„Ég er gífurlega ánægð með myndbandið sem mér finnst ná að fanga alveg þessa einlægu stemmningu sem er í laginu. Þetta er textamyndband með mjög flottri grafík, ég vona að fólk prófi að syngja með því lagið er mjög grípandi,“ segir Valgerður Jónsdóttir um nýtt myndband við lag hennar Minningar morgundagsins sem hún gaf út nýverið....
Það er mikið um að vera í Akraneshöfn þessa dagana. Siglingasamband Íslands stendur fyrir æfingabúðum í kænusiglinum hér á Akranesi vikuna 1.-8. júli. Keppnishópar víðsvegar af landinu eru hér samankomnir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Akranes verður fyrir valinu en árið 2015 voru samskonar æfingabúðir á Akranesi. Í ár eru þáttakendur frá Nökkva...
Það var góð mæting í viðburð sem árgangur 1968 á Akranesi hélt í gær á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Tilefnið var að árgangurinn fagnar 50 ára afmæli á þessu ári og var viðburðurinn tileinkaður Sigursteini Gíslasyni sem fæddist þann 25. júní árið 1968. Sigurliðið: Ágúst Valsson, Ragnar Valsson, Þorlákur Halldórsson og Árni Þór Hallgrímsson en...
Í dag er stefnt að því að setja met á Jaðarsbökkum. Í hátíðarsalnum verður perlað af krafti til styrktar góðu málefni. Íþróttabandalag Akraness ætlar að reyna að næla í Perlubikarinn – en það félag sem nær að perla flest armbönd til styrktar Krafti fær Perlubikarinn. Viðburðurinn hefst kl. 15 í dag og stendur til 19....
Leikmenn Kára náðu frábærum úrslitum í gær þegar liðið lagði Völsung frá Húsavík 4-2 í 2. deild karla. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og með sigrinum náði Kári að þoka sér upp í 2. sæti deildarinnar, við hlið Þróttar úr Vogum. Páll Sindri Einarsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Kára úr vítaspyrnu eftir aðeins tvær...
Íslandsmót (Mid/Am) Icelandair +35 í golfi fór fram á Húsatóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur og þar fagnaði kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni Íslandsmeistaratitli. Svala Óskarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni sigraði í kvennaflokki. Úrslitin í kvennaflokki réðust eftir þriggja holu umspil. Svala er eiginkona John Garner, sem er golfkennari hjá Leyni í sumar. Sigmundur Einar Másson úr GKG fagnaði sigri...
Kvennalið ÍA skoraði 11 mörk gegn engu í stórsigri liðsins gegn Sindra frá Höfn í Hornafirði í Inkasso-deildinni í kvöld. Sigurinn var mikilvægur fyrir ÍA sem lagaði markatöluna verulega með þessum sigri. Unnur Ýr Haraldsdóttir skoraði fimm mörk í leiknum. ÍA er í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig í fjórða sæti deildarinnar en Keflavík...
Sævar Freyr Þráinsson verður bæjarstjóri á Akranesi næstu fjögur árin. Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar. Bæjarstjórn Akraness samþykkti einróma á fyrsta fundi sínum eftir kosningar áframhaldandi ráðningu við Sævar Frey en hann hefur gengt embættinu frá því í mars 2017. „Við hlökkum til samstarfsins við Sævar og erum ánægð með að hafa tryggt...
Á fundi bæjarráðs þann 21. júní s.l voru breytingar á deiliskipulagi Sementsreitsins samþykktar sem felast í því að fjarlægja sementsstrompinn. Tillaga þess efnis er til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18 og á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af svæðinu eins og það gæti litið út þegar niðurrifi við sementsreitinn verður...
Það er mjög góð aðstaða í Garðalundi á Akranesi fyrir þá sem stunda strandblak. Íþróttin hefur vaxið hratt á undanförnum árum og nýlega fór fram námskeið í strandblaki í Garðalundi. Sjónvarpsstöðin N4 var á svæðinu og hér má sjá innslag sem bort var í þættinum Að Vestan sem Hlédís Sveinsdóttir stýrir. Auglýsing