Það voru glæsileg tilþrif sem sáust á Álmanninum sem fram fór á miðvikudaginn á Akranesi. Verkefnið er samstarfsverkefni nokkurra aðildarfélaga ÍA. Keppnin tókst gríðarlega vel og margir tóku þátt við frábærar aðstæður. Sólrún Sigþórsdóttir frá Akranesi sigraði í kvennaflokki og Ingvar Hjartarson í karlaflokki – en bæði settu þau ný brautarmet. Í Álmanninum er keppt...
Skagafrændurnir Arnþór Ingi Kristinsson og Hallur Flosason hafa á undanförnum misserum sent frá sér skemmtilegar ábreiður af vinsælum lögum. Nýjasta afurð þeirra hefur vakið athygli en þar tekur Hólmar Örn Eyjólfsson atvinnumaður í knattspyrnu lagið með þeim Arnþóri og Halli. Lagið er Passionfruit með Drake. Hólmar Örn leikur með Maccabi Haifa í Ísrael en hann er...
Það er mikið stuð og góð stemning á Norðurálsmótinu á Akranesi sem fram fer þessa stundina. Keppendur hafa sýnt allar sínar bestu hliðar eins og sjá má í þessu skemmtilega myndbandi sem Ísak Máni og Sindri Þór gerðu í gær.
Heimir Fannar Gunnlaugsson, formaður uppeldissviðs Knattspyrnufélags Akraness, skrifaði eftirfarandi pistil vegna Norðurálsmótsins sem hófst í dag á Akranesi. Kæru foreldrar og forráðamenn, Saman stöndum við fyrir einhverju glæsilegasta knattspyrnumóti sumarsins, Norðurálsmótið fyrir 7. flokk drengja. Mótið er oftast nær fyrsta stóra mót þessara drengja og því mikilvægt sem slíkt. Margir tala um að Norðurálsmótið sé...
Um 1500 keppendur hafa sýnt stórkostlega takta á undanförnum klukkustundum á Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem hófst í dag á Akranesi. Mótið var sett í hádeginu í dag en því lýkur á sunnudaginn. Alls eru 31 félög sem senda lið til keppni og má gera ráð fyrir að nokkur þúsund manns heimsæki Akranes á meðan mótið...
Kylfingar úr Golfklúbbnum Leyni náðu fínum árangri á mótum á Íslandsbankamótaröð unglinga um síðustu helgi. Á sjálfu Íslandsmótinu í holukeppni náði Axel Fannar Elvarsson bronsverðlaunum í flokki 19-21 árs. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í þessum aldursflokki á Íslandsbankamótaröðinni og voru flestir af bestu kylfingum landsins í þessum aldursflokki á meðal keppenda....
Kvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ fór fram á Akranesi sunnudaginn 18. júní s.l. Íþróttabandalag Akraness um framkvæmdina og þetta skemmtilega myndband gerði Kristinn Gauti Gunnarsson. Myndbandið segir allt sem segja þarf um þá stemningu sem ríkti í Kvennahlaupinu. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ – Akranes 2017 from ÍA on Vimeo.
Kolbrún S. Kjarval er bæjarlistamaður Akraness árið 2017 en frá því var greint þann 17. júní og kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Kolbrún er fædd í Reykjavík í byrjun árs 1945 en flutt eins árs gömul til Danmerkur þar sem hún bjó til fimm ára aldurs. Til dagsins í dag hefur hún ýmist búið í...
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og áttunda sinn í dag sunnudaginn 18. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu en gera má ráð fyrir að um 10.000 konur hafi tekið þátt á yfir 80 stöðum um allt land og víða erlendis. Skagakonur mættu vel að venju í hlaupið á Akranesi og nokkur hundruð mættu...
Það var fjölbreytt hátíðardagskrá á Akranesi í dag á 17. júní, þjóðhátíðardags Íslands. Skagamenn fjölmenntu á Akratorgið þar sem að Fjallkona Akurnesinga,Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, flutti ljóð Davíðs Stefnánssonar Ættjörð, Háskólaljóð II (Úr útsæ rísa Íslandsfjöll). Karlarnir í Kirkjukór Akraneskirkju fluttu nokkur lög, Örn Arnarsson flutti hátíðarræðu sem í þessu tilfelli fjallaði um hamingjuna og hæfileikaríkt...