Ekkert verður af komu skemmtiferðaskipsins To Callisto en gert var ráð fyrir 14 heimsóknum skipsins í sumar í Akraneshöfnina. Skipið bilaði á leiðinni og er komið til Panama í viðgerð. Variety Cruises, sem rekur þetta skip, hefur því afbókað allar komur skipsins til Íslands segir í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Fyrirtækið hefur lýst yfir áhuga á...
„San Marínó er frábært land, fallegt og með einstaka menningu. Það var frábær upplifun að fá tækifæri með sundlandsliðinu á Smáþjóðaleikunum og hópurinn sem ég var með gerði þessa ferð ógleymanlega,“ segir sundmaðurinn úr ÍA Ágúst Júlíusson sem var fyrirliði íslenska landsliðsins í sundi á Smáþjóðaleikunum í San Marinó. Árangur íslenska sundfólksins á Smáþjóðaleikunum var...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni og íþróttamaður Akraness 2016, var hársbreidd frá því að komast inn á Opna bandaríska meistaramótið eftir úrtökumót á Englandi. Valsdís lék á einu höggi yfir pari vallar á 36 holum og komst hún í þriggja manna bráðabana um tvö laus sæti á risamótinu. Alls eru risamótin fimm á hverju...
Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi 26. maí s.l. ósk listamanns þess efnis að mála vegg Sementsverksmiðjunnar. Í erindi listamannsins óskaði hann efitr því að mála einn vegg sem snýr að Faxabraut, nánar tiltekið frá listaverki Guttorms og út að enda veggjarins í austur. Á veggnum eru fyrir þrjú eldri listaverk en búið er að fá...
Tveir Skagamenn verða í U-21 árs landsliði Íslands sem keppir gegn Englendingum ytra þann 10. júní. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Albert Hafsteinsson verða í liðinu en um er að ræða vináttuleik. Eyjólfur Sverrisson er þjálfari liðsins og Tómas Ingi Tómasson er aðstoðarþjálfari. Albert, sem hefur leikið vel með ÍA í sumar, hefur ekki leikið með U-21...
Tryggvi Björnsson missir varla úr dag þegar kemur að því að synda og hann mætir stundvíslega kl. 6 á hverjum morgni í Jaðarsbakkalaug. Starfsfólk Jaðarsbakkalaugar og fjölskyldumeðlimir tóku vel á móti Tryggva í morgun þegar hann mætti að venju til þess að synda. Tryggvi fagnar 90 ára afmæli sínu í dag en hann er fæddur...
Golfklúbburinn Leynir mun ganga til samninga við Akraneskaupstað um verkefnið Frístundamiðstöð við Garðavöll. Tillaga þess efnis var samþykkt á fjölmennum félagsfundi sem fór fram í gær í klúbbhúsi Leynis. Á fundinum voru lagðar fram tillögur sem stjórn Leynis hefur unnið að undanfarin tvö ár. Akraneskaupstaður mun byggja frístundamiðstöðina í samráði við Leyni þar sem að...
Sæferðir hafa samið við norskt fyrirtæki um leigu á farþegaferjunni Tedno vegna fyrirhugaðra ferjusiglinga á milli Akraness og Reykjavíkur í sumar. Á kynningarfundi sem fram fór s.l. föstudag á Akranesi sögðu Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæferða og Ólafur William Hand upplýsinga- og markaðsstjóri Eimskipa frá helstu staðreyndum í þessum verkefni. Ferjan sem hefur verið leigð í þetta verkefni...
Kvöldin í bænum með hljómsveitinni Albatross verður án efa einn af sumarsmellunum á þessu ári. Þar eru Friðrik Dór og Sverrir Bergmann í aðalhlutverki í söngnum. Lagið er eftir hina einu sönnu áströlsku hljómsveit Bee Gees og upprunalega útgáfan heitir Nights On Broadway. En hvernig er tenging lagsins við Akranes? Jú, það er að sjálfsögðu...
Íþróttabandalag Akraness tekur þátt í hreyfiviku UMFÍ sem hófst í dag 29.maí og stendur til 4. júní. Hreyfivika.is Hreyfivika UMFÍ er árleg lýðheilsuherferð og hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu og íþróttum en UMFÍ vill að allir landsmenn finni sína uppáhalds hreyfingu og stundi hana sér til heilsubótar....