Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson fékk í dag viðurkenningu frá vefmiðlinum fotbolti.net. Framherjinn varð efstur í kosningu um besta leikmanninn í umferðum 1-7. í PepsiMax-deild karla. Tryggvi fékk alls 47% atkvæða. Sérfræðingar í þættinum Innkastið sáu um að tilnefna fjóra leikmenn í þessu kjöri. Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var einn af þessum fjórum leikmönnum og fékk...
Síðasta hópfimleikamót ársins, GK deildarmeistaramótið, fór fram í Stjörnunni í Ásgarði. ÍA var með alls þrjú lið sem kepptu á þessu móti. Í hverjum flokki kepptu þau sex lið sem náðu bestum árangri á mótum tímabilsins. Keppt var í 5. flokki, 4. flokki, 3. flokki, 2. flokki, 1. flokki og meistaraflokki kvenna og karlaflokki yngri...
Skagamaðurinn Sigurjón Ernir Sturluson tók þátt á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum 2019. Hann gerði sér lítið fyrir og endaði í 116. sæti þar sem hann hljóp 44 km. 4:29:49 klst. Alls tóku 450 keppendur þátt frá 54 löndum. Þar á meðal margir af bestu fjallahlaupurum heims. Sigurjón endaði í 116. sæti í karlaflokki og í 127....
Margir hafa lagt leið sína á hið formfagra Akrafjall að undanförnu í góða verðrinu. Vinsælustu gönguleiðirnar eru Háihnúkur (555 metrar) og að Geirmundartindi (643 metrar.) Göngufólk á öllum aldri fer á Akrafjallið á hverju ári. Flestir skrá nafn sitt í gestabók sem er á Háahnúk. Nýverið setti Magnús Brandsson göngugarpur og kylfingur nýja gestabók á...
Kór Akraneskirkju hefur á undanförnum dögum verið á tónleikaferðalagi í Austurríki og Þýskalandi. Kórinn hefur komið fram þrívegis og er óhætt að segja að undirtökurnar hafi verið frábærar. Í dag tók kórinn þátt í kaþólskri messu í München í Þýskalandi. Viðtökurnar voru frábærar eins og heyra má í þessu myndbandi sem tekið var í dag....
David Bowie var í aðalhlutverki á Akranesi um helgina þegar haldið var upp á tveggja ára afmæli Bowie-veggsins við Kirkjubraut. Skagamaðurinn Björn Lúðvíksson og Halldór Randver Lárusson eru í lykilhlutverki í því að koma hlutum tengdum tónlistarmanninum á framfæri. Bowie veggurinn hefur vakið mikla athygli á s.l. tveimur árum og fjallaði RÚV um sýninguna eins...
Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrir U-21 árs landslið Íslands í gær í 2-1 sigri liðsins gegn Dönum á útivelli. Um var að ræða vináttuleik sem fram fór á CASA Arena í Horsens. Danir komust yfir á 15. mínútu leiksins en Stefán Teitur jafnaði fimm mínútum síðar. Erlingur Agnarsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Hörður Ingi Gunnarsson...
Kvennalið ÍA gerði góða ferð í Breiðholtið í gær þegar liðið sótti ÍR heim í Inkasso-deildinni. ÍA landaði þar góðum 3-0 sigri þar sem sterkur varnarleikur ÍA lagði grunninn að sigrinum. Sigur ÍA hefði getað verið mun stærri miðað við öll færin sem liðið fékk í leiknum. Mörk ÍA gerðu: Aníta Sól Ágústsdóttir Fríða Halldórsdóttir...
Það eru bjartir tímar framundan hjá starfsfólki og leiðbeinendum Fjöliðjunnar á Akranesi. Stefnt er að starfssemi Fjöliðjunnar verði allt komið á flug eftir helgina í húsnæði að Smiðjuvöllum 9. Eigendur Smiðjuvalla 9 eru Trésmiðjan Akur og hafa tekist samningar um að Akraneskaupstaður leigi húsnæðið af þeim til ársloka 2020.. Eldur kviknaði í húsnæði Fjöliðjunnar að...
Akraneskaupstaður hefur staðið fyrir heilsueflingu fyrir 67 ára og eldri s.l. 10 ár. Fram til þessa hefur sami starfsmaðurinn unnið við þetta verkefni í verkakavinnu. Á síðasta fundi velferðar – og mannréttindaráðs var ákveðið að leggja það til að starfsmaður í 30% starfshlutfalli muni sjá um heilsueflingu aldraðra. Laufey Jónsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir málinu.Velferðar-...