Knattspyrnumaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er á förum frá ÍA en hann hefur samið við danska meistaraliðið FCK í Kaupmannahöfn. Hákon Arnar er fæddur árið 2003 og lauk hann grunnskólanámi s.l. vor. Hákon Arnar hefur farið í nokkur skipti til FCK til að skoða aðstæður og æfa með félaginu. Hann verður í unglinga-akademíu félagsins fyrst um...
Starfsfólk Grundaskóla fékk þakklætisvott frá Knattspyrnufélagi ÍA fyrir frábært starf og mikla sjálfboðavinnu við Norðurálsmótið í knattspyrnu. Grundaskóli og starfsmenn hans hafa frá upphafi 1985 eða í heil þrjátíu og fjögur ár verið dyggir stuðnings- og samstarfsaðilar í þessu verkefni. Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri Grundaskóla, tók við gjöfinni sem Sigurður Þór Sigursteinsson framkvæmdastjóri KFÍA afhenti...
Jóhanna Ólafsdóttir, ljósmóðir frá Akranesi, vann að áhugaverðu meistaraverkefni við Háskólann á Akureyri. Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri heldur árlega ráðstefnuna Sjónaukann. Þar kynnti Jóhanna Ólafsdóttir helstu niðurstöður rannsóknar sinnar.Jóhanna, sem er ljósmóðir, tók viðtöl við ljósmæður sem höfðu hætt eftir áföll í starfi. Niðurstöðurnar eru áhugaverðar en Jóhanna fer yfir helstu atriðin í þessu áhugaverða...
Norðurálsmótið fór í alla staði vel fram á Akranesi um s.l. helgi. Keppendur voru rúmlega 1500 og komu þeir frá 37 félögum víðsvegar af landinu. Hér má sjá stutta samantekt frá mótinu sem birt var á fésbókarsíðu Norðuráls.
Niðurrif mannvirkja á sementsreitnum er nánast lokið og framundan er mikið uppbyggingartímabil á þessu svæði. Ýmsar hugmyndir hafa verið viðraðar í þessu samhengi en ekkert hefur verið ákveðið enn sem komið er. Einhver hreyfing er á málinu hjá bæjaryfirvöldum. Stefnt er að því að ráða verkefnisstjóra sem mun sjá um að stýra því ferli sem...
Aron Kristófer Lárusson er nýr leikmaður ÍA samkvæmt frétt sem birt var á fotbolti.net í dag. Hjörvar Hafliðason, sparksérfræðingur Stöðvar 2, greindi frá þessu fyrstu manna á Twitter. Aron Kristófer er tvítugur, fæddur árið 1998, og hefur leikið rúmlega 40 leiki í Inkasso-deildinni með Þór frá Akureyri. Hann lék með Völsungi í 2. deildinni í...
Prúðasta liðið, Aldursflokkameistari og mjög góðar bætingar um helgina. Skagamenn létu að sér kveða í sundíþróttinni um liðna helgi á Aldursflokkameistaramóti Íslands sem fram fór í Reykjanesbæ. Mótið er bæði keppni á milli liða þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir....
Sjálfboðaliðarnir hjá ÍATV halda áfram að toppa sjálfa sig. Í dag er boðið upp á beina útsendingu frá einum velli á hinu fjölmenna Norðurálsmóti sem fer fram þessa stundina á Akranesi. Útsendingin er hér fyrir neðan.
Það var mikill fögnuður í gær þegar leikmenn Kára fögnuðu langþráðum sigri í 2. deild karla í knattspyrnu. Káramenn lönduðu 5-0 sigri á heimavelli í Akraneshöllinni gegn gestunum í Garðabæ. Kári hefur á undanförnum vikum sogast niður í fallbaráttuna og þrátt fyrir sigurinn er Kári í næst neðsta sæti deildarinnar. Mörk Kára skoruðu: (upplýsingar frá...
Aron Elvar Dagsson fær tækifæri til þess að sýna sig og sanna með U-15 ára landsliði Íslands í körfubolta á næstunni. Skagamaðurinn er í U-15 ára landsliði Íslands sem tekur þátt á boðsmóti í Danmörku sem kallast COPENHAGEN-INVITATIONAL. Mótið fer fram í Farum rétt utan við höfuðborg Danaveldis. Aron Elvar hefur á undanförnum árum og...