Vilhjálmur Birgisson var um helgina kjörinn 1. varaforseti ASÍ. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins er nýr forseti ASÍ, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness 1. varaforseti og Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins 2. varaforseti. Vilhjálmur segir í viðtali við RÚV að miklar breytingar á verkalýðsforystunni endurspegli breyttar áherslur. „Ég held að þetta endurspegli þær breytingar sem eru að...
Eins og fram hefur komið hefur áhugi á verknámi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi aukist jafnt og þétt undanfarin misseri. Aðsókn nemenda í rafvirkjun og vélvirkjun er mikil eins og fram kemur í þessari frétt. Nemendur í vélvirkjun við FVA fengu á dögunum nýjan tölvustýrðan fræsara frá bandaríska framleiðandanum Haas. Þetta kemur fram á vef FVA....
Ásmundur Ólafsson fékk í gær afhent Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2018. Verðlaunin eru veitt í tengslum við upphaf Vökudaga. Þetta er í tólfta sinn sem þessi verðlaun eru afhent. Menningarverðlaun Akraness eru almennt veitt þeim sem hefur skarað fram úr á einhverju sviði menningar í bæjarfélaginu. Þau eru m.a. veitt þeim er staðið hafa vörð um menningararfleifð...
Garðar Gunnlaugsson sendir ÍA góðar kveðjur á fésbókinni en framherjinn þaulreyndi mun ekki leika með ÍA í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð. „Eftir miklar vangaveltur höfum ég og minn ástkæri klúbbur, ÍA, ákveðið að nú skilja leiðir. Vegna vinnu þarf ég að flytjast búferlum til Reykjavíkur og tel ég það henta mun betur, vinnulega, fótboltalega og...
Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson (Stebbi Jak) gaf út sína fyrstu plötu á dögunum. Platan ber einfaldlega titilinn JAK. Nú þegar hafa verið haldnir tónleikar á Græna Hattinum og Bæjarbíó Hafnarfirði – viðtökurnar hafa sannarlega verið frábærar og framar björtustu vonum segir í tilkynningu frá útgefanda JAK. Bíóhöllin á Akranesi verður að sjálfsögðu nýtt til að kynna...
„Ég ólst að mestu upp hér í búðinni. Í minningunni svaf ég mjög oft á pappakassahrúgum á leynistöðum sem eru hérna út um allt. Þetta gerði ég þegar foreldrar mínir voru á kafi í vinnu hérna í Nínu,“ segir Helga Dís Daníelsdóttir sem á Verslunina Nínu ásamt Heimi Jónassyni eiginmanni sínum. „Þetta starf sem ég...
Árgangamót ÍA fer fram í áttunda sinn þann 10. nóvember n.k. í Akraneshöllinni. Í fyrra var metþátttaka og voru 250 leikmenn skráðir til leiks. Nánari upplýsingar á fésbókarsíðu viðburðarins. Árgangur 1975 sigraði í nýrri Lávarðadeild eftir hörkuúrslitaleik gegn árgangi 1974 en þar kepptu leikmenn sem eru 40 ára og eldri. Í keppni 30-39 ára sigraði...
Í þessu myndbandi sem Axel Gústafsson birti á fésbókarsíðu sinni er að finna frábæra samantekt af mannlífinu á Akranesi. Fyrra myndbandið er frá sumrinu 1998 þar sem Jón Ársæll Þórðarson heimsækir Akranes. Hann kemur m.a. við í Axelsbúð og ræðir þar við viðskiptavini, hann ræðir einnig við Hinrik Haraldsson á Rakarastofu Hinriks, Gísli Gíslason þávaerandi...
Skagamennirnir Guðmundur Kári Þorgrímsson, Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Logi Örn Axel Ingvarsson náðu glæsilegum árangri með blönduðu landsliði Íslands á Evrópumótinu í hópfimleikum. Þeir keppa allir fyrir Stjörnuna en hófu ferilinn í hópfimleikum með Fimleikafélagi Akraness, ÍA. Guðmundur, Helgi og Logi fengu allir bronsverðlaun ásamt liðsfélögum sínum í landsliði Íslands. Keppnin var gríðarlega spennandi en...
Jón Þór Hauksson var í dag ráðinn sem landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Ian Jeffs, sem þjálfaði kvennalið ÍBV á síðustu leiktíð, verður aðstoðarþjálfari. Jón Þór verður þar með fjórði Skagamaðurinn sem stýrir A-landsliði hjá KSÍ frá upphafi. Ég er mjög stoltur af því að hafa fengið þetta tækifæri. Ég hlakka til að vinna með...