Skagamenn hafa á undanförnum misserum náð fínum árangri í spurningakeppni á mill sveitarfélaga í sjónvarpsþættinum Útsvari. Akranes verður með lið að þessu sinni og verður fyrsta keppnin föstudaginn 5. október. Akranes mætir liði Fjarðabyggðar. Þetta er tólfta árið í röð þar sem þessi spurningakeppni fer fram. Í ár er gerð sú breyting að aðeins þau...
Söngleikurinn Smellur sló heldur betur í gegn s.l. vor þegar hann var sýndur á fjölum Bíóhallarinnar á Akranesi. Verkið eftir kennaratríóið úr Grundaskóla, Flosa Einarsson, Einar Viðarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson. Nemendur úr Grundaskóla fóru á kostum í þessu verki sem sýnt var fyrir fullu húsi í öll skiptin sem sýningar voru í boði. Smellur...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson heldur áfram að upplifa fótboltadrauma sína. Í gær kom Arnór inn á sem varamaður fyrir CSKA Moskva gegn spænska stórliðinu Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. Arnór lék síðustu 12 mínútur leiksins og tók því þátt í glæsilegum 1-0 sigri rússsneska liðsins gegn sigursælasta liði allra tíma í Meistaradeild Evrópu. Nikola Vlasic skoraði eina...
Starfið hjá Björgunarfélagi Akraness er öflugt og fjölbreytt. Um síðastliðna helgi fóru þrír fulltrúar frá Akranesi á fund á Akureyri þar sem að umsjónarmenn unglingadeilda víðsvegar frá landinu fóru yfir stöðuna. Björgunarfélagið festi kaup á sprungbjörgunargálga fyrir skemmstu og var sá útbúnaður prófaður á Langjökli með góðum árangri. Á næstu vikum fara félagsmenn Björgunarfélagsins á...
Skagakonan Bergdís Fanney Einarsdóttir er í U-19 ára landsliði Íslands sem mætir Wales á þriðjudaginn í undankeppni EM. Leikurinn fer fram í Armeníu og hefst kl. 13.00 að íslenskum tíma. Í riðlinum eru einnig Belgía og Armenía. Hópurinn Eva Rut Ásþórsdóttir | Afturelding Íris Una Þórðardóttir | Keflavík Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik Katla María...
Skagamennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson eru í U17 ára landsliðshóp Íslands sem keppir í undankeppni Evrópumótsins. Leikið verður í Bosníu og Hersegóvínu. Íslenska liðið heldur utan 7. október n.k. Mikael Egill Ellertsson | SPAL Bjartur Bjarmi Barkarson | Víkingur Ó. Róbert Orri Þorkelsson | Afturelding Valgeir Valgeirsson | HK Andri Fannar Baldursson | Breiðablik...
Skagamenn hafa á undanförnum misserum tekið þátt í að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna í gegnum Team Rynkeby verkefnið. Nýlega afhenti Team Rynkeby á Íslandi SKB rúmlega 16,6 milljónir kr. sem söfnuðust á þessu ári þegar hópurinn hjólaði frá Danmörku til Parísar í Frakklandi. Rósa Guðbjartsdóttir tók við styrknum fyrir hönd SKB. Hjónin Guðrún Gísladóttir og...
Íþróttabandalag Akraness er eitt af fimm íþróttafélögum landsins sem fékk styrk til að standa fyrir verkefnum sem hvetja börn af erlendum uppruna til þátttöku í íþróttastarfi. Verkefnið er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ. Félögin sem hljóta styrki eru ÍBV, Héraðssamband Snæfells- og Hnappadalssýslu, Íþróttabandalag Akraness, Valur og Taekwondodeild Keflavíkur. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, tók við styrknum fyrir...
Blikksmiðja Guðmundar á Akranesi fékk góða gesti í vikunni. Þar voru á ferðinni Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, og Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka Iðnaðarins. Sævar Jónsson eigandi Blikksmiðju Guðmundar tók á móti gestunum ásamt syni sínum Emil Sævarssyni. Frá þessu er greint á vef SI. Fréttina má lesa í heild sinni hér. ...
Atli Vikar Ingimundarson og Brynhildur Traustadóttir stóðu uppi sem stigameistarar á Akranesmeistaramótinu í sundi sem fram fór í Jaðarsbakkalaug fimmtudaginn 27. september s.l. Alls tóku 33 keppendur þátt og var mótið vel heppnað þrátt fyrir að kalt hafi verið í veðri. Fjölmargir voru á bakkanum að hvetja krakkana og myndaðist skemmtileg stemmning Akranesmeistar 2018...