Það er óhætt að segja að allt stefni í aðsóknarmet þegar Brekkusöngurinn verður keyrður í gang af Ingó Veðurguð kl. 22:00 í kvöld. Veðrið er engu líkt og stemningin í bænum á Írskum dögum 2019 stórkostleg. Hér fyrir neðan má sjá myndasyrpu frá Brekkusöngnum í fyrra sem Mummi Lú tók.
Skagamenn eru áberandi stór hluti af liðinu Team Rynkeby sem hefur á undanförnum dögum hjólað frá Danmörku í áttina að París í Frakklandi. Markmiðið er að safna fé til styrktar krabbameinssjúkum börnum og hefur söfnunin gengið vel að venju. Hópurinn kemur í mark á morgun, laugardaginn 6. júlí. Frá vinstri: Guðmundur, Guðrún, Lilja. Svanborg, Dóra...
Vinkonurnar Stefanía Líf Viðarsdóttir og Ásdís Hekla Kristjánsdóttir ætla að endurtaka leikinn og opna aftur ísbúð á milli Víðigrundar 7 og 9 og bjóða upp á ítalskan kúluís. „Í fyrra fannst okkur vanta alvöru ísbúð hér á Skaganum og miða við þau viðbrögðin sem ísbúðin fékk þá, er klárlega viðskiptatækifæri fyrir hágæða ísbúð hér á...
Írskir dagar 2019 hófust með formlegum hætti í dag við Stjórnsýsluhúsið á Akranesi. Þar stigu Sveppi og Villi Naglbítur á stokk og skemmtu yngstu kynslóðinni. Hér má sjá brot frá tónleikunum sem fram fóru í talsverðri úrkomu eins og sjá má.
Það styttist í stærstu tónlistarveislu ársins á Akranesi. Lopapeysan 2019 hefur slegið öll fyrri met hvað forsölu varðar. Dagskráin er engu lík, tónlistarveisla allt kvöldið fyrir alla aldurshópa. Miðar á Lopapeysuna 2019 renna út eins og heitar lummur – og trónir tónlistarveislan á toppi metsölulistans á midi.is. Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband frá Ísólfi...
Það eru margir sem aka Innnes-veginn til og frá Akranesi á hverjum einasta degi. Vegamótin eru vel merkt þar sem að Akrafjallsvegur og Innnesvegur mætast með vegaskilti 503. Nýverið fékk ritstjórn Skagafrétta ábendingu um að einhver hefði breytt merkingunni á Innnesvegi 503 skiltinu sem er við vegamótin á Akrafjallsvegi og Innnesvegi. Þar stendur einfaldlega Hannes....
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður á Akranesi, er hér í skemmtilegu og áhugaverðu viðtali á sjónvarpsstöðinni N4. Viðtalið var í þættinum Að Vestan, sem Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir standa að framleiðslunni á þessari þáttaröð. Dýrfinna hefur fengið fjölda verðlauna fyrir skartgripi sína. Hún er fædd á Ísafirði en hefur kryddað mannlífið með ýmsum hætti á...
Tryggvi Hrafn Haraldsson framherji ÍA er í úrvalsliði umferða 1.-11. hjá fótboltafréttavefnum fotbolti.net. Óttar Bjarni Guðmundsson og Stefán Teitur Þórðarson eru á varamannabekknum í þessu úrvalsliði sem birt var í dag. Skagamaðurinn Arnþór Ingi Kristinsson, sem hefur komið sterkur inn í byrjunarlið KR, er einnig í 16 manna hópnum hjá fotbolti.net. Tryggvi Hrafn Haraldsson –...
Eydís Líndal Finnbogadóttir frá Akranesi er nýr forstjóri Landmælinga Íslands. Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Eydísi í embætti forstjóra Landmælinga Íslands til næstu fimm ára. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Eydís hefur starfað hjá Landmælingum Íslands frá árinu 1999, síðast sem forstöðumaður yfir fagsviði miðlunar og grunngerðar og sem settur forstjóri frá september 2018....
Opin kvennamót hafa ávallt notið vinsælda hjá Golfklúbbnum Leyni. Kllúbburinn var á meðal frumkvöðla á sínum tíma að setja á laggirnar golfmót sem voru sérstaklega ætluð fyrir konur – og má þar nefna að Akraprjónsmótið í því samhengi. Um s.l. helgi tóku rúmlega 120 konur þátt á Opna Helena Rubinstein mótinu sem fram fór laugardaginn...