• Kvennalið ÍA í knattspyrnu hefur á undanförnum dögum dvalið á Spáni við æfingar og keppni. ÍA lék æfingaleik gegn Lorca Femínas og landaði þar góðum 4-0 sigri.Mörkin skoruðu þær Erna Elíasdóttir, Fríða Halldórsdóttir, Erla Karítas Jóhannesdóttir og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir. Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu á Íslandsmótinu fer fram eftir tæplega fjórar...

  • Skúffukaka og mjólk er uppskrift að sigri fyrir Káramenn í knattspyrnunni ef marka má úrslitin gegn Hamarsmönnum úr Hveragerði í gær. Kári landaði þar 5-1 sigri og komst þar með áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Kári mætir Vestra eða Víði þann 20. apríl. Áhorfendum var boðið upp á mjólk og skúffuköku á leiknum. Í...

  • Nemendur á málmiðnaðarbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fóru í áhugaverða heimsókn á Grundartanga á dögunum. Eins og gefur að skilja eru fjölmörg tækifæri fyrir nemendur á þessu sviði hjá fyrirtækjum sem eru með starfssemi á Grundartangasvæðinu. Vélsmiðjan Hamar á Grundartanga og Elkem Ísland buðu nemendum í heimsókn. Þar sem nemendurnir fengu tækifæri að skoða fyrirtækin...

  • „Ég vildi mest koma hingað á Akranes þar sem ég þekki allt. Aðstaðan hér til æfinga er með þeim betri á landinu ef ekki sú besta. Gæðin á æfingunum komu mér einnig á óvart,“ segir Tryggvi Hrafn Haraldsson leikmaður ÍA í viðtali við Skagafréttir. Tryggvi samdi við sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad í ágúst árið 2017. Hann...

  • Eins og áður hefur komið fram náði sundfólk úr röðum ÍA góðum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug. Mótið fór fram um s.l. helgi. Á lokakeppnisdeginum landaði Enrique Snær Llorens bronsverðlaunum í 400 metra fjórsundi og Brynhildur Traustadóttir gerði slíkt hið sama í 200 metra skriðsundi. Brynhildur fékk tvenn bronsverðlaun á mótinu en hún...

  • „Ég vonast til þess að fá einhver tækifæri með ÍA liðinu í sumar. Markmiðið er að komast í leikmannahópinn og nýta þau tækifæri sem ég fæ. Ef ég skora þá ætla ég að fagna eins og Mbappé,“ segir Hákon Arnar Haraldsson leikmaður ÍA við Skagafréttir. Hákon Arnar hefur haft í nógu að snúast að undanförnu...

  • Hljómsveitin Scullcrusher frá Tónlistarskólanum á Akranesi stóð sig frábærlega á lokahátíð NÓTUNNAR sem fram fór á Akureyri um s.l. helgi. Skullcrucher hlaut viðurkenningu í „Opinn flokkur – samleikur“ með Metalica laginu „From Whom the Bell tolls“ Meðlimir Skullcrusher eru Fannar Björnsson, rafgítar, Helgi Rafn Bergþórsson, söngur, Ingibergur Valgarðsson, trommur og Baldur Bent Vattar Oddsson, bassiÞau...

  • Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar er búsettur á Laugarbrautinni á Akranesi. Guðjón gegnir mikilvægasta embætti landsins í dag en hann er með forsetavald lýðveldisins. Guðni Th. Jóhannesson forseti lýðveldisins og forseti Alþingis eru hvorugur á landinu. Þar með færist forsetavaldið til 1. varaforseta Alþingis, forsætisráðherra og forseta hæstaréttar. Guðjón er helst þekktur fyrir einstaklega smekklegan...

  • Tæknifyrirtækin Skaginn 3X og Kælismiðjan Frost hafa landað samningi um hönnun, uppsetningu og innleiðingu á hátækni vinnslu- og kælibúnaði í risavaxinn frysti- og vinnslutogara fyrir rússneska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Collective Farm Fishery by V.I. Lenin (RK Lenina). Verðmæti samningsins hleypur á milljörðum íslenskra króna og er gerður í samvinnu við rússneska arm Nautic Knarr Maritime,...

  • Það er ekki slegið slöku við í niðurrifinu á Sementsreitnum á Akranesi. Nýverið var hafist handa við að rífa niður veggi meðfram Faxabrautinni. Þessir veggir eru hluti gríðarlega stóru svæði þar sem skeljasandur var geymdur fyrir sementsframleiðsluna. Michal Mogila, íbúi á Akranesi hefur á undanförnum misserum flogið reglulega með dróna yfir svæðið. Hann skráir því...

Loading...