Síðasta starfsár Verkalýðsfélags Akraness var viðburðaríkt en aðalfundur félagsins fór fram í gær 26. apríl. Formaður félagsins, Vilhjálmur Birgisson, kynnti skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár og helstu mál sem komið hafa á borð félagsins síðasta árið. Þetta kemur fram á vef félagsins. Afkoma félagsins á síðasta ári var afar góð eða tæpar 92 milljónir, þrátt fyrir...
„Við höfum fengið margar fyrirspurnir um starf framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA og það eru án efa enn fleiri sem hafa áhuga á þessu spennandi starfi,“ segir Magnús Guðmundsson formaður KFÍA í samtali við skagafrettir.is. Eins og áður hefur komið fram mun Hulda Birna Baldursdóttir, núverandi framkvæmdastjóri KFÍA, hætta störfum síðsumars og snúa í önnur störf. Nánar...
Framkvæmdir við nýja og glæsilega frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi hófust í upphafi ársins 2018. Nýja frístundamiðstöðin rís á sama stað og gamla klúbbhúsið stóð áður og hafa öll gömlu húsin verið fjarlægð, klúbbhúsið sem og skemman sem var þar skammt frá. Þetta kemur fram á vef Golfsambands Íslands, golf.is. Uppbyggingarferlið mun standa fram til...
Sementsstrompurinn á Akranesi er „feigur“ ef marka má niðurstöðu kosningu sem fram fór hjá Akraneskaupstað. Um var að ræða ráðgefandi skoðanakönnun á meðal íbúa Akraness. Alls tóku 1.095 þátt. Niðurstaðan afgerandi, 94,25% kusu að strompurinn yrði felldur eða 1.032 en aðeins 5,75% (63 íbúar) kusu að strompurinn ætti að standa áfram. Þetta kemur fram á vef...
Á Rakarastofu Gísla gerðust ótrúlegir hlutir í dag þegar hinn eini sanni Ágúst Harðarson lét skerða hár sitt og skegg. Gústi Harðar, sem oftast er kenndur við Dalasýslu, hafði ekki komið við hjá Gísla í rúmt ár. Og var útlitið á unga manninum frekar vígalegt svo ekki sé meira sagt. Það var því verk að vinna...
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út í dag í malarnámu við Hólabrú rétt norðan við Hvalfjarðargöngin. Þar hafði eldur komið upp í vélarrými á stórri vinnuvél. Viðgerð stóð yfir á vinnuvélinni og blossaði eldur upp. Slökkviliðið náði að slökkva eldinn sem var töluverður eins og sjá má á þessum myndum. Skemmdir eru miklar á vélinni...
Niðurrif Sementsverksmiðjunnar heldur áfram og á hverjum degi breytist svæðið töluvert. Á undanförnum dögum hefur verktakinn brotið niður hluta af efnisgeymslunni – sem var á sínum tíma stærsta mannvirki Íslands þegar það var byggt. Verkið gengur ágætlega en ljóst er að Faxabrautin verður lokuð í lengri tíma en áætlað var í fyrstu. Hér fyrir neðan...
„Ég vil þakka öllum þeim sem heiðruðu mig með nærveru sinni og þakklæti til allra þeirra, er lögðu hönd á plóg og gerðu það mögulegt að halda tónleikana, „Við tónanna klið“ í Tónbergi daganna 23. mars og 14. apríl sl. Sérstakar þakkir til Lárusar Sighvatssonar sem hélt utan um verkefnið,“ segir Óðinn G. Þórarinsson í...
Simon Thern liðsfélagi Arnórs Sigurðssonar sparar ekki stóru lýsingarorðin um unga Skagamanninn. Arnór er smátt og smátt að stimpla sig inn í baráttuna um byrjunarliðssæti hjá IFK Norrköping. Thern segir þetta í ítarlegu viðtali við staðarblaðið Norrköpings Tidningar „Að mínu mati er Arnór frábær leikmaður. Það er aðeins tímaspursmál hvenær hann verður í byrjunarliðinu. Arnór...
Það styttist í að söngleikurinn SMELLUR verði frumsýndur. Það eru nemendur úr Grundaskóla sem standa á bak við verkefnið ásamt kennurum. Um 100 nemendur koma að undirbúningi á söngleiknum SMELLUR. Verkið verður frumsýnt í Bíóhöllinn á Akranesi föstudaginn 27. apríl. Um er að ræða nýjan söngleik eftir Einar Viðarsson, Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson....