Skagamaðurinn Eiríkur Jónsson er skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK sem er í eigu HB Granda. Eiríkur og áhöfn hans lönduðu um 130 tonnum af afla á Sauðárkróki nýverið og er aflanum ekið suður yfir heiðar til vinnslu í Reykjavík. Í viðtali á heimasíðu HB Granda segir Eiríkur að lítið sem ekkert æti sé fyrir þorskinn...
Þórður Þorsteinn Þórðarson hefur ákveðið að yfirgefa ÍA að svo stöddu og hefur félagið komist að samkomulagi að ljúka samningi hans við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KFÍA. „Eftir miklar vangaveltur höfum ég og Knattspyrnufélag ÍA ákveðið að nú skilji leiðir. Ég skil sáttur við klúbbinn minn þar sem ég hef alist upp...
Unnar Þór Garðarsson og Aron Ýmir Pétursson taka við sem þjálfarar hjá kvennaliði ÍA knattspyrnu. Frá þessu var greint á heimasíðu KFÍA í kvöld. Þeir taka við starfinu af Helenu Ólafsdóttur og Anítu Lísu Svansdóttur, sem hættu störfum nýverið. Unnar Þór hefur víðtæka reynslu sem þjálfari m.a. hjá Völsungi á Húsavík þar sem hann starfaði...
Þorgeir Hafsteinn Jónsson, fjármálastjóri Akraneskaupstaðar, er á meðal 16 umsækjenda um starf fjármálastjóra Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Þorgeir Hafsteinn Jónsson hefur starfað fjármálastjóri Akraneskaupstaðar frá því í lok ársins 2016. Umsækjendur um starf fjármálastjóra Reykjanesbæjar eru: Bjarnólfur LárussonBrynja Blanda BrynleifsdóttirEinar SímonarsonGuðmundur KjartanssonGunnsteinn R. ÓmarssonHarpa Björg SævarsdóttirHlynur SigursveinssonHúni HúnfjörðKarítas HäslerMagnús Björgvin JóhannessonRegína Fanný...
„Ég get varla lýst þeirri ánægju sem þessi árangur hefur gefið mér og mínu fólki. Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir mig, gefur mér byr í seglin til að halda áfram,“ segir Rúnar Þór Gunnarsson sem landaði sínum fjórða Íslandsmeistaratitli í bogfimi nýverið. Rúnar, sem er fæddur árið 1968, fagnaði Íslandsmeistaratitli í trissuboga um liðna...
Andri Snær Axelsson náði frábærum árangri á Ólympíuleikunum í stærðfræði sem fram fóru í Bath á Englandi nýverið. Skagamaðurinn var í sterku liði Íslands en árangur liðsins var góður. Andri Snær og Vigdís Gunnarsdóttir fengu bæði heiðursviðurkenningu. Þau náðu fullu húsi fyrir dæmi sem lögð voru fyrir keppendur. Andri Snær og félagar hans í liðinu...
Torfærukeppnin sem fram fór við Akrafjall nýverið vekur athygli á heimsvísu. Frá þessu er greint á vefnum Sunnlenska. Haukur Viðar Einarsson sýndi þar tilþrif sem kunnugir segja að séu í hópi bestu tilþrifa allra tíma í torfærukeppni á Íslandi. Myndbandið sem er hér fyrir neðan frá G-Media segir allt sem segja þarf um þessi tilþrif.
Arnór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark fyrir CSKA Moskvu í dag í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þetta var fyrsti sigur CSKA í deildinni en mótherjinn var lið Orenburg og var þetta 2. umferð úrvalsdeildarinnar. Markið skoraði Arnór á 38. mínútu. Myndbandið hér fyrir neðan segir allt sem segja þarf um markið sem var stórkostlegt. Fyrsta deildarmark...
Skerpt verður á undirbúningi fyrir bæjarhátíðina Írska daga á Akranesi á næstar ári. Og þá sérstaklega því sem snýr að Lopapeysuballinu. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness. Ísólfur Haraldsson, sem hefur séð um að skipuleggja viðburðinn Lopapeysuna mætti á fundinn þar sem að farið var yfir framkvæmd Írskra daga. Niðurstaða fundarins var að skerpa...
Sigurður Arnar Sigurðsson, stuðningsmaður ÍA, og skólastjóri Grundaskóla á Akranesi skrifaði áhugaverðan pistil á heimasíðu Knattspyrnufélagsins. Þar hvetur Sigurður Arnar Skagamenn til þess að sýna kvennaliði ÍA stuðning í verki – en mikið hefur gengið á hjá hinu unga liði á undanförnum vikum. ÍA mætir liði Tindastóls í dag á Akranesvelli kl. 18:00 í Inkasso-deild...