Fimleikafélag Akraness er án efa farið að telja niður dagana til 12. júlí 2019 en það eru 443 dagar þar til sá dagur rennur upp ef miðað er við 24. mars 2018. Á þeim degi er áætlað að nýtt fimleikahús við Vesturgötu verði klárt. Akraneskaupstaður hefur óskað eftir tilboðum í byggingu á fimleikahúsinu. Skila skal...
Eva Björg Ægisdóttir frá Akranesi fékk í dag afhent spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina Marrið í stiganum. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti verðlaunin. Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson eru hugmyndafræðingarnir að baki verðlaununum sem ætluð eru höfundum sem ekki hafa áður sent frá sér glæpasögu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Eva er eins og...
Skagamenn voru áberandi á Meistaramóti Íslands í badminton sem fram fór nýverið í TBR húsinu í Reykjavík. ÍA eignaðist Íslandsmeistara í B-flokki í einliðaleik karla og kvenna. Davíð Örn Harðarson sigraði í B-flokki líkt og María Rún Ellertsdóttir. Símon Orri Jóhannsson, sem keppir fyrir TBR, er fæddur og uppalinn á Akranesi, sigraði í einliðaleik í...
Skagamenn náðu fínum árangri á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem fram fór í Laugardalnum um s.l. helgi. Atli Vikar Ingimundarsson fékk bronsverðlaun í 100 metra flugsundi og bætti tíma sinn verulega. Sævar Berg Sigurðsson bætti árangur sinn í sama sundi og endaði í 7. sæti. Sævar Berg náði síðan í silfurverðlaun í 50 metra...
Inga Elín Cryer, sundkona úr Ægi í Reykjavík, náði frábærum árangri á Íslandsmótinu í 50 metra laug um s.l. helgi. Skagakonan varð þrefaldur Íslandsmeistari. Hún vann til gullverðlauna í 100 m. og 200 m. flugsundi, og 200 m. skriðsundi. Hún vann einnig þrenn bronsverðlaun með Ægi í boðsundum. Inga Elín náði ekki lágmörkunum fyrir Evrópumeistaramótið...
Félagar úr Rótarýklúbbi Akraness ásamt dyggri aðstoð tveggja sterkra manna og settu niður göngubrú yfir Berjadalsá nýverið, Þetta er árleg athöfn en brúin er tekin upp á haustin svo hún skemmist ekki. Nú er því hægt að beina göngumönnum, sem hyggja á göngu upp á Háhnjúk að fara upp Selbrekku og yfir ána inn í...
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út í dag þar sem að eldur kom upp í fjölbýlishúsi við Jaðarsbraut 33. Michał Mogiła tók þetta myndband þegar slökkviliðið var að störfum í dag. Ekki er vita hvort einhver slasaðist eða hvort miklar skemmdir hafi orðið. Ef þið hafið upplýsingar um þetta mál væri vel þegið að...
Kári tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu karla í kvöld með stórsigri í Akraneshöll. Mótherjar Kára var liðið Elliði sem tengist Fylki í Árbænum. Yfirburðir Kára voru miklir í leiknum sem endaði 9-1, staðan í hálflleik var 5-0. Guðlaugur Þór Brandsson skoraði þrennu fyrir Kára líkt og Alexander Már Þorláksson. Kári og...
Skagamaðurinn Dean Martin er einn af aðstoðarþjálfurum hjá kínverska kvennalandsliðinu í knattspyrnu. Dean hefur á undanförnum dögum staðið í ströngu með liðinu í Jórdaníu þar sem að Asíumótið fór fram. Kínverska liðið endaði í þriðja sæti á Asíumótinu með 3-1 sigri gegn Taílandi. Kína hafði fyrir leikinn tryggt sér keppnisrétt í úrslitum Heimsmeistaramótsins sem fram...
Á vef Akraneskaupstaðar stendur yfir kosning um framtíð sementsstrompsins á Akranesi. Hægt verður að kjósa til og með 24. apríl n.k. og verður niðurstaða kosningarinnar lögð fyrir bæjarráð þann 26. apríl. Opnað hefur verið fyrir kosningu HÉR í íbúagátt Akraneskaupstaðar. Á vef Akraneskaupstaðar er vakin er athygli á því að endanleg niðurstaða um fyrirkomulag /...