Það er alltaf líf og fjör í Akranesvitanum hjá Hilmari Sigvaldasyni Vitaverði okkar Skagamanna. Í dag, föstudaginn 23. mars, komu rúmlega 50 nemendur úr Walter Payton háskólanum í Chicago í heimsókn. Krakkarnir sungu að sjálfsögðu í Akranesvitanum en þau hafa m.a. sungið í Skálholtskirkju og í Hörpu í þessari heimsókn sinni á Íslandi. Fallega málaðir...
Bókaútgáfa á Akranesi á sér langa sögu. Mth útgáfan á Akranesi sendi nýverið frá sér þýdda glæpasögu sem er fyrirtaks lesefni fyrir þessa páska. Bókin heitir KÖLD SLÓÐ eftir sænska höfundinn Emelie Schepp sem var útnefnd glæpasagnahöfundur ársins 2017 í Svíþjóð. Er það annað árið í röð sem henni hlotnast sá heiður. Um efni bókarinnar...
Matarbúr Kaju / Café Kaja vex og dafnar vel á Akranesi og nýverið fluttu fyrirtækin sig um set. Opið er alla virka morgna kl. 9.00 og er opið til 17.30. Matarbúr Kaju / Café Kaja er við Stillholt 23 en í því húsnæði var áður matsölustaður sem sérhæfði sig í asískri matargerð. Skagakonan Karen Emilía Jónsdóttir...
Textaland ehf. hóf nýlega starfsemi með formlegum hætti. Fyrirtækið veitir fjölbreytta þjónustu á sviði ritaðs máls, m.a. textagerð, prófarkalestur og þýðingar fyrir fyrirtæki, stofnanir og háskólanema, svo eitthvað sé nefnt. Stofnendur Textalands eru Arnar Óðinn Arnþórsson og Halla Sigríður Bragadóttir. Þau eru bæði upplýsingafræðingar og hafa áralanga reynslu af margs konar skrifum og vinnu með...
„Portrettverk af Guðbjarti Hannessyni eða Gutta æskuvini mínum og skátafélaga er miðpunkturinn í þessari litlu málverkasýningu sem verður um Páskana á Café Lesbókin við Akratorg. Ég vildi gefa Skagamönnum tækifæri til þess að sjá þessa mynd sem ég málaði til heiðurs Gutta,“ segir Skagamaðurinn Vignir Jóhannsson við skagafrettir.is. Vignir er í hópi virtustu og þekktustu...
Íþróttafólk frá Akranesi hefur í gegnum tíðina náð stórkostlegum árangri í fjölmörgum íþróttagreinum í gegnum tíðina. Stuðningur við afreksíþróttafólk hefur verið með ýmsum hætti hjá Akraneskaupstað. Á síðasta fundi skóla- og frístundaráð var lagt til að stofnaður yrði afrekssjóður. Þessi samþykkt verður tekin fyrir á næsta bæjarstjórnarfundi. Framúrskarandi íþróttafólk úr röðum ÍA fengi þar með...
Ferðamönnum fer fjölgandi á Akranesi. Hilmar Sigvaldason „Vitavörður“ tekur á móti gríðarlega mörgum þeirra við Akranesvitann og nýverið var sett nýtt met á þeim slóðum. Stærsti einstaki hópur ferðamanna sem heimsótt hefur Akranesvitann á sama tíma kom s.l. mánudag. Þetta voru ferðamenn á vegum Gray Line hópferðafyrirtækisins. Norðurljósin voru efst á baugi hjá þessum hóp...
Skagakonan Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf., var í dag kjörin formaður Samtaka ferðþjónustunnar á aðalfundin samtakanna í dag. Kosningin var afar spennandi og fékk Bjarnheiður 44,72% atkvæða. Þórir Garðarsson, sem var varaformaður samtakanna, fékk 0,1% færri atkvæði eða 44,62%. Margeir Vilhjálmsson fékk 10,65% en Róbert Guðfinsson dró framboð sitt til baka. Bjarnheiður er fyrsta...
Garðar H. Guðjónsson blaðamaður og Guðni Hannesson ljósmyndari opna áhugaverða sýningu föstudaginn 23. mars í gömlu lögreglustöðinni við Kirkjubraut 10 á Akranesi. „300 Brunahanar – stúdía í máli og myndum,” er nafnið á sýningunni sem samanstendur af myndum af öllum brunahönum Akraneskaupstaðar. Garðar og Guðni, sem eru báðir fæddir árið 1963, hjóluðu um Akranes sumarið...
Ungir og efnilegir leikarar með sterka tengingu á Akranes leika stórt hlutverk í nýrri kvikmynd sem frumsýnd verður þann 23. mars 2018. Myndin heitir Víti í Vestmannaeyjum og er fjölskyldumynd með vísun í sannsögulega atburði. Viktor Benóný Benediktsson, 12 ára, og Theodór Ingi Óskarsson, 11 ára, fengu að upplifa það að leika í þessari mynd...