Eva Björk Ægisdóttir fékk mikla athygli fyrir fyrstu skáldsöguna sem hún skrifaði og gaf út í fyrra. Marrið í stiganum fékk spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn sem afhent voru í fyrravor. Bókin hefur fengið frábæra dóma og vakið mikla athygli. Eva Björk var nýverið í viðtali hjá Hallgrími Thorsteinssyni – þar sem að hún segir frá hvernig sagan...
Guðjón Þórðarson hefur farið vel af stað sem þjálfari knattspyrnuliðsins NSÍ í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Skagamaðurinn er með lið sitt í toppbaráttunni í „Betri deildinni“ eins og úrvalsdeildin kallast í Færeyjum. NSÍ er í öðru sæti deildarinnar eftir 11 umferðir. Heimir Guðjónsson, fyrrum lærisveinn Guðjóns hjá KR, er þjálfari HB sem er í fimmta...
Skagamaðurinn Hjalti Sigurbjörnsson skráir sögu Akraness úr lofti flesta daga ársins. Hjalti var á ferðinni með drónann hátt yfir Norðurálsvelli þegar ÍA lagði Stjörnuna 2-0 í PepsiMax-deild karla s.l. sunnudag. Þar fangaði hann stemninguna hjá tæplega 1.800 áhorfendum sem mættu á leikinn. Myndbandið segir allt sem segja þarf.
Atli Teitur Brynjarsson hlaut viðurkenningu Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2019. Atli Teitur var í hópi 74 nemenda sem útskrifuðust frá FVA um s.l. helgi. Frá þessu er greint á vef FVA. Eftirtaldir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gáfu...
Framkvæmdir við Kalmanstorg og Esjubraut hófust í dag 27. maí. Töluverð röskun verður á svæðinu en skipt verður um jarðveg og yfirborð götunnar verður endurnýjað. Framkvæmdinni verður skipt upp í tvo hluta. Áætluð verklok eru í september 2019 á fyrri hlutanum og í nóvember 2019 á síðari hlutanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað....
Arnór Sigurðsson átti frábæran leik í gær í lokaumferð rússnesku deildarinnar með CSKA Moskvu . Skagamaðurinn skoraði eitt marka liðsins og lagði upp annað fyrir félaga sinn úr íslenska landsliðinu, Hörð Björgvin Gunnarsson. Þetta var fyrsta tímabil Arnórs með CSKA Moskva. Hann skoraði alls 5 mörk í úrvalsdeildinni og tvívegis í Meistaradeild Evrópu. Þess má...
Það er mikill meðbyr með ÍA í fótboltanum þessa dagana. Gengi liða ÍA er gott og stuðningsmenn láta sig ekki vanta á leikina. Eins og sjá má á þessari loftmynd sem Hjalti Sig tók á meðan leikur ÍA og Stjörnunnar fór fram í gær. Þar má sjá hreyfimyndir úr lofti þar sem að Steinar Þorsteinsson...
Á dögunum fóru fulltrúar tryggingafélagsins Sjóvá og Slysavarnadeildarinnar Líf á Akranesi í heimsókn í 10.bekk Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla. Tilefnið var að fræða nemendur um brunavarnir. Þar má nefna að skilja ekki síma eða tölvur eftir uppí rúmi og passa að taka hleðslutækin úr sambandi eftir notkun þeirra. Einnig voru þau frædd um mikilvægi þess...
Lára Hólm Heimisdóttir er svo sannarlega að gera það gott í meistaranámi sínu í barnatannlækningum í Norður-Karólínu háskólann í Bandaríkjunum. Lára, sem er fædd og uppalinn hér á Akranesi, fékk verðlaun fyrir rannsóknarverkefni hennar á barnatannlæknaþingi sem fram fór í Chicago um liðna helgi. Þar voru átta rannsóknarverkefni framhaldsnema í barnatannlækningum kynnt en öll þessi...
Hreyfing er þemað í þessari viku þegar Hreyfivika UMFÍ hefst með formlegum hætti. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Akranesi og margt í boði fyrir alla aldurshópa. Markmið verkefnisins er að að fá hundrað miljónir fleiri evrópubúa til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020. Rannsóknir sína að einungis þriðjungur íbúa í Evrópu hreyfa sig...