalþjálfara en þetta kemur fram á fésbókarsíðu Kára. Knattspyrnufélagið Kári leikur í 2. deild Íslandsmótsins í karlaflokki en liðið endaði í 10. sæti deildarinnar. Ingimar Elí Hlynsson tók við þjálfun liðsins um mitt tímabil en Lúðvík Gunnarsson og Sigurður Jónsson hafa einnig komið að...