Kjósendur á Akranesi í bæjarstjórnarkosningunum 26. maí n.k. eru með fjóra valkosti á kjörseðlinum að þessu sinni. Fjórir flokkar bjóða fram í kosningunum. Framsókn og frjálsir, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Samfylking. Hér fyrir neðan er skoðanakönnun sem þú lesandi góður getur tekið þátt í. Hvaða flokk ætlar þú að kjósa? Hvaða flokk ætlar þú að kjósa...
Ungir iðkendur úr Sundfélagi Akraness upplifðu mikið ævintýri í Danmörku þar sem 14 manna hópur dvaldi í keppnis – og skemmtiferð s.l. daga. Þetta var fyrsta keppnisferð hópsins á erlendri grundu en keppt var í Farum. Veðrið lék við Skagamennina í þessari ferð og gekk ferðin mjög vel. Sundkrakkarnir bættu mörg hver tíma sína sem...
Fjölmörg spennandi störf eru nú laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað. Störfin eru fjölbreytt, sum til skemmri tíma og önnur til lengri tíma. Hér fyrir neðan eru störfin sem enn á eftir að ráða í. Þar má nefna verkefnastjóra fyrir barnastarf í Þorpinu, kennara í Grundaskóla og Brekkubæjarskíla, tónlistarkennara í Tónlistaskólann, leikskólakennara í Akrasel, Teigasel og...
Kári fékk eldskírn í 2. deild karla í knattspyrnu í dag þegar liðið tók á móti Fjarðabyggð í Akraneshöllinni. Þetta var fyrsti leikur Kára í þriðju efstu deild. Guðlaugur Þór Brandsson kom Kára yfir á 15. mínútu með glæsilegu skoti af löngu færi. Þar skrifaði hann nýjan kafla í sögu Kára og er fyrsti markaskorari...
Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast í niðurrifi Sementsverksmiðjunnar. Ásýndin breytist mikið daglega. Á þessari mynd, sem Þorvaldur Sveinsson, tók úr aðstöðu Ljósmyndafélagsins Vitans við Suðurgötu má sjá hvernig útsýnið gæti litið út þegar efnisgeymslan verður farinn. Það glittir í Akraneshöfnina í gegnum gatið sem er í efnisgeymslunni. Ásýnd Suðurgötunnar mun breytast gríðarlega þegar...
Samfylkingin opnar kosningaskrifstofu sína í dag kl. 17.00 með formlegum hætti. Skrifstofan er við Stillholt 16. Formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson mætir á svæðið og frambjóðendur verða að sjálfsögðu á staðnum. Boðið verður upp á vöfflur og heitt á könnunni – segir í tilkynningu frá Samfylkingunni.
Sundgarpar úr Sundfélagi Akraness náðu frábærum árangri á Íslandsmeistaramóti Garpa. Á þessu móti keppa þaulreyndir keppendur sem eru 25 ára og eldri. Alls settu þrír keppendur úr ÍA fimm Íslandsmet, þeir fengu 17 gullverðlaun, ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Vignir Barkarson, Kári Geirlaugsson og Ágúst Júlíusson voru hetjurnar úr ÍA að þessu sinni. Kári, sem...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson lét heldur betur til sín taka í dag þegar hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arnór, sem er fæddur árið 1999, og er enn 18 ára gamall gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Norrköping gegn Östersund á útivelli. Þetta eru fyrstu mörkin sem Arnór skorar fyrir Norrköping í...
Steinar Þorsteinsson var hetja ÍA gegn Leikni í 1. umferð Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Sigurmarkið skoraði framherjinn á 60. mínútu. Skagamönnum er spáð sigri í Inkasso-deildinni og í liðinu eru margir frábærir knattspyrnumenn sem gaman er að horfa á. Fjölmenni mætti á leikinn og var góð stemning í Akraneshöllinni þar sem leikurinn fór fram....
Helga K. Jónsdóttir, vélsmiður, mun leiða lista Miðflokksins til komandi bæjarstjórnarkosninga á Akranesi. Í öðru sæti er Rúnar Ólason, framkvæmdastjóri. Í því þriðja er Steinþór Árnason, veitingamaður. Í því fjórða er Hörður Svavarsson, rafvirkjameistari. Í því fimmta er Kolbrún Líndal Jónsdóttir, innkaupastjóri og í því sjötta er Íris Baldvinsdóttir, kennari. Frá þesu er greint í...