„Ég hef ekki tíma til að fagna mikið. Ég þarf að fara heim og grilla hamborgara handa börnunum mínum sem eru heima. Mamma þeirra fór að heimsækja barnið sem við seldum frá okkur – og ég þarf að sjá um þessa hluti og það er bara gaman,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson í léttum tón við...
Það er nóg um að vera í dag í knattspyrnunni á Akranesi. Mikil eftirvænting ríkir fyrir fyrsta leik tímabilsins í Pepsi-Maxdeildinni hjá karlaliði ÍA gegn KA frá Akureyri. ÍATV verður með nýjung í sumar en öflugt lið sjálfboðaliða hefur komið netsjónvarpsstöðinni í fremstu röð á landsvísu. Í dag hefst upphitunarþáttur á ÍATV kl. 15:00 þar...
Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson settu í gær í loftið fyrsta þáttinn af Skagahraðlestinni. Um er að ræða hlaðvarpsþátt sem er framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Snorri sér um tæknimálin en Björn Þór er stjórnandi þáttarins. Það verða margir sem koma um borð í Skagahraðlestina í sumar. Aðilar sem tengjast félaginu með einum...
Hallur Flosason og Viktor Jónsson, leikmenn karlaliðs ÍA í knattspyrnu fóru í lauflétta keppni í gær á Norðurálsvellinum. Þar var markmiðið að hitta þverslána sem oftast í þremur tilraunum. Skagafréttir ræddu við þá félaga um komandi tímabil og þar kom ýmislegt skemmtilegt fram. Keppnin var að sjálfsögðu hörkuspennandi eins og sjá má í myndbandinu.
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu er spenntur fyrir fyrsta leik Íslandsmótsins sem fram fer á laugardaginn á Norðurálsvellinum. Þar mætir ÍA liði KA frá Akureyri og hefst leikurinn kl. 16:00. Jóhannes segir að ÍA ætli sér að keppa um efstu sæti í Pepsi-Maxdeildinni í sumar og hann lofar skemmtilegu fótboltasumri. Viðtalið er...
Það stendur mikið til í kvöld þegar herrakvöld ÍA fer fram í nýrri frístundamiðstöð hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Formleg opnun á mannvirkinu er fyrirhuguð á næstunni en nokkrar veislur hafa nú þegar farið fram í frístundamiðstöðinni. Skagafréttir litu við í dag þegar undirbúningur fyrir herrakvöldið stóð sem hæst. Hér fyrir neðan má sjá myndband...
Þrír öflugir Skagamen skrifuðu undir eiðstaf Björgunarfélags Akraness á aðalfundi félagsins sem fram fór í vikunni.Gísli Björn Rúnarsson, Stefán Ýmir Bjarnason og Tómas Alexander Árnason teljast því fullgildir meðlimir í Björgunarfélagi Akraness. Góð mæting var á aðalfundinn en tvær breytingar eru á stjórn félagsins. Gísli Sigurjón Þráinsson tekur við sem formaður en Birna Björnsdóttir fráfarandi...
Víkingur AK hefur aflað vel að undanförnu er þessa stundina á leið til hafnar með fullfermi af kolmunna. Þetta er annar túr skipsins í röð á stuttum tíma þar sem niðurstaðan er fullfermi ,,Aflabrögðin eru góð. Við vorum um þrjá og hálfan sólarhring á veiðum og fengum oftast um 400 tonn í holi eftir 12-14...
Eins og fram hefur komið hér á skagafrettir.is fengu fjórir nemendur úr Tónlistarskóla Akraness viðurkenningu á Nótunni. Hljómsveitin Skullcrusher vakti þar athygli fyrir flutning sinn á þekktu lagi Metalica – „From Whom the Bell tolls“ Hljómsveitina skipa: Fannar Björnsson, rafgítar, Helgi Rafn Bergþórsson, söngur, Ingibergur Valgarðsson, trommur og Baldur Bent Vattar Oddsson, bassi Fjallað var...
Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Aron Logi Hrannarsson náðu frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í latín dönsum sem fram fór um s.l. helgi í Blackpool á Englandi. Rósa Kristín komst í undanúrslit ásamt dansfélaga sínum Aroni Loga. Árangurinn er glæsilegur þar sem að 130 bestu danspör Evrópu í 16- ára og yngri hófu keppni á EM. Alls...