Heiðrún Jónsdóttir starfsmaður bæjarskrifstofu Akraness samdi þessa vísu sem Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs flutti í gær þegar Skagamaður ársins 2017 var útnefndur. Sigurður Elvar Þórólfsson ritstjóri skagafrettir.is er Skagamaður ársins 2017. Við hér á skagafrettir.is þökkum kærlega fyrir hrósið og móttökurnar á fyrsta ári fréttavefsins. Þetta hvetur okkur áfram til góðra verka. Vandi nokkur vera...
Gríðarleg stemning var á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í gær í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um 700 manns mættu á blótið sem fáir Skagamenn vilja missa af. Árgangur 1971 sá um framkvæmd Þorrablótsins líkt og áður – og er óhætt að segja að sá hópur hafi unnið þrekvirki með frumkvæði sínu og framkvæmdargleði. Að venju...
„Það er gaman og gott að finna samstöðuna hjá Skagamönnum í þessu verkefni. Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og við vitum að þessir fjármunir eiga eftir að nýtast til góðra verka,“ sagði Þórður Már Gylfason í dag í höfuðstöðvum Sansa á Akranesi. Alls söfnuðust tæplega 2,2 milljónir kr. í minningarsjóð Arnars Dórs. Þórður...
Það var mikið um að vera í íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöld. Þar var fjöldi manns mættur til þess að undirbúa Þorrablót Skagamanna sem fram fer í kvöld. Árgangur 1971 var þar mættur ásamt fjölda sjálfboðaliða úr íþrótahreyfingunni og var salurinn „græjaður“ af mikilli fagmennsku eins og sjá má á þessum myndum. Skagafréttir hvetur Þorrablótsgesti...
Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi í dag 19. janúar, að viðstöddu fjölmenni. Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður standa að framkvæmdinni og á meðfylgjandi myndum má sjá Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóra, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur formann ÍA, Þórð Emil Ólafsson formann GL og Guðmund Sigvaldason framkvæmdastjóra GL taka fyrstu skóflustunguna ásamt viðstöddum...
Af umræðu síðust vikna og mánaða má heyra að flestum er orðið ljóst það ófremdarástand sem er á vegtengingu sunnanverðs Vesturlands við höfuðborgarsvæðið. Staða þessa hluta vegakerfisins hefur mér þótt vekja furðu lítinn áhuga undanfarin ár, en nú næst vonandi með samstilltu átaki að koma nauðsynlegum verkefnum rækilega á kortið. Bergþór Ólason alþingismaður Miðflokksins og formaður...
Bergdís Fanney Einarsdóttir leikmaður ÍA er í landsliðhóp Íslands sem æfir með U19 ára landsliði kvenna í lok janúar. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins. Bergdís Fanney er lykilmaður í meistaraflokki ÍA en hún var kjörin knattspyrnukona ársins 2017 hjá ÍA. Hópurinn er þannig skipaður: Hanna Hauksdóttir, Álftanes Aníta Lind Daníelsdóttir, Keflavík Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðablik...
Bóndadagurinn er að renna í hlað og af því tilefni verður mikið um að vera í anddyri Tónlistarskólans föstudaginn 19. janúar. Þar ætla nemendur að setja upp súputónleika sem hefjast kl. 12.10. Þetta er tilvalið tækifæri að bjóða Þorrann velkominn, brjóta upp hefðbundna dagskrá í hádeginu og eiga ánægjulega stund með ungu fólki í heimi...
Það eru margar minningar sem félagsmenn í golfklúbbnum Leyni á Akranesi eiga frá klúbbhúsinu sem tekið var í notkun árið 1978. Íbúðarhúsið sem kennt var við Grímsholt var keypt árið 1978 með dyggri aðstoð Akranesbæjar og á næstu þremur árum unnu félagsmenn hörðum höndum við endurbætur á félagsheimilinu. Veturinn 1981 var húsið endurnýjað innanstokks og...
Vefmiðlar voru í fyrra með stærsta hlutann af birtingakökunni hjá Pipar/Media, einnar stærstu auglýsingastofu landsins. Er það í fyrsta sinn sem vefmiðlar taka fram úr dagblöðum í auglýsingabirtingum. Þetta kemur fram í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. Um 33 prósentum af birtingafé Pipar/MEDIA var varið í auglýsingar í vefmiðlum á síðasta ári. Til samanburðar...