„Undanfarnar vikur eru búnar að vera mjög skemmtilegar hjá okkur í Vallarseli.,“ segir Brynhildur Björg Jónsdóttir leikskólastjóri á Vallarseli á Akarnesi. Mánudaginn 20. maí fagnaði Vallarsel 40 ára afmæli sínu en leikskólinn er elsti leikskólinn á Akranesi. Föstudaginn 17. maí kvöddu 33 kátir krakkar Vallarsel þegar þau útskrifuðust úr skólanum. Í afmælisvikunni var margt í...
Bláfánanum var flaggað í sjöunda skiptið á Langasandi þann 27. maí síðastliðinn. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðsla og upplýsingagjöf, vatnsgæði, umhverfisstjórnun, öryggi og þjónusta. Langisandur er eina Bláfánaströnd landsins árið 2019. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku (t.d....
„Það hjálpar mikið til að vera klár en maður þarf að leggja mikið á sig líka, mæta í skólann, vinna verkefni vel og mæta undirbúinn í próf,“ segir Atli Teitur Brynjarsson 18 ára Skagamaður sem útskrifaðist nýverið af náttúrúfræðibraut með hæstu einkunn frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hvaðan ertu af landinu? „Ég myndi segja að...
Aðsend grein frá Heiðrúnu Janusardóttur. Hvað virkar í forvörnum og hlutverk foreldra: Mánudaginn 20.maí sl var haldinn fundur í Þorpinu, miðstöð frísitunda og forvarna á Akranesi, þar sem Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu fór yfir niðurstöður úr könnuninni Ungt fólk 2019- um vímuefnaneyslu ungs fólks. Rétt er að halda því til haga að...
Leikmenn karlaliðs ÍA halda áfram að skrifa undir nýja samninga við félagið. Arnór Snær Guðmundsson og Steinar Þorsteinsson skrifuðu nýverið undir nýja samninga við ÍA. Arnór samdi til tveggja ára en varnarmaðurinn er fæddur árið 1993 og hefur leikið stórt hlutverk með ÍA undanfarin ár. Hann kom til ÍA frá Aftureldingu í Mosfellsbæ og hefur...
Annað mót tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum á Hellu um s.l. helgi. Alls tóku sex keppendur frá Leyni þátt þar af ein stúlka. Björn Viktor Viktorsson sem er lengst til vinstri á myndinni varð þriðji í flokki 15-16 ára pilta. Björn lék á 71-74 höggum og var samtals á +5....
Það er mikill áhugi á leikjum ÍA það sem af er PepsiMax-deild karla í knattspyrnu. Rétt tæplega 1.400 áhorfendur mæta að meðaltali á leiki ÍA í fyrstu 7 umferðunum. ÍA er í fjórða sæti yfir mestu aðsóknina. Taflan hér fyrir neðan segir alla söguna. Næsti leikur ÍA er á Norðurálsvelli þann 15. júní gegn KR....
Rakel Pálsdóttir hefur á undanförnum misserum og árum skipað sér í fremstu röð söngvara á landinu. Rakel hefur m.a. keppt í undankeppni Söngvakeppni Evrópu hér á Íslandi svo eitthvað sé nefnt. Rakel syngur hér lagið Halo í Akraneskirkju þar sem að Birgir Þórisson leikur með henni á píanó. Beyoncé söng Halo með eftirminnilegum hætti þegar...
Gengi Skagamanna í knattspyrnunni í sumar hefur vakið athygli. Sjónvarpsfréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson frá Stöð 2 og Vísir.is var á leik ÍA og Stjörnunnar á dögunum þar sem hann ræddi við stuðningsmenn á meðan leikurinn fór fram. Þátturinn ber nafnið Ástríðan. Áhugavert og skemmtilegt innslag sem sjá má hér fyrir neðan.
Þáttaröðin að Vestan hóf göngu sína að nýju á sjónvarpsstöðinni N4 nýverið. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson fara víðsvegar um Vesturland í þáttunum og er efnisvalið fjölbreytt. Í fyrsta þættinum kom Akranes við sögu og þar var kastljósinu beint að nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi. Innslagið má sjá hér fyrir neðan.