Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild karla fer fram laugardaginn 5. maí í Akraneshöllinni þar sem Leiknir úr Reykjavík kemur í heimsókn. Mikil eftirvænting ríkir fyrir viðureignina sem hefst kl. 14.00. Það eru margir sem spá því að Skagamenn nái að koma sér í hóp bestu liða landsins á ný. Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson er lykilmaður...
Skagamaðurinn Jón Þór Þórðarson var heiðraður af Íþrótta – og Ólympíusambandi Íslands á dögunum. Jón Þór var um margra ára skeið framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness. Hann hefur á undanförnum misserum blásið miklu lífi í starf Körfuknattsleiksfélags Akraness, sem formaður og aðalþjálfari félagsins. Hafsteinn Pálsson, sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ, sæmdi Jón Þór silfurmerki Íþrótta- og Ólympíusambands...
Það verður mikið um að vera hjá Sjálfstæðisflokknum á næstu vikum í aðdraganda sveitastjórnarkosningana á Akranesi sem fram fara laugardaginn 26. maí. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins verður við Kirkjubraut 8 á Akranesi og verður hún opnuð með formlegum hætti laugardaginn 5. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Frambjóðendur verða á svæðinu og taka vel á...
Það styttist í sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara laugardaginn 26. maí 2018. Framsókn og frjálsir Akranesi opna kosningaskrifstofu sína laugardaginn 5. maí og verður opið frá kl. 16-18. Skrifstofan er við Kirkjubraut 54 – 56. Formaður Framsóknarflokksins og samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson mætir á svæðið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsókn og frjálsir. Það eru allir...
Söngleikurinn Smellur hefur vakið mikla athygli. Verkefnið er unnið af nemendum Grundaskóla og höfundarnir eru þeir Flosi Einarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Einar Viðarsson. Uppselt hefur verið á allar sýningar fram til þessa í Bíóhöllinni. Næstu sýningar eru á föstudag og sunnudag, og fer þeim ört fækkandi. Hér má sjá myndasyrpu frá sýningunni sem fram fór...
Alexander Már Þorláksson hefur verið kallaður úr láni frá Kára og eru allar líkur á því að hann verði í leikmannahóp ÍA í fyrsta leik liðsins gegn Leikni laugardaginn 5. maí. Alexander skrifaði undir samning við ÍA í byrjun þessa árs en hann var kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá Kára árið 2017. Alexander er framherji, fæddur...
Erna Sigurðardóttir, íþróttakennari við Grundaskóla, spáði rétt fyrir um að synir hennar myndu mætast í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu. Erna velti því fyrir sér í gær á samfélagsmiðlinum Instagram hvort Sindri Snæfells Kristinssson leikmaður Kára og Arnþór Kristinsson leikmaður Víkings úr Reykjavík myndu mætast. Og mamman hafði rétt fyrir sér. Kári, sem leikur í...
Söngleikurinn Smellur hefur svo sannarlega slegið í gegn. Verkefnið er unnið af nemendum Grundaskóla og höfundarnir eru þeir Flosi Einarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Einar Viðarsson. Smellur er sjöundi söngleikurinn úr smiðju þeirra félaga en þeir eru allir kennarar við Grundaskóla. Sjónvarpsstöðin N4 leit við á æfingu hjá hópnum nýverið og má sjá innslagið hér...
Í apríl á þessu ári fór fram mikil vinna við að skrásetja ástand kútter Sigurfara við Safnasvæðið í Görðum á Akranesi. Greint var frá verkefninu á fréttavefnum skessuhorn.is. Norðmaðurinn Gunnar Holmstad dvaldi í fjóra daga á Akranesi þar sem hann myndaði Sigurfara í bak og fyrir. Hann notaði síðan myndirnar til að búa til þrívíddarlíkan...
Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild karla fer fram laugardaginn 5. maí á Akranesi. Leikurinn átti að fara fram á Norðurálsvellinum en tekin hefur verið ákvörðun um að leika í Akraneshöllinni. Heiðrún Sara Guðmundsdóttir og Hafþór Pétursson – leikmenn ÍA í nýja búningnum. Mynd/Ágústa Friðriksdóttir. Ástæðan er sú að ekki tekst að ljúka við framkvæmdum á...