• Brynjar Sigurðsson, íþróttakennari við Brekkubæjarskóla og fimleikaþjálfari hjá FIMA er enn og aftur að slá í gegn í netheimum með skemmtilegum uppátækjum. „Binni Sig“ eins og flestir þekkja hann er ótrúlega handsterkur eins og sjá má í myndböndunum hér fyrir neðan. Vel gert Binni – við viljum meira af slíku þótt að dætur þínar og...

  • Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi þann 17. október síðastliðinn að ganga til samninga við lægstbjóðanda um niðurrif Sementsverksmiðjunnar. Útboðsverkinu var skipt í tvo þætti og mun Work North ehf. sjá um framkvæmd á þætti eitt. Alls bárust tólf tilboð í verkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Umfjöllun í fjölmiðlum á undanförnum...

  • – Rúmlega 15% Vestlendinga eða um 2.500 manns heimsóttu Lindex við opnun á Akranesi – Team Rynkeby og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hlýtur 400 þús. kr. styrk Opnun Lindex á Akranesi var gríðar vel sótt um helgina þar sem rúmlega 15% allra Vestlendinga lögðu leið sína í miðbæ Akraness, eða sem samsvarar rúmlega 35% allra bæjarbúa....

  • Það er margt áhugavert sem kemur fram í niðurstöðum af íbúafundi þar sem farsæl eldri ár á Akanesi var til umfjöllunnar. Fundurinn fór fram í lok september á þessu ári og þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar standa eftirfarandi atriði upp úr: Ánægja með búsetu á Akranesi Fundarmönnum líður almennt vel á Akranesi. Það sem þeir kunna sérstaklega...

  • Sundmennirnir Ágúst Júlíusson og Sævar Berg Sigurðsson náðu fínum árangri á alþjóðlegu sundmóti sem fram fór í Noregi um helgina. Mótið var hluti af undirbúningi þeirra fyrir Íslandsmótið í 25 metra laug sem fram fer 17.-19. nóvember. Ágúst náði m.a. bestu tímum ársins hjá Íslending í 50 metra flugsundi og 100 metra flugsundi. Hann endaði...

  • Björgunarfélag Akraness hafði í nógu að snúast í gær þegar óveður gekk yfir SV-horn landsins. Þakplötur, trampólín og ýmislegt annað lauslegt var á meðal þess sem Björgunarfélagið þurfti að eiga við í hvassviðrinu. Þakplötur úr Sementsverksmiðjunni losnuðu og var lokað fyrir alla umferð á Faxabraut og Suðurgötu. Lögreglan á Akranesi mælti með því að fólk...

  • Valdís Eva Ingadóttir skrifaði nýjan kafla í fimleikasöguna á Akranesi á stökkfimimóti sem fram fór í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Stökkfimimótið var á vegum Fimleikasambandsins og tóku nokkur hundruð keppendur þátt víðsvegar af landinu. Valdís Eva gerði sér lítið fyrir og framkvæmdi erfitt stökk sem á fagmálinu kallast „tvöfalt heljar stökk með beinum líkama og hálfri...

  • Það verður mikið um að vera í Lindex á Akranesi þegar verslunin opnar með formlegum hætti kl. 12:00 laugardaginn 4. nóvember. „Við gerum okkur alltaf glaðan dag þegar við opnum en opnunarhelgina verður 20% afsláttur af öllum vörum og DJ Dóra Júlía spilar. Auk þess verðum við með andlitsmálningu fyrir yngstu kynslóðina og trúðar á...

  • Hall­bera Guðný Gísla­dótt­ir landsliðskona í knatt­spyrnu hefur ákveðið að flytja heim til Íslands á næstu vikum. Hallbera, sem er frá Akranesi, hefur leikið með sænska úrvalsdeildarliðinu Djurgår­d­en á þessu tímabili. Hún hefur verið í byrjunarliðinu í 20 leikjum hjá félaginu sem er eitt það sterkasta í Svíþjóð. „Ég lauk há­skóla­námi í viðskipta­fræði sam­hliða bolt­an­um síðasta vor...

  • Í tilefni af Vökudögum hefur Tónlistarskólinn á Akranesi helgað líðandi viku samspili nemenda af öllu tagi. Nemendur hafa myndað stærri og smærri hljómsveitir og samspilshópa og verður árangurinn af starfi vikunnar fluttur fyrir gesti Tónlistarskólans á laugardaginn kemur, 4. nóvember. Það verður stöðugur tónlistarflutningur víða um skólann allt frá klukkan 12 á hádegi og fram...

Loading...