Karlaliði ÍA er spáð sigri í Inkasso-deildinni í knattspyrnu og kvennalið ÍA endar í þriðja sæti í Inkasso-deildinni ef marka má spá forráðamanna félaganna sem birt var í dag. Bæði liðin leika í næst efstu deild á Íslandsmótinu. Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur Ólafsvík fara upp í Pepsideildina í haust ef spáin gengur eftir í karlaflokknum....
Fjöldi fólks mætti í gær á 1. maí kröfugönguna sem fram fór á Akranesi. Þrátt fyrir að kalt væri í veðri var hátíðin vel heppnuð og fóru þau fram með hefðbundnum hætti. Sólin skein á göngufólkið þegar það gekk hring um miðbæ Akraness með fána og kröfuspjöld. Skólahljómsveit Akraness sá um að halda takti með...
Mikið líf hefur verið í Akraneshöfn að undanförnu. Handfærabátar og línubátar hafa veitt mikið að undanförnu á Akranesmiðum. Samhliða veðurblíðu og góðum gæftum hefur þorskveiðin verið gríðarlega mikil. Þetta kemur fram á síðu sem kallast Sjávarsíðan Akranessem er ætluð áhugafólki um hafnar- og atvinnulífið við Akraneshöfn. Á síðunni kemur það m.a. fram að Eskey sem gerði út...
GEY – Góðgerðafélagið Eynir í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi heldur áfram að gefa af sér með ýmsum hætti. Tæplega 280.000 kr. söfnuðust nýverið á bingókvöldi sem fram fór í FVA og þar var safnað fyrir Neistanum. Fulltrúar GEY hittu formann Neistans á dögunum og afhentu upphæðina sem safnaðist á bingókvöldinu. Vinningarnir á Bingókvöldinu voru...
Nemendur í 9. bekk Grundaskóla fengu á dögunum viðurkenningu sem „Varðliðar umhverfisins“ fyrir verkefnið „Hafðu áhrif“ en það var unnið s.l. haust. Viðurkenninguna veita Umhverfisráðuneytið, Landvernd og fleiri aðilar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra afhenti viðurkenninguna. Verkefnin sem krakkarnir unni voru mjög fjölbreytt. Saumaðir voru innkaupa- og ávaxtapokar sem seldir voru á Malaví markaðnum. Nemendur fóru í...
„Það er mikið líf á fasteignamarkaðinum hér á Akranesi. Verðin hafa hækkað í takt við hækkanir á höfuðborgarsvæðinu. Það er eftirsóknarvert að flytja á Akranes og við mælum hiklaust með Skaganum við okkar viðskiptavini í Reykjavík og víðar,“ segir Heimir Bergmann, ættaður frá Skuld, en hann er einn eigandi að Lögheimili. Í gær var skrifstofa Lögheimilis...
Söngvakeppni framhaldsskólanna fór fram með glæsibrag í íþróttahúsinu við Vesturgöt á Akranesi í gær. Alls tóku 24 skólar þátt og var sýnt frá keppninni í beinni útsendingun á RÚV. Það voru Vinir Hallarinnar sem sáu um framkvæmdina á þessum viðburði og er óhætt að segja að vel hafi tekist til á þeim stutta tíma sem...
Ásýnd Sementsverksmiðjunnar á Akranesi breytist hratt með hverjum deginum sem líður. Niðurrif á efnisgeymslunni, sem eitt stærsta mannvirki á Akranesi, stendur nú yfir og gengur verkið ágætlega. Hér má sjá nokkrar myndir sem Michal Mogila sendi okkur nýverið. Þær eru teknar úr flygyldi eða dróna og segja allt sem segja þarf. Takk fyrir sendinguna Michal.
Bókhald Akraneskaupstaðar er nú opið almenningi og er hægt að skoða og sækja fjárhagslegar upplýsingar um Akraneskaupstað beint úr bókhaldskerfi bæjarins. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Muninn kvikmyndagerð ehf. sá um framleiðslu efnisins og Margrét Blöndal sem talar inn á myndbönd ásamt bæjarstjóra Akraness. Verkefnið sem hér um ræðir er unnið í samvinnu við ráðgjafasvið KPMG...
Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram í kvöld og í fyrsta sinn sinn í sögunni fer keppnin fram á Akranesi. Skipulag keppninnar er í höndum Vinum Hallarinnar og verður bein útsending á RÚV frá Íþróttahúsinu við Vesturgötu þar sem viðburðurinn fer fram. Fulltrúar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi eru þær Rakel Eyjólfsdóttir og María Einarsdóttir. Atriði þeirra er með...