• „Undanfarin tvö ár hafa verið erfið. Ég hef glímt við meiðsli, veikindi og persónulega erfiðleika sem hafa sett stórt strik í reikninginn og haft áhrif á árangur minn í sundinu,“ segir Skagakonan Inga Elín Cryer við skagafrettir.is. Þróunin á undanförnum mánuðum hefur verið í rétta átt hjá Ingu Elínu sem hefur náð lágmörkum fyrir Smáþjóðaleika,...

  • Ísak Bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson voru valdir í U16 ára landslið Íslands sem keppir a UEFA Development Tournament U16 karla. Davíð Snorri Jónasson er þjálfari liðsins og fara leikirnir fram í Gargzdai í Litháen dagana 2.-7. apríl. Þess má geta að Ísak og Oliver eru náfrændur en mæður þeirra eru systur, Jófríður og Magnea Guðlaugsdætur. Leikmannahópurinn...

  • Skagamennirnir Svavar Örn Sigurðsson og Einar Örn Guðnason náðu góðum árangri í klassískum kraftlyftingum og klassískri bekkpressu. Úrslitin má nálgast hér:  Einar Örn og Svavar Örn. Svavar gerði sér lítið og sigraði í 74 kg. flokki í klassískri bekkpressu. Hann bætti sig jafnt og þétt í þremur tilraunum. Fyrsta lyfti hann 135 kg., 145 kg....

  • Guðmundur Sigurðsson slær ekki slöku við í keppni eldri keiluspilara. Guðmundur fagnaði Íslandsmeistaratitli öldunga nýverið og varði þar með titilinn frá því fyrra. Guðmundur vann Björn G. Sigurðsson úr KFR í gríðarlega spennandi úrslitaleik, 226 / 166. Ragna Matthíasdóttir úr KFR varð Íslandsmeistari í kvennaflokki öldunga.  

  • Skagahljómsveitin Madre Mia og rapp­gengið 200 Mafía komust áfram í fyrsta undan­k­völdi Mús­íktilrauna sem fram fór í gærkvöld. Sveit­irn­ar tryggðu sér þar með sæti á úr­slita­kvöld­inu sem fer fram laugardaginn 24. mars. Hljómsveitina Madre Mia skipa þær Katrín Lea Daðadóttir, Hekla María Arnardóttir og Sigríður Sól Þórarinsdóttir. Katrín er 14 ára, hún syngur, spilar á...

  • Ingibjörg Pálmadóttir bæjarfulltrúi „Frjálsir með Framsókn“ á Akranesi hefur lagt fram tillögu um stytta fjölda vinnustunda hjá starfsfólki Akraneskaupstaðar og/eða auka möguleikann á sveigjanlegri vinnutíma. Bæjarráð telur mikilvægt að aflað verði upplýsinga um fyrirliggjandi tilraunaverkefni hjá Reykjavíkurborg sem unnið er í samvinnu við heildarsamtök launþega. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra úrvinnslu málsins í samræmi við umræður...

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var um helgina kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 95,6% atkvæða á landsfundi flokksins sem fram fór í Laugardalshöll. Alls greiddu 772 atkvæði í varaformannskjörinu og hlaut Þórdís Kolbrún 720 af þeim. Þórdís Kolbrún er fædd á Akranesi 4. nóvember árið 1987 og stundaði hér nám í Brekkubæjarskóla og...

  • Ísak Örn Elvarsson skrifar: Oliver Stefánsson gæti alveg verið starfsmaður mánaðarins á Subway allt árið 2018  enda er hann tíður gestur á veitingastaðnum á Akranesi. Bræðingurinn er efstur á blaði hjá fótboltastráknum úr Grundaskóla sem á sér mörg áhugamál og er einn efnilegasti COD spilarinn á landinu að eigin sögn. Skagafréttir ræddi við Oliver um...

  • Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar samþykkti á dögunum að leggja til við bæjarráð að stofnað verði þverfaglegt teymi sem geri tillögu að stefnumörkun og framkvæmdaáætlun Akraneskaupstaðar í átt að heilsueflandi samfélagi. Bæjarráð samþykkti þessa tillögu skóla- og frístundaráðs og næsta skref er að fela bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins. Málið á sér upphaf á formannafundi ÍA sem fór fram...

  • Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson eru báðir í U21 ár landslið Íslands í knattspyrnu sem leikur gegn Norður Írlandi og Írlandi 22. og 26. mars næstkomandi. Arnór og Tryggvi leika báðir með liðum í efstu deild í Svíþjóð. Arnór er hjá Norrköping og Tryggvi Hrafn er hjá Halmstad. Leikurinn gegn Írlandi fer fram á Tallaght...

Loading...